Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 95

Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 95
Frumvarp til laga um breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar, nr. 78 26. maí 1997 (skipun presta) 24. mál, flutt af dóms- og kirkjumálaráðherra (Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001-2002.) 1. gr. 37. gr. laganna orðast svo: Biskup Islands skipar í embætti sóknarpresta sem og í önnur prestsembætti, sbr. 35., 36., 44. og 45. gr. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 40. gr. laganna: 1. mgr. orðast svo: Biskup Islands veitir þeim embætti sóknarprests sem hlotið hefur bindandi val en ákveður að öðrum kosti veitingu. Sama gildir um veitingu embættis prests skv. 35. gr. 4. málsl. 2. mgr. orðast svo: Kjósi meirihluti kjörmanna að embættið verði auglýst skal sú samþykkt send biskupi Islands til ákvörðunar. 3. gr. 1. málsl. 41. gr. laganna orðast svo: Hafi enginn sótt um prestakall eða embætti er biskupi Islands heimilt að setja prest í embættið í allt að eitt ár. 4. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2001. Athugasemdir við lagafrumvarp þetta. Á undanförnum árum hefur markvisst verið stefnt að því að auka sjálfstæði kirkjunnar, jafnt í íjármálum sem ýmsum öðrum málum. í þessu skyni var veitingarvald embætta sérþjónustupresta, héraðspresta, presta sem eru ráðnir til starfa erlendis og annarra prestsembætta en embætta sóknarpresta flutt frá kirkjumálaráðherra til biskups Islands með lögum um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997. Sama á einnig við um skipun í embætti prófasts. Með þessu voru aukin áhrif biskups Islands um innri málefni kirkjunnar. Með nýjum starfsreglum um presta, nr. 735/1998, sem kirkjuþing samþykkti haustið 1998 á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar varð grundvallarbreyting á reglum um val og veitingu prestsembætta. Samkvæmt þeim reglum velja svonefndar valnefndir, sem nú eru komnar til sögunnar, jafnt sóknarpresta sem aðra presta í sóknum, sbr. 35. gr. laganna. Vegna samræmis er eðlilegt að sami háttur verði hafður á um skipun sóknarpresta og annarra presta og að veitingarvaldið verði hjá biskupi Islands. Lagt er til með frumvarpi þessu að biskup Islands skipi alla presta. I 23. gr. laga nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar er boðið að dóms- og kirkjumálaráðherra skuli leita umsagnar og tillagna kirkjuþings um lagafrumvörp um kirkjuleg málefni er hann hyggst flytja á Alþingi. Samkvæmt ofansögðu lagði dóms- og kirkjumálaráðherra frumvarp þetta fram á Kirkjuþingi í september á sl. ári til umsagnar. Flutt var framsaga fyrir málinu á Kirkjuþingi og óskað var umsagnar um það. Kirkjuþingið fjallaði um málið og 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.