Fréttablaðið - 03.03.2016, Side 32

Fréttablaðið - 03.03.2016, Side 32
Á vefsíðu bandarísku sjónvarps- konunnar Opruh Winfrey, oprah. com, eru tekin saman tíu atriði í förðun sem gætu látið líta út fyrir að viðkomandi sé eldri en hann í raun er. Mistök 1 Of mikill farði Farði sest í fínar línur og hrukk- ur og minnkar náttúrulegan ljóma húðarinnar. Nota ætti farða aðeins til þess að jafna út litamismun og óþarfi er að láta hann þekja hvern blett andlitsins. Mistök 2 Baugar huldir Varast ætti að nota of mikinn hyljara á bauga undir augu. Hylj- arinn gæti falið skugga undir augum en hann beinir athyglinni einnig að því svæði þar sem þar myndast oft snemma fínar línur vegna þess að húðin undir augun- um er svo þunn. Mistök 3 Mjög dökkir varalitir Dökkar varir virðast vera minni en þær eru þar sem dökkir litir láta yfirleitt allt líta út fyrir að vera minna en það er. Og flest- ir vilja frekar láta líta út fyrir að vera með stærri varir en minni. Til þess að gera það ætti því að nota bjartari liti. Mistök 4 Púðurnotkun Ung húð ljómar og endurkastar ljósi. Púður kemur í veg fyrir að ljós endurkastast og ýkir hrukkur í húðinni. Mistök 5 svartur augnblýantur Ekki sleppa að nota augnblýant, hann lætur augun líta út fyrir að vera meira opin, en betra er að nota frekar brúnan lit í stað þess svarta. Látið litinn líka dreifa að- eins úr sér en ekki hafa línurnar of breiðar, þá geta augnalokin sýnst þyngri en þau eru. Mistök 6 Of mikill varablýantur Ef línur í kringum munninn eru of áberandi gætu varirnar litið út fyrir að vera strekktar. Ef vara- blýantur er notaður ætti hann að vera í sama lit og varirnar, ekki varaliturinn. Mistök 7 Maskari á neðri augnhár Ef neðri augnhár eru máluð eða augnblýantur settur undir augun gæti það látið húðina í kringum þau líta út fyrir að vera slappari en hún er og gert bauga meira áber- andi. Mistök 8 Enginn kinnalitur Rjóðar kinnar gefa líflegra útlit og ef kinnaliturinn er borinn rétt á getur hann gefið smávegis lyft- ingu. Best er að brosa við spegl- inum og setja svo kinnalitinn rétt fyrir ofan mesta holdið, dreifa svo litnum með hringlaga hreyfingu í átt að gagnauganu með stórum bursta. Mistök 9 Varalitað beint úr stautnum Útlínur varanna mýkjast með aldr- inum og því er algengt að varalit- urinn smitist út fyrir. Notið því fingur eða varalitarbursta til að setja varalitinn á, leggið áherslu á innri hluta varanna og dreifið svo litnum í átt að útlínunum. Mistök 10 Of dökkur augabrúnalitur Náttúrulegur litur augabrúnanna lýsist með árunum þannig að sá litur sem kona notar á þrítugsaldri virðist of dökkur á henni þegar hún er komin á sextugsaldurinn. Notið lit sem er örlítið ljósari en sá náttúrulegi. AlgEng Mistök Förðun getur látið okkur líta vel út og dregið fram sterkustu hliðar okkar en hún getur líka virkað þveröfugt og látið okkur líta verr út. Ekki sleppa að nota augnblýant, hann lætur augun líta út fyrir að vera meira opin, en betra er að nota frekar brúnan lit í stað þess svarta. NORDIC PHOTOS/GETTY NORDIC PHOTO/GETTY Notið fingur eða varalitabursta til að bera varalitinn á í stað þess að nota hann beint úr stútnum, þá smitast hann síður út fyrir. 3 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X X Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Síðar skyrtur 12.900 kr. 2 litir: kremhvítt og svart. Stærð 38 - 50. Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Nýjar vörur streyma inn Stærðir 38-58 Bragðgóðir réttir, fullir af þarflegum næringarefnum. Hollusturettir F ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 2 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 7 -5 7 1 0 1 8 A 7 -5 5 D 4 1 8 A 7 -5 4 9 8 1 8 A 7 -5 3 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.