Fréttablaðið - 18.03.2016, Page 26

Fréttablaðið - 18.03.2016, Page 26
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Litten Nyström og Þórunn Eymundardóttir skipa hönnunarteymið RoShamBo á Seyðisfirði. myNd/RoSHamBo Von er á legubekk úr tré undir dýnuna á markað á næstu mánuðum. RoShamBo sjá um framleiðsluna sjálfar eftir pöntun. „Við erum myndlistarmenn, hand- verksmenn og hönnuðir í einum kokteil, eins konar þríhöfða hönn- unarteymi sem unnið hefur saman frá 2012. Verkefnalistinn er afar fjölbreyttur en öll tengjast verk- efnin þó menningu og hönnun og því að skoða hvaða tækifæri liggja ónýtt í kringum okkur,“ útskýr- ir Þórunn Eymundardóttir sem ásamt Hönnu Christel Sigurkarls- dóttur og Litten Nyström skip- ar hönnunarteymið RoShamBo á Seyðisfirði. RoShamBo kynnti á Hönn- unarMars dýnu sem fyllt er með ís- lenskri ull. Þór- unn segir teym- ið hafa unnið að þróun dýnunnar í þrjú ár og nú er hún komin á markað. Þær ann- ast framleiðsluna sjálfar á verkstæði sínu á Seyðisfirði. „Dýnan Ró er nýjasta verk- efnið okkar og það stærsta. Hún er sprottin upp úr vangaveltum um það hráefni sem er í kringum okkur. Við könnuðum hvort við gætum gert dýnu úr íslenskri ull og notum mislitu ullina sem fyll- ingu. Áklæðið er 100% ullaráklæði frá danska fyrirtækin Kvadrat. Þetta er hágæðaáklæði sem bæði er ofið og þæft og er það þétt að það mátti sleppa öllum millilögum úr bómull, sem annars er yfirleitt notuð í dýnur en með því hefðu eigin leikar ullarinnar tapast,“ út- skýrir Þórunn. „Dýnan er afar fal- leg og dásamlegt að sofa á henni en það er löng hefð fyrir ullar- dýnum í Skandinavíu. Ullardýnur eru meðal annars tilvaldar fyrir þá sem vilja huga að heilsunni og náttúrunni,“ segir Þórunn. Dýnuna má nota á marga vegu. Sem yfirdýnu ofan á aðra dýnu, eða beint ofan á þéttan rimlabotn eða ofinn taubotn. Þórunn segir dýn- una vel nýtast inni í stofu, sam- anbrotna á gólfi eða á legubekk. „Við höfu m ei n n - ig hannað legubekk undir dýnuna sem hægt er að panta hjá okkur. Dýnuna er hægt að panta í öllum hefðbundn- um rúmstærðum og einnig er hægt að sérpanta aðrar stærðir,“ segir Þórunn. Nánar má forvitnast um dýn- una Ró á síðunni www.ro-selec- tion.com og undir roselection á Facebook. Dýna úr íslenskri ull Hönnunarteymið RoShamBo á Seyðisfirði kynnti dýnu úr íslenskri ull á nýliðnum HönnunarMars. Dýnan er fyllt með mislitri ull sem annars er lítið notuð. Þá hefur teymið einnig hannað trébekk undir dýnuna og framleiðir eftir pöntun. commaIceland Smáralind ÞVÍ ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ 1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 D 0 -C C 3 8 1 8 D 0 -C A F C 1 8 D 0 -C 9 C 0 1 8 D 0 -C 8 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.