Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.03.2016, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 18.03.2016, Qupperneq 14
Kíktu á úrvalið í vefversluninni á michelsen.is/fermingar Laugavegi 15 og Kringlunni Sími 511 1900 - www.michelsen.is Fossil Riley 30.800 kr. Casio Retro 12.000 kr. Daniel Wellington Sheffield Frá 23.500 kr. Skagen Ditte 36.100 kr. Fallegar fermingar- gjafir ASA HRINGUR 9.700 kr. ASA LOKKAR 9.800 kr. ASA HÁLSMEN 9.700 kr. – fyrir stelpur visir.is Viðtalið má hlusta á í lengri útgáfu á Vísi, í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið. „Það eru heilmiklir möguleikar fólgnir í því að fara að hjálpa fólki með króníska lífstílssjúkdóma,“ segir Guðmundur. Fréttablaðið/Ernir Ef þú sefur kannski tvo tíma á nóttu en djöflast samt í ræktinni, borðar hollt og vinnur vinnu þar sem þú ert undir miklu álagi, þá hefur það takmörk- uð áhrif. 1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r14 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð Erum við aftarlega á merinni í alþjóðlegum samanburði hvað varð- ar mataræði? „Þetta er vandamál um allan heim, sem við sjáum bæði í þróuðum ríkjum og þróunarríkjum. Þessi vandamál eru úti um allt.“ Hvað má ég borða? Þegar talað er um mataræði þá þykir mörgum flókið að átta sig á hvað sé hollt og hvað henti hverjum og einum. „Ákveðnar matvörur eru skaðlegar. Við vitum að transfitur eru skaðlegar fyrir alla. Þær eru mest í unnum matvælum, þessu sem kemur ekki frá náttúrunni. Svo geturðu sagt eins og með sykur og fínunnin kol- vetni, að það eru mjög fáir sem þola mikla neyslu á því til lengdar. Vís- indin segja okkur að þetta séu hlutir sem við þurfum að passa okkur betur á,“ útskýrir hann. „Það hefur verið vandamál að fólk kann ekki að lesa næringarinni- haldslýsingar á matvælum og treystir bara á að allt sem er markaðssett sem heilsu-, íþrótta- eða náttúru-eitthvað sé bara gott fyrir þig. Það er ekkert endilega þannig.“ Hann telur að betur mætti gera í merkingum á matvörum. „Það myndi hjálpa almenningi mikið. Það er til merking sem heitir Græna skráargatið sem hjálpar okkur aðeins. En við þurfum skýrari merk- ingar. Almenna reglan er sú að því meira sem við vinnum matinn þeim mun meiri líkur eru á því að sú vara sé óholl.“ Það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að taka upp nýjan lífsstíl. „Það er langbest að horfa á allan lífsstílinn. Það er ekki nóg að taka fyrir eitt atriði. Ef þú sefur kannski tvo tíma á nóttu en djöflast samt í ræktinni, borðar hollt og vinnur vinnu þar sem þú ert undir miklu álagi, þá hefur það takmörkuð áhrif. Það þarf að horfa á hvernig maður lifir lífinu í heild til að það hafi jákvæð áhrif.“ Meiri keyrsla á Íslandi Er streita mikið vandamál í dag? „Já, ég hugsa það. Ég bjó í Svíþjóð í nokk- ur ár og maður fann áþreifanlegan mun þegar maður flutti heim. Það er allt öðruvísi tempó hérna á Íslandi. Meiri keyrsla, hraði og neysluhyggja. Svíarnir verðleggja tíma sem þeir eyða í frístundir og að dóla sér meira en við. Okkur liggur meira á að eign- ast hluti og vera fín og flott.“ Guðmundur hefur starfað í Vest- mannaeyjum sem heimilislæknir milli þess sem hann sinnir starfi sínu á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi. Í Vestmannaeyjum hefur hann hjálpað nokkrum sjúklingum sínum að breyta um lífsstíl. Hann segir það hafa bætt líf þessa fólks. „Maður sá það greinilega, það voru t.d. sjúklingar sem voru komnir með það sem við köllum efnaskiptavillu. Sjúklingar með of háa blóðfitu, blóð- þrýsting og aukið insúlínviðnám. Slíkar mælingar sýna fyrsta stig þess að menn séu að þróa með sér sykursýki týpu 2. Með því að breyta mataræði og leiðrétta lífsstílinn þá sá maður dramatískan mun. Þetta hefur maður séð endurtekið hjá fólki. Það er til hellingur af rannsóknum í kringum þetta sem sýna fram á sama hlut.“ Gekk það þá til baka? „Við sáum að blóðprufur bötnuðu og blóðþrýst- ingur lækkaði. Við höfum séð dæmi um að fólk geti minnkað lyfin sín og jafnvel hætt á þeim. Því leið betur og kílóin duttu af sjálfkrafa. Það er alveg klárt að svona lífsstílbreytingar hafa ótrúlega mikil áhrif.“ Sláandi munur Að sögn Guðmundar gæti það sparað samfélaginu miklar fjárhæðir ef ráð- ist yrði að rót vandans. „Ég rakst nýlega á leiðaragrein í bandaríska heimilislæknablaðinu þar sem voru teknar saman stórar rannsóknir þar sem verið var að skoða áhrif lífsstíls á tíðni krón- ískra sjúkdóma. Það var eiginlega sláandi hvað munurinn var mikill á þessum hóp þar sem er tekið fyrir annars vegar fólk sem stundar heil- brigðan lífsstíl, reykir ekki, drekkur ekki, hreyfir sig reglulega, borðar tiltölulega hollt og heldur sér við kjörþyngd. Þessi hópur var með allt að 80-90% lægri tíðni á krónískum sjúkdómum samanborið við þá sem voru með ekkert af þessu. Þetta er það sem við köllum faraldsfræðilegar rannsóknir. Þarna erum við að skoða hópana þannig að það er ekki hægt að fullyrða um orsakasamhengið en samhengið er samt svo sláandi. Munurinn er svo gríðarlegur. Það er nánast hægt að fullyrða að það yrði pottþétt töluverð breyting ef sá hópur sem stundar versta lífsstílinn myndi færa sig yfir í hinn hópinn.“ Meiri fiskur fyrir börn Mataræði barna, erum við að gera nógu vel þar? „Það má alltaf gott bæta. Ég held að við þurfum að leggja aukna áherslu á að börn borði ávexti og græn- meti. Það er aldrei nógu mikið af því. Fiskneysla er hlutur sem maður hefur séð fara minnkandi hjá yngsta aldurshópnum. Unga kynslóðin borðar mun minna af fiski en eldri kynslóðirnar. Það er klárlega hlutur sem við mættum halda betur að unga fólkinu,“ segir hann. Guðmundur segir sykurneyslu barna og unglinga vera of mikla. „Hún er alltof mikil, sérstaklega hjá strákum, þar er hún langt yfir því sem WHO mælir með. Stór rannsókn sem kom fyrir nokkrum árum sýndi að fyrir hverjar 150 hitaeiningar sem voru í formi sykurs umfram venju- lega neyslu, þá jókst tíðnin á sykur- sýki í þeim hópi um eitt prósent en ef þessar kaloríur komu úr einhverju öðru var það 0,1 prósent. Svo birtist rannsókn núna í október sem sýndi að ef offeit börn, sem voru komin með þessa efnaskiptavillu sem er undanfari sykur sýkinnar, minnkuðu neyslu sína á sykri niður í tíu prósent af því sem áður var þá snarminnkaði efnaskiptavillan.“ Til þess að koma skilaboðunum áleiðis stendur Guðmundur ásamt fleirum að ráðstefnu um áhrif mataræðis á langvinna sjúkdóma í Hörpu í maí. „Fyrir rúmu ári fékk ég hugmynd um að halda ráðstefnu um þessi mál. Ég talaði um þetta við mág minn og við fórum að velta þessu fyrir okkur. Við höfðum samband við marga þekkta erlenda fræðimenn á þessu sviði og könnuðum áhuga þeirra á að koma til Íslands. Þeir höfðu allir mikinn áhuga á að koma og heim- sækja Ísland. Svo fór boltinn að rúlla, við töluðum við fleiri aðila, og styrktaraðila. Núna í maí næst- komandi verður ráðstefna í Hörpu, um áhrif mataræðis, sykurs, fitu og nútímamataræðis á króníska lífs- stílssjúkdóma.“ Styður Kára og endurreisnina Mikið hefur verið rætt um stöðu heil- brigðiskerfisins undanfarið enda telja margir það komið að þolmörk- um. Kári Stefánsson hefur staðið fyrir undirskriftasöfnuninni Endurreisn. is. Guðmundur segist styðja hug- myndir Kára. „Ég styð að við eigum að vera metnaðarfull þegar kemur að heil- brigðiskerfinu okkar. Við höfum haft gott heilbrigðiskerfi og stært okkur af því en glansinn hefur svolítið farið af því núna síðustu árin. Svo er aftur spurningin ef þessi krónísku lífsstíls- vandamál fara að aukast í takt við það sem er að gerast í heiminum, hversu langt mun það fleyta okkur og hversu miklu ætlum við að veita í heilbrigðismálin? Ef við ætlum að leysa þessi lífsstílsvandamál með þeim tækjum og tólum sem við höfum notað hingað til þá efast ég um að þetta fjármagn muni duga okkur langt. Við þurfum að fara að hugsa hvernig við getum nýtt fjármagnið betur sem við erum að veita í þenn- an málaflokk,“ segir hann og segist sannfærður um að með því að setja pening í forvarnir sé verið að spara heilbrigðiskerfinu miklar upphæðir. 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 D 0 -B D 6 8 1 8 D 0 -B C 2 C 1 8 D 0 -B A F 0 1 8 D 0 -B 9 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.