Fréttablaðið - 18.03.2016, Side 28

Fréttablaðið - 18.03.2016, Side 28
Útgefandi | 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 Ábyrgðarmaður Svanur Valgeirsson Veffang visir.is umSjónarmaður auglýSinga Brundís Hauksdóttir| bryndís@365.is | s. 512-5457 „Ég var ekki með neina hugmynd um hvernig kjól ég vildi þegar ég byrjaði að líta í kringum mig. Ég þræddi nokkrar brúðarkjólaleig- ur hér heima en fann ekkert sem féll að mínum smekk. Ég fór því að skoða mig um á netinu og datt niður á ameríska vintage-verslun á eBay sem selur ónotaða kjóla af gömlum lagerum. Ég ákvað að panta þann sem mér leist best á en datt ekki í hug að hann myndi passa. Á þeim tíma þekkti ég engan sem hafði keypt brúðarkjól á netinu og bjóst í besta falli við að hann færi í bún- ingasafnið. Kjóllinn var hins vegar bjóst við að kjóllinn færi í búningasafnið Leikkonan Hafdís Helga Helgadóttir og guðmundur rúnar ingvarsson gengu að eiga hvort annað í Garðakirkju 11. ágúst 2012. Brúðkaupið var sveipað fortíðarljóma og voru það ekki síst föt brúðhjónanna sem gerðu það að verkum. Veðrið var hryssingslegt en það bætti bara á sjarmann. myndir/dagbjÖrt eilÍf Hafdís var ekki lítið ánægð þegar í ljós kom að kjóllinn smellpassaði. dagurinn var að sögn Hafdísar æðislegur frá upphafi til enda. mun meiri vinna fór í að finna flauelsborðann í mittið en kjólinn sjálfan. ódýr þannig að ég ákvað að slá til.“ Hafdís var ekki lítið ánægð þegar í ljós kom að kjóllinn smell- passaði. „Móðir mín, sem er mjög handlagin, minnkaði aðeins púffið á ermunum og bætti á hann borða. Annað þurfti ekki að gera.“ Rétti borðinn var reyndar vand- fundinn. „Ég var búin að bíta það í mig að vera með dökkan flauels- borða í mittinu en komst að því að flauelsborðar eru vandfundnir hér heima.“ Hafdís brá því á það ráð að panta borða af franskri antikversl- un á netinu. „Ég var sífellt á póst- húsinu að sækja nýja og nýja send- ingu af borðum en enginn þeirra hentaði. Það endaði með því að vin- kona móður minnar fann espresso- brúnan borða í New York sem smell- passaði.“ Kjóllin fór vel við kjólföt Guð- mundar sem eru frá upphafi síðustu aldar. „Guðmundur vann í Herra- fataverslun Kormáks og Skjaldar fyrir nokkrum árum og eignaðist á þeim tíma jakka sem hann notaði aldrei. Hann er frá 1920 og merkt- ur fyrri eiganda sínum. Hann ákvað að láta laga hann fyrir brúðkaupið svo hann passaði betur. Buxurnar, sem eru frá 1930 og líka merktar fyrri eiganda, voru svo í einkaláni frá Gumma Jör,“ upplýsir Hafdís. Dagurinn var að sögn Hafdísar æðislegur frá upphafi til enda. Veislan var haldin í Garðaholti þar sem sveitastemningin ræður ríkj- um. „Við fengum reyndar alveg hræðilegt veður, sem var auðvitað ekki planið, en í hreinskilni sagt bætti það bara á sjarmann.“ Hafdís Helga fer með aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Fyrir fram- an annað fólk sem er sýnd í kvik- myndahúsum um þessar mundir, en þetta er hennar fyrsta aðalhlut- verk í bíómynd í fullri lengd. Mynd- in, sem er rómantísk, hugljúf og skemmtileg, hefur fengið afar góða dóma og er Hafdís að vonum ánægð. „Ég hef ekki heyrt neitt nema gott sem er auðvitað voða gaman.“ vera@365.is Fagnaðu stóra deginum í Hörpu Fáðu tilboð: veislur@harpa.is eða 528 5070 Við sjáum um að útfæra brúðkaupsveisluna með þér, eins og þú vilt hafa hana. Úrvals aðstaða, glæsilegir salir og hagstætt verð — og útsýnið er innifalið. brÚðkaup kynningarblað 18. mars 20162 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 D 0 -D F F 8 1 8 D 0 -D E B C 1 8 D 0 -D D 8 0 1 8 D 0 -D C 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.