Fréttablaðið - 03.03.2016, Page 36

Fréttablaðið - 03.03.2016, Page 36
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Sýningin Verk og vit, sem er haldin í íþrótta- og sýningarhöll- inni í Laugardal, verður opnuð klukkan 17 í dag. Hún er til- einkuð byggingariðnaði, skipu- lagsmálum og mannvirkjagerð. Markmið sýningarinnar er að kynna vörur, þjónustu og tækni- nýjungar en ekki síður að koma á viðskiptatengslum á milli fag- aðila og auka vitund almennings um byggingamál, skipulagsmál og mannvirkjagerð. Sýningin er nú haldin í þriðja sinn. „Um 90 sýnendur eru skráð- ir til leiks og munu þeir kynna vörur sínar og þjónustu ásamt því sem efst er á baugi hjá hverj- um fyrir sig,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmda- stjóri sýningarinnar. Hún segir gríðarlegan áhuga hafa verið fyrir sýningunni í ár en sýnendur eru meðal ann- ars byggingaverktakar, verk- fræðistofur, tækjaleigur, skólar, fjármálafyrir tæki, ráðgjafarfyr- irtæki, starfsmannaþjónustur, heildsölur og sveitarfélög. Ingibjörg Gréta segir mikinn hug í sýnendum. „Það hefur verið mjög gaman að vinna með þeim fjölda sýnenda sem taka þátt. Það er mikill hugur í fólki og það er spennt að kynna það sem er efst á baugi í hverri grein fyrir sig,“ segir hún. Mikil ánægja hefur verið með fyrri sýningar að sögn Ingibjarg- ar. „Samkvæmt viðhorfskönnun sem gerð var meðal sýnenda kom fram að 92 prósent töldu grund- völl fyrir því að halda sýninguna aftur. Þá voru tæplega 90 prósent sýnenda mjög ánægð með sýn- inguna.“ Fyrstu tveir dagar sýningar- innar í ár eru hugsaðir fyrir fag- aðila en á laugardag og sunnu- dag verður sýningin opin öllum. Ráðstefna á vegum Landsbank- ans og Samtaka iðnaðarins um stöðu mála í mannvirkjagerð á Ís- landi verður sett samhliða opnun sýningarinnar í dag en auk þess bjóða sýnendur upp á ýmiskonar fyrir lestra á meðan á henni stend- ur. Þar verður meðal annars rætt um nýjar áherslur í skipulagsmál- um, tækninýjungar í myndavéla- eftirliti, fjölnotatækið gröfuna og ef veður leyfir verður flogið með fjarstýrðri þyrlu yfir Laugardals- höll. „Við erum með fjölbreytta fagsýningu og hvetjum alla sem áhuga hafa að kynna sér það sem sýnendur hafa upp á að bjóða.“ allar nánari upplýsingar, m.a. um opnunartíma og miðaverð má að finna á verkogvit.is mikill hugur í fólki Stórsýningin Verk og vit verður opnuð í Laugardalshöll í dag og stendur til 6. mars. Hún er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð og er markmiðið að kynna vörur, þjónustu og tækninýjungar á þessu sviði. ingibjörg segir mikla ánægju hafa verið með fyrri sýningar. mynd/bjarney lÚðVÍKSdóttir fyrstu tveir dagar sýningarinnar eru hugsaðir fyrir fagaðila en á laugardag og sunnudag verður hún opin öllum. Það hefur verið mjög gaman að vinna með þeim fjölda sýnenda sem taka þátt. Það er mikill hugur í fólki. Ingibjörg Gréta Gísladóttir Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is Við erum á Verk og vit í Laugardalshöll 3.-6. mars. Kynnum nýju vörumerkin okkar, Grove bílkrana og Potain byggingarkrana í bás A3. Bás A3 IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | Sími 414 2700 | idnvelar.is - hin heimsþekktu Beta verkfæri og fyrirtækjavörur fást nú á hagstæðu verði hjá Iðnvélum Þú getur treyst Beta ÍSlenSKUr iðnaðUr Kynningarblað 3. mars 20162 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 7 -2 F 9 0 1 8 A 7 -2 E 5 4 1 8 A 7 -2 D 1 8 1 8 A 7 -2 B D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.