Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 22
Afgreidd mál á Kirkjuþingi 2001
Skýrsla Kirkjuráðs
1. mál, flutt af Kirkjuráði
Þann 1. janúar 2001 tóku gildi starfsreglur um Kirkjuráð nr. 817/2000, sem
Kirkjuþing 2000 hafði samþykkt og afmarkaði betur skyldur ráðsins og verksvið.
I. Störf Kirkjuráðs
Kirkjuráð hefur haldið þrettán fundi frá síðasta Kirkjuþingi. Flestir fundanna voru á
Biskupsstofu. Einnig fundaði Kirkjuráð á Hólum og Löngumýri svo og í Skálholti.
Forseti Kirkjuþings, Jón Helgason hefur setið marga Kirkjuráðsfundi á tímabilinu,
enda mál er varða Kirkjuþing oft á dagskrá. Kirkjuráð þakkar honum traust og gott
samstarf.
Formenn nefnda Kirkjuþings 2000 og varaforsetar Kirkjuþings sátu einn fund ráðsins.
Einnig sátu varamenn í Kirkjuráði einn fund ráðsins vegna undirbúnings Kirkjuþings
2001.
Fundur Samstarfsnefndar Alþingis og Þjóðkirkjunnar var haldinn 3. maí 2001 á
Biskupsstofu. Fundargerðin fylgir skýrslu þessari.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á starfsháttum ráðsins og nýmæli innleidd.
Ráðið hefur skipulagt starfsárið fyrirfram í meginatriðum þannig að tilteknum
viðfangsefnum er raðað á tiltekna fundi. Er þá um að ræða málefni sem vitað er með
vissu fyrirfram að fjalla þarf um t.d. allt er lýtur að ijármálum.
Kirkjuráð hefur sett sér reglur eða viðmiðanir um fundi sína þ.m.t. fundarsköp. Þær
eru aðgengilegar á heimasíðu Kirkjuráðs.
Staða framkvæmdastjóra Kirkjuráðs var auglýst og bárust fimm umsóknir um
stöðuna. Kirkjuráð réð Guðmund Þór Guðmundsson lögfræðing í starfið frá og með 1.
febrúar 2001. Framkvæmdastjóra hefur verið sett erindisbréf og er það eitt af
fylgiskjölum með skýrslu þessari. Ragnhildur Benediktsdóttir lét af störfum sem
framkvæmdastjóri Kirkjuráðs frá sama tíma eftir að hafa gegnt því starfi frá 1988.
Kirkjuráð hefur veitt fé til margra verkefna úr Kristnisjóði og Jöfnunarsjóði sókna auk
þess að sinna lögboðnum verkefnum sjóðanna. Nánari upplýsingar er að finna í 2.
máli Kirkjuþings 2001, íjármál Þjóðkirkjunnar.
Uthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna, Kirkjumálasjóði, Kristnisjóði og Fræðslu-,
kynningar - og útgáfusjóði, fer nú öll fram í desembermánuði vegna næsta árs. Það
auðveldar öllum aðilum að skipuleggja starf sitt fyrir fram. Ákveðið var að auglýsa
úthlutanir úr sjóðunum, að frátöldum Jöfnunarsjóði, fyrirffam vegna ársins 2001 með
tilteknum umsóknarfresti. Umsóknir í Jöfnunarsjóð eru sendar öllum sóknarnefndum
og þykir því ekki þörf á að auglýsa úthlutun sérstaklega.
Starfsmenn Ríkisendurskoðunar komu á fund Kirkjuráðs vegna ályktunar Kirkjuþings
2000 um stofnun ábyrgðardeildar í Jöfnunarsjóði sókna (sjá 20. mál), framsetningu
fjárveitinga svo og um endurskoðun á reikningum Strandarkirkju. Einnig voru rædd
ítrekuð tilmæli Kirkjuþings um að kanna myndun sjálfseignarstofnunar um fasteignir
18