Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 93
Talið er að þessi aðferð geti hentað hér. Kirkjugarðsstjórnir losna þannig við að setja
sjálfar nokkuð viðamiklar reglur, en geta þess í stað notast við grunnreglur um
umgengni í kirkjugörðum. Ef einhver sérstök sjónarmið eða aðstæður eru til staðar,
sem kalla á að þessum grunnreglum sé breytt, getur kirkjugarðsstjórnin samið slíka
reglugerð og beðið um staðfestingu, sbr. 51. gr.
I þessu sambandi skal hvað fyrirmynd snertir t.d. bent á 2. gr. laga nr. 36/1988 um
lögreglusamþykktir.
Um 18. gr.
Orðið utanþjóðkirkjusöfnuður er ekki lengur notað í kirkjulegri löggjöf og því þykir
full ástæða til að fella slíkt orð brott hér, sbr. 3. gr. frv. , og nota þess í stað tilvísun
um önnur trúfélög.
Um 19. gr.
Sjá skýringar við 18 gr.
Um 20. gr.
Hér er miðað við að frumvarp þetta geti orðið að lögum fyrir áramótin 2001/2002. Ef
það gengur ekki eftir er nauðsynlegt að seinka gildistöku á skipun kirkjugarðaráðs, og
að það taki þá fyrst til starfa frá 1. janúar 2003. Þá myndi umboð skipulagsnefndar
kirkjugarðanna og stjórnar Kirkjugarðasjóðs falla niður 31. desember 2002.
Að tillögu löggjafarnefndar samþykkti Kirkjuþing að mæla með frumvarpinu með
eftirfarandi breytingum
1.
3.gr. frumvarpsins breytist svo:
í stað orðanna “utan byggðar eða væntanlegrar byggðar” komi: öræfi eða sjó.
Við 2. málslið bætist: sem og að merkja dreifmgarstað.
Við ákvæðið bætist nýr málsliður svohljóðandi: Sömuleiðis er óheimilt að geyma
duftker ffam að ráðstöfun þess annars staðar en í líkhúsi. Duftker sem ætluð eru til
dreifingar skulu vera úr forgengilegu efni og brennd strax að lokinni dreifmgu.
2.
5.gr. frumvarpsins breytist svo:
I stað “yfirumsjón” í 1. málsl. 1. mgr. komi: tilsjón.
I stað orðanna “Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma” í 2. málsl. 1. mgr. komi:
Kirkjugarðasambandi íslands.
3.
8. gr. frumvarpsins falli brott.
4.
10. gr. frumvarpsins falli brott.
5.
12. gr. frumvarpsins breytist svo:
I stað orðanna “Grafarstærð kistugrafa” í 1. málsl. komi: Grafstæði í nýjum
kirkjugörðum.
89