Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2016, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 03.03.2016, Qupperneq 12
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TILBOÐSVERÐ! 2.390 þús. Rnr. 283439 RENAULT MEGANE SP. TOURER Nýskr. 06/13, ekinn 40 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.790.000 HYUNDAI i30 CLASSIC WAGON Nýskr. 06/12, ekinn 98 þús km. bensín, beinskiptur. Verð áður kr. 1.780.000 Rnr. 120696 TILBOÐ kr. 1.380 þús. FRÁBÆR KAUP BMW 320d Nýskr. 08/06, ekinn 86 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.980.000 Rnr. 142996 TILBOÐ kr. 2.290 þús. FRÁBÆR KAUP SUZUKI GRAND VITARA PREM. Nýskr. 06/11, ekinn 130 þús km. bensín, beinskiptur. Verð áður kr. 2.890.000 Rnr. 283074 TILBOÐ kr. 1.990 þús. FRÁBÆR KAUP FRÁBÆR KAUP NISSAN NOTE VISIA Nýskr. 05/12, ekinn 98 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 1.550.000 Rnr. 283504 TILBOÐ kr. 1.250 þús. FRÁBÆR KAUP HYUNDAI i40 COMFORT Nýskr. 08/13, ekinn 35 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.990.000 Rnr. 120694 TILBOÐ kr. 3.490 þús. FRÁBÆR KAUP BMW 318i Nýskr. 02/08, ekinn 45 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.390.000 Rnr. 270442 TILBOÐ kr. 2.590 þús. FRÁBÆR KAUP TILBOÐ BÍLALAND BÝÐUR NOKKRA BÍLA Á EINSTÖKUM KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU ÞÉR GÓÐAN BÍL Á FRÁBÆRU VERÐI! NOTAÐIR BÍLAR GÖNGUM FRÁ FJÁRMÖGNUN Á STAÐNUM WWW.BÍLALAND.IS 1.237 Lágmarksfjöldi atkvæða 87 atkvæði Marco rubio 161 atkvæði Ted cruz 25 atkvæði John Kasich8 atkvæði ben carson 2.383 Minnsti meirihluti 285 atkvæði donaLd TruMp 1.001 atkvæði hiLLary cLinTon 371 atkvæði bernie sanders ✿ Staðan í forkosningum flokkanna tveggja Til að verða forsetaefni Demókrataflokksins þarf atkvæði frá 2.383 af 4.763 fulltrúum á landsþingi flokksins, Til að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins þarf atkvæði frá 1.237 af 2.470 fulltrúum á landsþingi flokksins Bandaríkin Bernie Sanders benti félögum sínum í Demókrataflokknum á að enn ættu forkosningar eftir að fara fram í 35 af 50 ríkjum Bandríkjanna. Hann ætlaði sér alls ekki að gefast upp strax, þótt hann hefði beðið lægri hlut í flestum þeirra 15 ríkja sem búin eru að halda forkosningar. „Leyfið mér að fullvissa ykkur um að við ætlum að fara með baráttu okkar fyrir efnahagslegu réttlæti, fyrir félagslegu réttlæti, fyrir umhverfis- heilbrigði og fyrir friði í heiminum til allra þessara ríkja,“ sagði hann við stuðningsmenn sína í Vermont, þar sem hann vann sinn stærsta sigur. Enda er hann þar á heimaslóðum. Fáir virðast þó telja hann líklegan til sigurs úr þessu. Clinton bar sigur úr býtum í átta af þeim tólf ríkjum, sem kosið var í á þriðjudaginn. Hún er þar með komin með yfirburðastöðu í kappi þeirra Sanders um að verða for- setaefni demókrata, þegar Bandaríkja- menn velja sér forseta í nóvember. Hjá Repúblikönum styrkti síðan hinn yfirlýsingaglaði Donald Trump stöðu sína til muna, helstu ráðamönn- um flokksins til mikillar skelfingar. „Þetta er flokkur Lincolns,“ sagði repúblikaninn Paul Ryan, forseti full- trúadeildar Bandaríkjaþings, og vísaði óbeint til þess að Donald Trump hefði ekki brugðist harkalega við þegar hann frétti að einn helsti forsprakki Ku Klux Klan samtakanna hafði lýst yfir stuðningi við hann. „Ef einhver vill verða frambjóðandi Repúblikanaflokksins, þá duga engin undanbrögð eða leikaraskapur,“ sagði Ryan. „Þeir verða að afneita öllum samtökum og stefnumálum sem eru byggð á þröngsýni. Þessi flokkur nær- ist ekki á fordómum fólks.“ Trump bar sig hins vegar manna- lega, sagðist ekki þekkja Ryan sérlega vel en þeim ætti örugglega eftir að koma ágætlega saman. „Ég er maður sem sameinar fólk. Ég veit að fólk á eftir að eiga svolítið erfitt með að trúa því, en trúið mér: ég sameina fólk,“ sagði Trump við blaðamenn. „Flokkurinn okkar er að stækka.“ Hann sagðist ekki ætla að sýna Hillary Clinton neina miskunn, færi svo að þau tvö yrðu forseta- efni flokkanna tveggja: „Þegar öllu þessu er lokið ætla ég að ráðast gegn Hillary Clinton, að því gefnu að henni verði leyft að fara í fram- boð.“ Trump og Clinton með ótvíræða forystu Ofurþriðjudagurinn svonefndi skilaði Donald Trump nokkuð öruggu forskoti hjá Repúblikanaflokknum, helstu ráðamönnum flokksins til skelfingar. Hillary Rodham Clinton náði einnig að skjóta Bernie Sanders langt aftur fyrir sig. Kjósendur á kjörfundi demókrataflokksins í denver í colorado á þriðjudaginn. Fyrirkomulag kosninga er misjafnt eftir ríkjum. sums staðar eru kallaðir saman fundir þar sem atkvæði eru greidd. nordicphoTos/aFp Staðan nú Til að verða kosinn forsetaefni repúblikanaflokksins þarf at- kvæði frá 1.237 af 2.470 fulltrúum á landsþingi flokksins í júlí. Minnsti meirihluti Trump 285 Cruz 161 Rubio 87 Kasich 25 Carson 8 Til að verða kosinn forsetaefni demókrataflokksins á landsþingi flokksins í júlí þarf atkvæði frá 2.383 af 4.763 fulltrúum á lands- þingi flokksins í júlí. Minnsti meirihluti Clinton 1.001 Sanders 371 8 ríki hafa skilað Clinton betri niðurstöðu en Sanders. Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 3 . m a r S 2 0 1 6 F i m m T U d a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 7 -4 D 3 0 1 8 A 7 -4 B F 4 1 8 A 7 -4 A B 8 1 8 A 7 -4 9 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.