Fréttablaðið - 03.03.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 03.03.2016, Síða 18
Líðan barna og unglinga á Íslandi: Staða og þróun. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnandi Rannsókna og greininga. Nám, grunnleggjandi færni og breytt skipulag skóladagsins. Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálarfræði við norska tækni og vísindaháskólann í Trándheimi og Há- skólann í Reykjavík. Niðurstöður skýrslu UNICEF um börn á Íslandi sem líða efnislegan skort. Lovísa Arnardóttir, réttindagæslufulltrúi UNICEF og höfundur skýrslunnar. „Ég er bara með samviskubit, svo geðveikt gagnvart börnunum” - Um samræmingu fjölskyldu og atvinnu í nútímasamfélagi. Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og Marta Einarsdóttir, sérfræðingur við Rannsókna- og þróunar- miðstöð Háskólans á Akureyri. Styttri vinnuvika í Reykjavík. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, um tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar. Atvinnulífið og stytting vinnudagsins. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Pallborðsumræður: Heimili og skóli, Félag skólastjórnenda í RVK, Félag grunn- skólakennara, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, SAMFOK, Barnaheill, Hrói höttur barnavinafélag, og Helga Arnfríður Haraldsdóttir barnasálfræðingur, ásamt fyrirlesurum. 4. mars kl. 8.30-10.30 Opinn fundur um börn og nútíma- samfélag Háskólanum í Reykjavík, st. V101 Fundarstjóri verður Nanna Kristín Christiansen, uppeldis- og mennt- unarfræðingur og ritstjóri Krítarinnar. BANDALAG KVENNA Í REYKJAVÍK Opinn fundur um börn og nútímasamfélag Líðan barna og unglinga á Íslandi: staða og þróun. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnandi Rannsókna og greininga. Nám, grunnleggjandi færni og breytt skipulag skóladagsins. Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálarfræði við norska tækni og vísindaháskólann í Trándheimi og Háskólann í Reykjavík. Niðurstöður skýrslu UNICEF um börn á Íslandi sem líða efnislegan skort. Lovísa Arnardóttir, réttindagæslufulltrúi UNICEF og höfundur skýrslunnar. „Ég er bara með samviskubit, svo geðveikt gagnvart börnunum” - Um samræmingu fjölskyldu og atvinnu í nútímasa félagi. Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og Marta Einarsdóttir, sérfræðingur við Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri. Styttri vinnuvika í Reykjavík. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, um tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar. Atvinnulífið og stytting vinnudagsi s. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Pallborðsumræður: Heimili og skóli, Félag skólastjórnenda í RVK, Félag grunnskólakennara, Íþrótta- og Ólympíusamb nd Íslands, SAMFOK, Barnaheill, Hrói höttur barnavinafélag, og Helga Arnfríður Haraldsdóttir barnasálfræðingur, ásamt fyrirlesurum. Fundarstjóri verður Nanna Kristín Christia sen, uppeldis- og menntunarfræðingur og ritstjóri Krítarinnar. 4. mars kl. 8.30-10.30 Háskólanum í Reykjavík, st. V101 neytendur Landsbankinn Íslandsbanki Arion banki Debetkort Árgjald debetkorts ↥ 695 kr. ↥ 750 kr. ↥ 790 kr. Debetkortafærsla ↥ 17 kr. ↥ 19 kr. 18 kr. Úttekt í hraðbanka erlendis 2% af upphæðinni 2% af upphæðinni 2% af upphæðinni Greitt með debetkorti erlendis 1% af upphæðinni 1% af upphæðinni 1% af upphæðinni Úttekt í hraðbanka viðkomandi banka, fyrir aðra en viðskiptavini 0,75% af upphæðinni ↥ 375 kr. 155 kr. Kreditkort Innlend úttekt reiðufjár, þóknun 2,20% 2,20% 2,20% Innlend úttekt reiðufjár, úttektargjald 120 kr. 115 kr. Í hraðbanka 110 kr. Hjá gjaldkera 180 kr. Erlent úttekt reiðufjár, þóknun VISA 2,75% Mastercard 2,5% 2,75% 2,75% Erlent úttekt reiðufjár, lágmarksþóknun ↥ VISA 800 kr. VISA 690 kr. VISA 690 kr. Mastercard 440 kr. ↥ Mastercard 690 kr. Önnur gjöld Millifærslur í síma 100 kr. Innborgun á reikning í öðrum banka 100 kr. 125 kr. 120 kr. Staða og færslur lesnar upp af starfsmanni 95 kr. ↦ 95 kr. 75 kr. Afgreiðsla utan hefðbundins tíma 250 kr. 290 kr. ↥ Hækkun gjaldskrár milli ára ↦ Lækkun gjaldskrár milli ára ✿ Þjónustugjöld bankanna vegna debet- og kreditkorta Um árabil hefur Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Yggdrasils, verið í fararbroddi meðal fólks sem talað hefur fyrir notkun á lífrænt vottuðum vörum. Hún segir úrvalið af slíkum vörum hafa aukist til mikilla muna undanfarin ár. Nú sé til dæmis hægt að fá flestar tegundir lífrænt vottaðrar „þurr- vöru“ (sem er  matvara  önnur en ferskvara) bæði í stórmörkuðum og heilsuvöruverslunum. Hafi fólk hug á að kaupa fremur lífrænt sé gott að byrja á að skipta út matvörum sem neytt sé reglulega. Þar séu megin- flokkarnir olíur, hafraflögur, mjöl og grjón, jurtamjólk, te, hnetur, fræ og þurrkaðir ávextir, safar, gos, snakk, kex og súkkulaði. „Eins er ráð að kaupa lífrænar ferskvörur þegar og þar sem þær eru í boði,“ segir  Oddný Anna, en  vegna inn- flutningstakmarkana og verndar- tolla á landbúnaðarvörur hafi ekki verið mögulegt eða fýsilegt að flytja þær vörur inn í takt við eftirspurn. „Stórt skref var þó stigið í byrjun þessa árs þegar fyrstu lífrænu eggin komu á markað sem var mikið fagnaðarefni, enda er lífræn vottun eina tryggingin fyrir því að ekki hafi verið notað erfðabreytt fóður.“ Oddný segir mikilvægt að neyt- endur þrýsti á stjórnvöld að styðja lífræna aðlögun í landbúnaði og hvetja bændur til að framleiða líf- rænar landbúnaðarafurðir. „Eins vil ég benda fólki á Matarmarkað Búrsins í Hörpunni sem er haldinn þrisvar til fjórum sinnum á ári þar sem það getur birgt sig upp af líf- rænum og öðrum íslenskum vörum beint frá bónda.“ En er þetta dýrara? „Lífrænt vottaðar vörur eru dýrari, en munurinn er mismikill,“ segir Oddný Anna. „Eftir að ég byrjaði að kaupa lífrænar vörur fór ég að bera meiri virðingu fyrir matnum og nánast hætti að henda mat, enda er matarsóun eitt af helstu samfélags- meinum nútímans. Ef maður er nýtinn og kaupir minna af unnum og tilbúnum réttum og gerir sjálfur meira frá grunni er hægt að tileinka sér lífrænan lífsstíl án þess að kostn- aðurinn fari úr böndunum.“ Þá  segir hún ekki mega  gleym- ast að ódýrasta leiðin sé að rækta sitt eigið lífræna grænmeti. „En áhugi á því hefur aukist verulega að undanförnu.“ Neytandinn Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Tollar og takmarkanir í veginum Lífrænt ræktað grænmeti og vottaður mjólkurmatur. FréttABLAðIð/GVA Eldfasta mótið gert eins og nýtt Matvæli og fita geta loðað fast við eldföst mót að notkun lokinni, sér- staklega ef svo óheppilega hefur viljað til að matur hafi náð að brenna við í fatinu. Hægt er að bregðast við með að setja í mótið væna skvettu af grófu salti og nudda svo upp úr volgu vatni með bursta eða svampi. Kortum og viðskiptum við viðskipta- bankana þrjá fylgir ýmis kostnaður og gjöld. Fréttablaðið tók saman helstu gjöld sem fylgja debet- og kreditkortum hér á landi, en töl- urnar eru byggðar á núverandi verð- skrám bankanna sem má finna á heimasíðum þeirra. Mikilvægt er að neytendur átti sig á þeim gjöldum og kostnaði sem geta fylgt þessari þjónustu. Sér í lagi nýleg gjöld. Á síðasta ári fóru bankar til að mynda í fyrsta sinn að rukka gjald fyrir úttekt annarra í hraðbanka en viðskiptavina. Ýmis gjöld hafa einnig hækkað milli ára. Árgjöld debetkorta hafa hækkað milli ára hjá öllum bönk- unum og eru þau lægst hjá Lands- bankanum. Ódýrast virðist jafnframt að nota debetkort hjá Landsbank- anum.  Ódýrast virðist  hins vegar vera  að nota VISA-kreditkort frá Arion banka, en MasterCard frá Landsbankanum.  Þó ber að hafa í huga að hjá öllum bönkunum fá viðskiptavinir með vildarkjör afslátt af árgjaldi og fríar debetkortafærslur upp að ákveðnum fjölda. Samanburður milli bankanna er auk þess ekki alltaf einfaldur þar sem nöfn og skilmálar geta verið ólíkir fyrir svipaða þjónustu. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir brýnt að neytendur fylgist vel með gjöld- um bankanna og sýni þeim aðhald. „Bankarnir eru með þessar upp- lýsingar inni á sínum heimasíðum, þannig að þeir neytendur sem vilja skoða þetta þeir geta það. Þessi gjöld eru mjög fjölþætt. Að sjálfsögðu eiga Hvað borgar þú bankanum þínum í gjöld fyrir þjónustu? Bankar landsins rukka viðskiptavini sína fyrir ýmsa þjónustu. Það getur kostað nokkur hundruð króna að nota debetkort í öðrum banka en sínum eigin og allt að 800 krónum að taka út fé erlendis. Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is neytendur að fylgjast vel með þessu,“ segir Jóhannes. Hann segir að neytendur þurfi að vera vakandi í öllum viðskiptum. Ef þeir eru ósáttir eigi þeir að koma þeim skilaboðum til skila. „Ef að neytanda blöskra gjöldin, þá er ekkert að því að þeir hreinlega mót- mæli. Til dæmis þegar verið er að taka upp ný gjöld geta þeir mótmælt formlega með því að senda sínum viðskiptabanka bréf. Þannig gætu neytendur sýnt aðhald. Á fákeppnis- markaði er enn frekari þörf á að sýna það," segir Jóhannes Gunnarsson.  ráð Matur Til að lesa fréttir Með smáforriti PressReader fær fólk aðgang að fréttum, auk dagblaða og tímarita um heim allan. Birting hvers blaðs er svo löguð að hverju því tæki sem fólk notar til þess að nálgast efnið, símum, spjaldtölvum eða öðrum tölvum. Sumt er ókeypis, eins og til dæmis bæði Fréttablaðið og Fréttatíminn hér heima, auk fjölda annarra rita. Önnur rit er hægt að kaupa stök, eða í áskrift. UMsAgnir Flestir virðast ánægðir með appið og virkni þess. Stórkost- legt þegar það er í lagi, segir einn sem veitir umsögn sína hjá Apple, en kvartar þó undan því að forritið sé stundum brokkgengt. Hjá appveitu Android fær forritið 3,4 stjörnur af fimm og 3,9 af fimm hjá Microsoft Store fyrir Windows 10. App Pressreader 3 . M A r s 2 0 1 6 F i M M T U D A g U r18 F r é T T i r ∙ F r é T T A B L A ð i ð 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 7 -1 1 F 0 1 8 A 7 -1 0 B 4 1 8 A 7 -0 F 7 8 1 8 A 7 -0 E 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.