Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 12

Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 12
Starfsmannastefna kirkjunnar Hér á Kirkjuþingi verður lögð fram Starfsmannastefna kirkjunnar. Það er metnaðarfullt plagg sem annars vegar er lýsing á því sem stofnanir kirkjminar hafa leitast við að halda fram í starfsmannahaldi sínu. hins vegar markmiðslýsing varðandi það hvernig vinnustaður og starfsumhverfi hin evangelisk lútherska kirkja á að vera, stofnanir hennar, embætti og sóknir. Markmið starfsmannastefnunnar er að stuðla að því að Þjóðkirkjan hafi á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki og veiti því sem bestu skilyrði og stuðning til að helga starfskrafta sína hinum ijölþættu verkefnum sem starfsemi kirkjunnar krefst. Starfsmannastefnan lýsir vilja kirkjmmar til að vera góður vinnustaður, þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis og jafnréttis. Þetta er heildarstefnumörkun til hvatningar og leiðbeiningar fyrir sóknir, stofnanir og embætti Þjóðkirkjunnar. Framundan er svo mikið starf í hinum mismunandi stofnunum og embættum að vinna að deilistefnu sem snertir viðkomandi starfsfólk sérstaklega. Símenntun. Starfsefling og símenntun er veigamikill þáttm í starfsmannastefnu og eitt forgangsverkefni kirkjunnar um þessar mundir. Aætlun vinnuhóps mn símenntun presta liggur hér ffammi. Mikilvægt er að stefna að því að starfsefling og símenntun standi starfsfólki kirkjunnar almennt til boða. Vinnuhópminn gerir ráð fyrir, að auk símenntunar í guðfræði, jafnt fræðilegri sem kennimannlegri, njóti vígðir þjónar kirkjunnar starfshandleiðslu og hafi aðgang að trúarlegri leiðsögn og sálgæslu. Eg vil taka undir mat nefndarinnar að kirkjustjórnin hafi í þeim efnum sömu hagsmuna að gæta og þjónar kirkjunnar. Handleiðsla presta og djákna er komin í góðan farveg og er ánægjulegt hve vel fólk nýtir sér hana. Starfsgæðasamtöl eru orðin fastur liðm í vísitasíum og hef ég hvatt prófasta til að hafa slík samtöl við presta sína og djákna reglubundið. Vísindasjóðm Prestafélagsins og námsleyfakvóti presta er mikilvægur þáttm í að símenntun verði að veruleika. Eg hef viljað efla prestastefnu sem vettvang fyrir símenntun, guðfræðiumræðu og uppbyggingu presta og djákna í starfi. Stuðla þarf að reglubundnum námskeiðum, guðfræðidögum og menntunartilboðum í landshlutunum. Skálholtsskóli og Löngumýri og kirkjumiðstöðvarnar munu þar gegna mikilvægu hlutverki og við þurfum að notfæra okkm þá möguleika sem eru til staðar í símemitunai-setmm nágrannakirkna okkar og okkm standa til boða. Mikilvægt er að fmna leiðir til að hvetja presta til að nýta sér slík tækifæri, að þau séu prestum ekki aðeins að kostnaðarlausu heldur feli í sér umbun með einhverjum hætti. Ég óska eftir því að Kirkjuþing gefi mér umboð til þess að móta frekar tillögm í þessum efnunr fýrir næsta Kirkjuþing. Starfskjör presta Starfskjör presta er mikilvægur þáttur í starfsmannastefnu kirkjunnai'. Hér liggja frammi tillögm um breytingar á starfsreglum um embættiskostnað presta, sem ég þakka þeim sem að hafa unnið og vænti góðrar samstöðu um þetta mikilvæga mál. Það er afar mikilvægt að bæta kjör presta. Prestar eru óneitanlega neðarlega meðal Háskólamanna hvað launakjör varðar. Þeir virðast ekki njóta umbunar vegna bakvakta og er ekki greitt fýrir útköll, ein allra starfsstétta á íslandi í dag. Prestar gegna mikilvægu hlutverki við sálgæslu og áfallahjálp. Sá þáttm í starfi presta hefur aukist umtalsvert á undanförnum árum og ber margt til. Fjöldi sóknarbarna ræðm ekki endilega úrslitum um þessi efni eða umfang starfssviðs hvers prests. Þjónusta Þjóðkirkjunnar myndar eina heild um land allt - eins konar öryggisnet - og er með 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.