Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 81
Tillaga að frumvarpi til laga um brottfall laga um kirkjubyggingasjóð nr. 21/1981
16. mál, flutt af Kirkjuráði
1. gr.
Kirkjubyggingasjóður, sem starfar á grundvelli laga nr. 21/1981 og sem stofnaður var
með lögum nr. 43/1954, skal lagður niður og renna í Jöfnunarsjóð sókna, sem starfar á
grundvelli laga um sóknargjöld nr. 91/1987.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2002. Frá sama tíma falla brott lög um
kirkjubyggingasjóð nr. 21/1981.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta
Frumvarp þetta er samið að tilhlutan Kirkjuráðs Þjóðkirkjunnar. í því felst að
kirkjubyggingasjóður, sem stofnaður var með lögum nr. 43/1954, skuli lagður niður.
Lán hafa ekki verið veitt úr sjóðnum undanfarin ár, enda hefur fé ekki verið veitt til
sjóðsins á fjárlögum um árabil og snýst því rekstur hans fyrst og fremst um varðveislu
eigna, sem eru sjóður og útistandandi kröfur hjá sóknum sem hafa fengið lán. Eignum
kirkjubyggingasjóðs er ætlað að styrkja ábyrgðardeild Jöfnunarsjóðs sókna, sem
nýverið hefur verið mynduð. Ábyrgðardeildin veitir ábyrgðir á lánum til sókna
samkvæmt ákveðnum reglum. Með sameiningunni, ef samþykkt verður, er verið að
einfalda stjórnsýslu og bæta þjónustu,
Verði frumvarp þetta að lögum lætur stjórn kirkjubyggingasjóðs af störfum og nefnd
sú sem ætlað er að veita umsögn um umsóknir í sjóðinn um lán er aflögð.
Um 1. gr. Hér er lagt til að sjóðurinn renni í Jöfnunarsjóð sókna. Nýverið hefur verið
mynduð sérstök ábyrgðardeild sjóðsins. Er því eðlilegt að hafa þennan hátt á.
Um 2. gr. Rétt þykir að frumvarp þetta, ef samþykkt verður, öðlist gildi um áramót
2001 - 2002. Það er eðlileg dagsetning og auðvelt að miða öll skil við áramót þegar
hann rennur til Jöfnunarsjóðs sókna. Jafnframt er stjórn kirkjubyggingasjóðs og
umsagnarnefnd sú sem starfar á grundvelli laganna aflögð frá sama tíma.
Send til kirkjumálaráðherra
77