Fréttablaðið - 03.03.2016, Side 24

Fréttablaðið - 03.03.2016, Side 24
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is A Ð A L F U N D U R Brú félag stjórnenda heldur aðalfund sinn mánudaginn 14. mars 2016 kl. 19:00 í húsnæði félagsins að Skipholti 50d. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundastörf • Kosningar til stjórnar Kosið skal um: • Formann til eins árs • Varaformann • Ritara • Gjaldkera • Einn varamann • Nefndir • Skoðunarmenn reikninga. Félagar fjölmennum !! Stjórnin. Öll rök hníga að því að byggja í Vatnsmýri og stjórnmálamenn ættu að fylgja niður-stöðum Rögnunefndar. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sagði í þessu blaði hinn 11. nóvember sl. að Icelandair Group væri fylgjandi því að skoða Hvassahraun sem stað fyrir innanlandsflugið eins og Rögnunefndin lagði til. „Verði það niðurstaðan að Reykjavíkurflugvöllur víki þá hefur verið sýnt fram á þjóðhagslega hagkvæmni þess að byggja upp í Hvassahrauni,“ sagði Björgólfur. Meirihluti kaus með því að Reykjavíkurflugvöllur færi úr Vatnsmýri eftir árið 2016 í atkvæðagreiðslu 17. mars 2001. Aðeins 37 prósent mættu á kjörstað og því var niðurstaðan ekki bindandi. Öll rök hníga hins vegar að því að loka flugvellinum. Rögnunefndin komst að þeirri niðurstöðu að Hvassahraun væri besti kosturinn fyrir innanlands- og millilandaflug. Á þessu ári stendur til að fjárfesta fyrir 20 milljarða króna til að stækka Leifsstöð. Þessi fjárfesting er nauðsynleg til að mæta auknum straumi ferðamanna strax í dag. Samhliða henni þarf hins vegar að skoða til hlítar alla valkosti fyrir framtíð flugsins. Fram kemur í greiningu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á alhliða flugvelli í Hvassahrauni að heildarábati af uppbyggingu flugvallar þar sé 82-123 milljarðar króna. Niðurstaða Hagfræðistofnunar er að samlegðaráhrif innanlands- og millilandaflugs yrðu til bóta fyrir þjóðina. Í raun má Hvassa hraunsflugvöllur vera 82-123 milljörð- um dýrari en allur kostnaður vegna Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar, áður en bygging flugvallar í Hvassahrauni verður þjóðhagslega óhagkvæm fjárfesting. Í sömu greiningu kemur fram að ábati af uppbyggingu Vatnsmýrar sé metinn á bilinu 52-73 milljarðar króna. Á síðustu öld voru gerð meiriháttar skipulagsmistök í Reykjavík. Mistökin fólust í því að byggja upp úthverfi og teygja borgina lengra í stað þess að þétta hana. Þetta gerir það að verkum að borgin minnir meira á safn lítilla bæja en eiginlega borg. Lýðheilsusjónarmið og peningaleg sjónarmið mæla með þéttingu byggðar. Núverandi meirihluti í borginni hefur ráðist í metnaðarfullt verkefni sem felst í að loka „sárum“ og þétta byggð innan borgarmarkanna. Þetta mun auka lífsgæði íbúa Reykjavíkur mikið og gera Reykjavík að betri og fallegri borg. Vatnsmýri er eitt risa- stórt sár innan borgarmarkanna og vera flugvallarins þar er fullkomin tímaskekkja. Það væri mjög óskynsamlegt að byggja ekki í Vatnsmýri enda er Vatnsmýri eiginleg auðmýri og menningarmýri. Ungt fólk vill búa í borgum, ekki úthverfum, og vill geta reitt sig á aðra samgönguval- kosti en einkabílinn enda eru almenningssamgöngur í uppsveiflu. Þessi þróun sést víða um heim. Fólk vill búa nálægt hvert öðru. Bílar menga og eru ekkert sérstaklega töff. Það er hins vegar töff að rækta líkamann og stunda heilbrigðan lífsstíl. Að þessu sögðu er mikilvægt að stjórnmála- og kaup- sýslumenn standi við fyrri yfirlýsingar, hætti að vera með- virkir með pópúlistum landsbyggðarinnar og hefji áætlun um flutning innanlandsflugsins úr Vatnsmýri. Það græða allir á því, Reykvíkingar og íbúar landsbyggðarinnar. Auðmýri Í viðtali við Morgunblaðið um búvörusamninga sagði forsætisráðherra á dögunum: „Það er búið að undir- rita þessa samninga, og málið er frá.“ Þess vegna er það fagnaðarefni að fjármálaráðherrann sagði í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi þann 29. febrúar að samningarnir yrðu lagðir fyrir Alþingi. Orðrétt voru orð fjármálaráðherrans þessi: „Fyrst varðandi samráð við þingið þá veit þingmaðurinn auðvitað að þessir samningar eru gerðir með fyrir- vara um samþykki Alþingis og þeir verða lagðir hér fyrir og ræddir á Alþingi.“ Samningarnir eru fráleitir, sagt er að með þeim verði kvótakerfi í mjólkuriðnaði afnumið. Það á að gera eftir fimm ár en áður en til þess kemur á að endurskoða samninginn svo það er ekkert í hendi um að þessi breyting verði. Ég er ekki á móti stuðningi við bændur, ég tel að við eigum að verja fjármunum til að halda landinu í byggð. En það skiptir máli hvaða aðferðum er beitt og það skiptir máli hve miklum fjármunum við verjum til þess arna. Það er bjargföst skoðun mín að það er beinlínis fáránlegt að hækka nú fjárframlög sem fara í stuðning við bændur. Við höfum annað við 900 milljónir á ári að gera en að bæta þeim við styrkjaupphæð til land- búnaðar. Við eigum þvert á móti að gera áætlun um að draga úr styrkjum og koma á samkeppni í afurða- sölunni. Við eigum að afnema tollvernd og auka þannig við samkeppni á markaði. Sannleikurinn er sá að þetta er framsóknarsamn- ingur gerður á milli framsóknarmanna í bakherbergj- um. Það sem verra er, skynsamari framsóknarmenn lutu í lægra haldi fyrir þeim óbilgjarnari. Samráð hefur ekkert verið, en nú hefur fjármála- ráðherrann staðfest að samningurinn verði lagður fyrir Alþingi og ræddur þar. Því ber að fagna. Samningarnir fara fyrir Alþingi, segir ráðherra Valgerður Bjarnadóttir, alþingismaður. Vatnsmýri er eitt risastórt sár innan borgarmark- anna og vera flugvallarins þar er full- komin tímaskekkja. Ég er ekki á móti stuðn- ingi við bændur, ég tel að við eigum að verja fjármunum til að halda landinu í byggð. Björgun Thors „Vil ég koma að því að hjálpa til að koma Íslandi úr þessum ógöngum? Já. Get ég komið með peninga inn í kerfið núna? Nei,“ sagði Björgólfur Thor í fréttaþættinum Kompás í október 2008. Tilefnið var hrunið og möguleg ábyrgð hans á því. Rúmum átta árum síðar situr Björgólfur á lista ríkustu manna heims og fer upp um 294 sæti á milli ára. Auðæfi hans eru metin á 206 milljarða króna. Kári Stefáns­ son stendur nú fyrir undirskrifta­ söfnuninni Endurreisn um aukið fé í heilbrigðiskerfið. Er þetta ekki kjörið tækifæri fyrir Björgólf að stíga fram, opna budduna og gefa smotterí til góðgerðarmála? Er ekki endurreisn andstæðan við hrun? Alþýðukarlar Alþýðuflokkurinn fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli sínu. Flokkurinn hefur raunar ekki verið til síðan hann sameinaðist öðrum í Samfylkingunni fyrir 16 árum, en það stoppar menn ekki í því að blása til veglegrar dagskrár. Í tilefni hátíðahaldanna verða haldnir átta fyrirlestrar af átta málsmetandi körlum en engri konu. Það er svona álíka nútíma­ legt og Alþýðuflokkurinn. Jóhanna Sigurðardóttir sagði eftirminni­ lega: „Minn tími mun koma,“ þegar hún tapaði formannskjöri Alþýðu­ flokksins á sínum tíma – en miðað við afmælishátíðina er hennar tími ekki enn runninn upp. Kannski eftir önnur 100 ár. snaeros@frettabladid.is 3 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð SKOÐUN 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 7 -2 0 C 0 1 8 A 7 -1 F 8 4 1 8 A 7 -1 E 4 8 1 8 A 7 -1 D 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.