Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 53
Kirkjuþing veitir stjórn prestssetrasjóðs heimild til að ráðstafa gamla íbúðarhúsinu á
Utskálum, Garði, Kjalarnesprófastsdæmi til aðila sem mynda félag um að gera það
upp sem sérstakt kirkju- og menningarsetur.
B. Um önnur málefni prestssetrasjóðs
Lögð er rík áhersla á að Kirkjuráð veiti sjóðsstjóm aðstoð við að treysta fjárhag
sjóðsins og er þar einkum horft til sérstakra framlaga, ábyrgða, skuldbreytinga og
fleiri þátta sem stuðla að betra jafnvægi í rekstri og efnahag hans.
Unnið verði áfram eftir fyrirliggjandi viðmiðunarreglum um meðferð greiðslumarks í
sauðfjárbúskap með það að markmiði að heimila flutning þess milli prestssetra og þá
jafnframt að innkalla til notkunar ónotaðan fullvirðisrétt.
Fyrningarsjóður hvers prestsseturs verði færður, þannig að fyrir liggi árlega
tekjufærsla og gjöld með öllum áföllnum kostnaði við rekstur þess ásamt tekjum og
gjöldum prestsseturs sem hefur verið lagt niður en nýtur þjónustuskyldu.
Lögð er áhersla á að stjórn sjóðsins með framkvæmdastjóra hafi gott eftirlit með
framkvæmdum, þannig að verkáætlanir standist og leigjendur geti ekki stofnað til
ósamþykktra útgjalda.
Stjórn prestssetrasjóðs er falið að annast um gerð skýrslu, sem skal leggja fýrir næsta
Kirkjuþing, um ýmsa þætti í rekstri, stefnumörkun og framtíðarskipan sjóðsins og skal
þar einkum horft til eftirfarandi þátta:
Lokið verði úttekt á endurbóta- og viðhaldsþörf prestssetra ásamt áætlun um
kostnað við þær endurbætur.
Skoðað verði sérstaklega hvort ástæða sé til fækkunar prestsseturshúsa í
bæjum og stærri kauptúnum.
Tillögur verði gerðar um þau prestssetur, þar sem gert sé ráð fyrir að stundaður
verði landbúnaður í næstu framtíð og því auglýst sem prestssetur í búrekstri
með fullvirðisrétti í sauðfé.
Skoðað verði hvort rétt sé að prestssetur í sveit, þar sem ekki er gert ráð fyrir
að stundaður sé búskapur, sé flutt til innan sama prestakalls.
Tillögur verði gerðar um stöðu þeirra prestssetra sem ekki eru setin.
Skoðuð verði hlunnindi prestssetra þ.e. núverandi staða og meðferð þeirra,
jafnframt því sem horft verði til nýrra hlunninda sem eru að myndast t.d. í
formi leigu lands undir sumarbústaði o.fl.
49