Gerðir kirkjuþings - 2001, Qupperneq 19
Kirkjuþing 2001, sem var 33. kirkjuþing var haldið í safnaðarheimili Grensáskirkju
dagana 15. til 24. október. A sunnudagskvöldi þann 14. október var messa í
Dómkirkjunni í Reykjavík. Sr. Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands, þjónaði fyrir altari
ásamt sr. Hjálmari Jónssyni, presti í Dómkirkjunni. Sr. Pétur Þórarinsson, prófastur í
Þingeyjarprófastsdæmi predikaði. Barnakórar úr kirkjum í Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra sungu undir stjórn Gróu Hreinsdóttur, organista í Seljakirkju sem jafnframt var
organisti við athöfnina.
Kirkjuþing var sett mánudaginn 15. október kl. 10.00.
Ræðutími þingfulltrúa
Á síðasta Kirkjuþing var forsetum og formönnum nefnda falið að koma fram með
tillögu um rýmkun á ræðutíma. Áður en umræður hófust gerði forseti grein fyrir því,
að samkomulag hefði orðið um eftirfarandi tillögur um eftirfarandi hugmynd um
beitingu heimildar 3. mgr. 24. gr. starfsreglna nr. 729/1998 til rýmkunar á ræðutíma á
Kirkjuþingi 2001:
Berist, áður en umræða um einstök dagskrármál hefst, ósk frá a.m.k. þremur
fulltrúum, sem hafa málfrelsi á Kirkjuþingi, um að forseti noti heimild til rýmri
ræðutíma enn kveðið er á um í þingsköpum, skal forseti verða við þeim í eftirfarandi
tilvikum og með þessum hætti:
Sé dagskrármál mjög umfangsmikið og efni þess þannig, að auðveldlega megi skipta
því í tvo afmarkaða þætti, ákveður forseti, að umræða um umfangsminni þáttinn
hefjist að lokinni framsöguræðu og henni ljúki áður en umræða um þann síðari hefst.
Gildir þá hinn almenni ræðutími um seinni þáttinn, en ræðutími um þann fýrri verður
fimm mínútur í fyrri umferð og þrjár mínútur í þeirri síðari.
Séu tvö skyld en umfangsmikil mál rædd saman, lengist ræðutími í fyrri umferð að
loknum framsöguræðum um fimm mínútur, en verður óbreyttur í þeirri síðari.
Komi fram vilji til að ræða sérstaklega afmarkað efni í dagskrármáli, verði varið til
þess allt að þijátíu mínúmm að lokinni framsöguræðu. Kveðji sér hljóðs fleiri en þrír,
áður en þessi umræða hefst, skiptist sá ræðutími jafnt milli þeirra allra, en umræðunni
lýkur með svari framsögumanns.
Þessi tilhögun hefur að öðru leyti ekki áhrif á heimild forseta til breytinga á ræðutíma
samkvæmt ákvæðum starfsreglna um þingsköp.
15