Fréttablaðið - 03.03.2016, Síða 80

Fréttablaðið - 03.03.2016, Síða 80
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja SKATTADAGUR Orator og Deloitte 6. mars Háskóla Íslands kl. 12-18 Ókeypis aðstoð við framtalsskil FREE TAX ASSISTANCE March 6th from 12-18 at the University of Iceland SKATTAD GUR Orator g Deloitte 6. mars Háskóla Íslands kl. 12-18 Ókeypis aðsto ið framtalsskil FREE TAX A ISTANCE March 6th from 12-18 at the University of Iceland MEÐ PÓSTINUM Í DAG 8BLS BÆKLINGUR Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2 Um daginn rakst ég á nýja læksíðu frá samtökum sem kalla sig Hermenn Óðins. Yfir 500 lækarar. Þeir eiga það allir sameiginlegt að vera með jafn litla heila og þeir eru með getnaðar- limi. Líka konurnar. Þetta er svona fólk sem notar orð eins og þjóðarstolt í staðinn fyrir útlendingahatur. Og hatur er ekki einu sinni rétta orðið, því þetta er bara ótti. Yoda sagði: „Fear leads to anger, anger leads to hate.“ Hatur er í raun blanda af ótta og heimsku. Ég mun ekki valda neinum usla ef ég kalla Hermenn Óðins heimska, hrædda karlpunga. Líka konurnar. En hvað er heimska? Orðið er dreg- ið af orðinu „heima“. Sá sem fer aldrei út. Sá sem felur sig bakvið glugga- tjöldin og lætur sjónvarpið mata sig á ruslfæði upplýsingaaldarinnar. Þeir halda að vonda brúna fólkið ætli að gera innrás og borða börnin þeirra. Hættu aldrei að trúa á Grýlu. Ég er ekki að segja að þeir fari aldrei til útlanda. Nokkrir þeirra hafa örugglega dansað illa á diskó- teki á Tenerife. Eða gubbað á gang- stétt í Köben. En það er ekki nóg. Sem trúarbragðanörd, blöskrar mér titill hópsins. Óðinn ferðaðist útum allt. Hann fræddist um fram- andi menningarheima. Hann bauð útlendingum í heimsókn. En sem grínisti, aftur á móti, er ég þakklátur fyrir þetta fólk. Því að svona fólk er eini minnihlutahópurinn sem má gera grín að. Sem ég reyndar benti þeim á í skilaboðum á veggnum þeirra. Þeir bentu mér á ég ætti reyndar nokkra Fb vini í grúppunni. Ég benti þeim á að það væru annaðhvort íronískir hipsterar í leit að aðhlátursefni eða fólk sem datt oft á hausinn í æsku. Þá eyddu þeir skilaboðum mínum. Þá skrifaði ég ný skilaboð sem sögðu „Hey afhverju eydduði þessu? Ég var fyndið og allt!“. Þeir eyddu því líka. Þannig að hér er ég. Reynið að eyða þessu. Heimskur er heimaalinn Hugleikur Dagsson Bakþankar 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 A 6 -F E 3 0 1 8 A 6 -F C F 4 1 8 A 6 -F B B 8 1 8 A 6 -F A 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.