Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 9

Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 9
erfðarannsóknum. Hvert leiða þær? Því meiri sem máttur mannsins er þeim mun þyngri er ábyrgð hans. Það er margt sem bendir til þess að siðferðisþroski mannsins sé langt að baki möguleikum vísinda og tækni. Rannsóknir á stofnfrumum geta leitt til stórkostlegra byltinga varðandi lækningar á sjúkdómum sem áður voru ólæknandi. Rætt er um möguleika á einræktun stofnfruma í lækningaskyni en jafnvel einræktun á fólki. Hér vakna gríðarlega mikilvægar spurningar sem þegar allt kemur til alls snerta mannskilning okkar og mat á manngildinu. Verður unnt að samræma grundvallarkröfur kristins mannsskilnings og frelsi vísindanna? Það er afar brýnt að svo verði. Framfarir í fósturgreiningum hafa opnað mikla möguleika á að greina snemma á fósturstigi sjúkdóma, fötlun og frávik í litningum. Nú er hægt að grípa inn í og koma í veg fyrir alvarlega sjúkdóma. En þessi tækni gerir líka mögulegt að velja úr einstaklinga á fósturstigi, og koma í veg fyrir að þeir lifi, einstaklinga sem hugsanlega gætu orðið byrði á samfélaginu. Við verðum að gefa þessu gaum og spyrja og leita svara við þeim siðferðilegu spurningum sem vakna: Viljum við slíkt samfélag, þar sem aðeins hið "hrausta" og "heilbrigða" fær líf? Nei. Okkur ber að standa vörð um mannhelgina, og gildi sérhvers einstaklings í margbrotnu litrófi mannlífsins. Okkur ber að leggja áherslu á virðingu fyrir manngildinu, sem er óháð heilsu, þreki, aldri, andlegum og líkamlegum kröftum. Það kennir frelsarinn, hann sem benti á barnið og sagði: "Nema þér verðið eins og börnin komist þér alls ekki inn í himnaríki." Barnið sem hann benti á var áreiðanlega ekki alfullkomið undrabarn eins og við sjáum á biblíumyndunum. Miklu fremur þroskaheft barn, barn með Downs heilkenni, fjölfatlað barn eða geðfatlað barn. Barn sem við viljum helst ekki sjá. Jesús bendir okkur á barnið og að sérhvert mannsbarn er lifandi sál, Guðs gjöf, einstæð og dýrmæt. Þetta viðhorf er eitt hið mikilvægasta sem kristin trú hefur lagt menningu heimsbyggðarinnar til. En það þarf alltaf að berjast fyrir því! Hér liggur frammi ályktun Landssamtakanna Þroskahjálpar um snemmómskoðanir og ég hvet Kirkjuþingsmenn til að kynna sér hana. Þar segir: "Það viðhorf sem er að baki þessurn rannsóknum er ekki til þess fallið að auka virðingu fyrir fólki með fötlun, sem hefur sama rétt til lífsins og aðrir. Sérstaklega á þetta við um fólk með litningafrávik eins og Downs heilkenni." Og:"Landssamtökin Þroskahjálp álíta að snemmómskoðun fyrir allar þungaðar konur til að leita að litningfrávikum varði manngildið í okkar þjóðfélagi." Þessi orð eru sett fram að undirlagi foreldra fólks með Downs heilkenni sem fínnst vegið að börnum sínum. Tökum þessi varnaðarorð til okkar. Hvetjum stjórnvöld til að fara sér hægt í þessum efnum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur hvatt aðildarríki sín til að taka upp umræður um þessar siðferðisspurningar. Þjóðkirkjan, prestar hennar og guðfræðingar verða að taka virkan þátt í því samtali. Eg hef hug á því að Þjóðkirkjan bjóði fram vettvang fyrir samtal um siðfræði lífvísindanna. Það eru engin einföld svör í þessum efnum. En kirkjunni ber að halda fram grundvallaratriðum kristins mannskilning um eilíft gildi sérhvers einstaklings. Ef við hvikum frá því þá verður það til stórtjóns fyrir menningu okkar og siðgæði. "Veldu þá lífið, til þess að þú og niðjar þínir megi lifa." Kirkjuþing Þegar Kirkjuþing kemur saman að þessu sinni er það hið síðasta á kjörtímabilinu. Kirkjuþing hefur unnið þrekvirki við að setja Þjóðkirkjunni starfsreglur á gnmdvelli kirkjulaganna. Er því starfi að miklu leyti lokið þótt starfsreglur verði jafnan í endurskoðun. En jafnframt lifum við nú tíma hinnar innri uppbyggingar kirkjunnar, eflingar þeirra starfsþátta sem styrkja samstöðu kirkju og þjóðar, leiða sókn kirkjunnar 5
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.