Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 31
Nýjar sóknir og prestaköll
Á síðasta Kirkjuþingi voru stofnsettar tvær nýjar sóknir og prestaköll, þ.e. Vallasókn
og Vallaprestakall, Kjalarnesprófastsdæmi og Grafarholtssókn og
Grafarholtsprestakall, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Kirkjuráð hefur komið að
undirbúningi að stofnun (stofnfundum) sóknanna með hlutaðeigandi próföstum og
prestum, svo og fulltrúum fyrri sókna. Kirkjuráð mun styðja við bakið á sóknunum og
prestaköllunum áffam eins og þörf krefur.
Kirkjubyggingar
Kirkjuráð hefur í huga að reyna nýjar leiðir við kirkjubyggingar í nýjum
byggðahverfum. Er um að ræða að Kirkjuráð, í samráði við bygginga - og listanefnd,
annist um að reisa kirkjur fyrir nýjar sóknir og selji þeim síðan byggingarnar að því
loknu eða afhendi með öðru formi. Er þá horft til kirkjusels í Grafarvogssókn, kirkju
fyrir væntanlega Lindasókn og Grafarholtssókn í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og
Vallasókn í Kjalamesprófastsdæmi. Vitaskuld er þetta háð aðstæðum í hverri sókn svo
og því að samstarf takist við hlutaðeigandi sóknamefndir og aðra ef þörf krefur.
Vonast er til að raðsmíða megi - eða bjóða verkið út í heild og lækka þannig kostnað.
Vandað verður til undirbúnings ekki hvað síst mats á rýmisþörf.
Auðunarstofa á Hólum
Viðræður standa yfir milli Hólanefndar og Kirkjuráðs um Auðunarstofu og önnur mál
sem tengjast Hólum.
Húsnæðismál
Hjálparstarf kirkjunnar flutti á Vatnsstíg í húsnæði það sem Kristnisjóður keypti 1999.
Kostnaður við endurbætur varð nokkru meiri en gert var ráð fyrir. Húsnæðið er gamalt
og friðað að hluta og því erfitt að áætla kostnað með nákvæmni. Heildarkostnaður þ.e.
kaupverð og endurbætur varð þó vel innan eðlilegra marka.
Nokkrar breytingar hafa einnig verið gerðar á Laugavegi 31, m.a. vegna flutnings
Hjálparstarfsins auk upptöku nýs skipurits og endurskoðunar á starfsmannahaldi
samfara því. Þá hefur aukist að starfsfólk sé ráðið tímabundið til verkefna og því lögð
til starfsaðstaða. Breytingamar hafa bætt mjög vinnuaðstöðu í húsinu.
Nauðsynleg viðgerð á þaki Kirkjuhússins fór fram og reyndist kostnaðarsöm. Frekari
nauðsynlegum framkvæmdum var frestað að sinni t.d. málun utanhúss, en væntanlega
verður ráðist í þær á næsta ári.
Fylgiskjöl
Með skýrslu þessari eru lögð fram fylgiskjöl skv. lista sem fylgir þingmálum
Kirkjuþings 2001.
I skýrslu þessari hefur einungis verið stiklað á helstu viðfangsefnum Kirkjuráðs frá
síðasta Kirkjuþingi. Kirkjuráð og starfsmenn þess hefur fjallað um fjöldamörg önnur
mál en hér greinir. Má þar nefna margvíslega þjónustu við sóknarnefndir og aðra
kirkjulega aðila, upplýsingamiðlun af ýmsu tagi, þátttöku í ýmsum samstarfs -og
umbótaverkefnum og margt fleira mætti telja.
Að tillögu allsherjarnefndar var málið afgreitt með eftirfarandi
27