Gerðir kirkjuþings - 2001, Síða 50
Skýrsla Prestssetrasjóðs
6. mál, flutt af Bjama Kr. Grímssyni
Stjórn og starfsmenn
Á þessu starfsári hafa ekki orðið breytingar á stjóm sjóðsins en í henni sitja, Bjami
Kr. Grímsson formaður, Lárus Ægir Guðmundsson og Kristrún Heimisdóttir.
Varamenn eru þau sr. Úlfar Guðmundsson, sr. Agnes M. Sigurðardóttir og Bjarni
Guðráðsson.
Stjórnin hefur haldið tíu stjórnarfundi frá síðasta Kirkjuþingi auk fjölda viimufunda
einstakra stjórnarmanna. Kristrún Heimisdóttir tók sér leyfi ffá störfum í byrjun ársins
vegna náms erlendis og sat sr. Úlfar þrjá stjórnarfundi vegna þess.
Kristín Mjöll Kristinsdóttir hefur gengt starfi eftirlitsmanns prestssetra á þessu áiá og
em henni þökkuð farsæl og vel unnin störf. Sjóðurinn hefur samning við Biskupsstofu
um skjalavörslu, bókhald og fjárvörslu, svo og aðstöðu fyrir skrifstofu.
Stjórnin hefur ákveðið að breyta nokkuð fyrirkomulagi á starfsemi sjóðsins, er unnið
að samningum við nokkra aðila víðsvegar á landinu að þeir taki að sér hluta að starfi
eftirlitsmamis prestssetranna. Er þetta hugsað þannig að auðveldaðra og styttra yrði
fyrir presta að ná í aðila sem gæti tekið allar miimi háttar ákvarðanir varðandi viðhald
og viðgerðir, en allar meiri ákvarðanir yrðu eftir sem áður teknar af stjórn og
framkvæmdastj óra.
Ákveðið var að ráða sérstakan framkvæmdastjóra og hefur starfið verið auglýst. Frarn
til þessa hefur það starf verið frekar óformlegt og skipst milli formanns stjórnar og
eftirlitsmanns, en einnig hafa aðrir stjórnarmenn komið þar að eftir þörfum. Alls hafa
borist nær 80 umsóknir um starfið og er verið að vinna úr þeim.
Starfsemi
Stjórn sjóðsins hefur haft fjölþætt verkefni með höndum nú sem fyrr. Þrátt fyrir
viðvarandi fjárhagserfíðleika var ákveðið að fara ekki í lántöku til lengri tírna þar sem
slíkt myndi kosta verulegar fjárhæðir, sem kannski væri óþarfi ef væntanlegt væri á
þessu ári fjármagn sem niðurstaða af viðræðum ríkis og prestssetranefndar. Vonast
hefur verið eftir allt þetta ár að handan hornsins væru samningar við ríkið um
prestssetrin og að þá kæmi úrlausn á vanda sjóðsins varðandi lausafé og mimrkun
skammtímaskulda.
Samningar við ríkið ættu jafnframt að auðvelda Kirkjuþingi að heimila sölu
ákveðinna eigna sem ekki eru lengur prestssetur en með því móti væri sjóðurinn mun
betur fær um að takast á við þau viðamiklu viðhaldsverkefni sem fyrir liggja.
Hagstæðir samningar náðust við SPRON um vaxtakjör á bráðabirgðafjármögnun
skammtímaskulda og var í því sambandi m.a. horft til þess að ekki liði mjög langur
tími þar til aðstæður sjóðsins myndu batna.
Varðandi viðhald og viðgerðir var reynt að halda sem mest í þá forgangsröðun sem
áður hafði verið ákveðin. Þannig hafa þau verkefni haft forgang, sem snéru að ytri
kápu prestssetranna þ.e. að húsin haldi vatni og vindum og síðan að lagnakerfi þeirra
störfuðu á eðlilegan hátt. Má sjá þess stað í reikningum sjóðsins og þeim lista um
verkefni á einstaka prestssetrum sem fylgir þessari skýrslu. Það er stefna stjórnar
46