Fréttablaðið - 18.03.2016, Síða 58

Fréttablaðið - 18.03.2016, Síða 58
Hér er allt að smella. Iðnaðarmennirnir eiga bara eftir að t e n g ja n o k ku r ljós,“ segir Þórdís Jó h a n n e s d ó t t i r myndlistarkona glaðlega þar sem hún er í Hafnarborg að leggja loka- hönd á uppsetningu sýningarinnar Umgerð sem hún er höfundur að ásamt Ingunni Fjólu Ingþórsdótt- ur. Hugsteypuna kalla þær stöllur sig þegar þær vinna saman eins og nú. Eiga það líka sameiginlegt að stunda meistaranám í myndlist við Listaháskóla Íslands. „Við settum þessa sýningu upp í haust í lok október í Ketilhúsinu. Ágústa Kristófersdóttir, safnstjóri hér í Hafnarborg, sá hana þar og bað okkur um að koma með hana hingað,“ lýsir Þórdís sem segir þær Ingunni Fjólu mjög ánægðar með salinn. „Það er líka svo gaman að fá að setja sýninguna upp aftur, það er ekki oft sem innsetningar eru settar upp oftar en einu sinni og nýtt samhengi verður til þegar þær eru aðlagaðar öðru rými. Fyrir norðan voru svalir sem fólk gat horft af og séð allt verkið í einu. Hér er ekki slíku til að dreifa heldur setjum við sýninguna þann- ig upp að mörg sjónarhorn skapist og fólk þurfi að þræða sig gegnum innsetninguna til að finna þau. Hér eru fleiri veggir en þungamiðjan er í miðjum sal.“ Þórdís viðurkennir að það krefj- ist nánast verkfræðikunnáttu að setja svona sýningu upp. „Það er dálítil kúnst því hún samanstendur af ljósmyndum, máluðum flötum, teikningum og ljósaskúlptúrum og áherslan er á samspilið þar á milli. Svo kemur þátttaka gesta líka inn í. Þeir geta fangað áhugaverð sjónar- horn á sýningunni á símana sína og deilt þeim til okkar gegnum Twitter, Instagram eða tölvupóst. Við vörpum þeim myndum aftur jafnóðum inn á skjái í Hafnarborg, þannig að sýningin er marglaga og lífleg.“ Hún segir þátttöku gesta hafa verið góða á Akureyrarsýn- ingunni. Þar hafi verið einn skjár fyrir aðsendar myndir, nú séu þeir þrír á mismunandi stöðum og sam- hengið sé ólíkt. „Sumar myndirnar varpast á önnur verk, sumar á gólf- ið en aðrar eru skýrar. Það er erfitt að lýsa þessu því ljósin auka líka á áhrifin.“ Ljósaprógrammið er sjálfvirkt og endurtekur sig með vissu millibili en hversu lengi þarf fólk að standa við til að sjá allar útgáfur innsetn- ingarinnar? „Það gæti tekið allan daginn,“ svarar Þórdís glaðlega. „Þó ljósalúppan hjá okkur taki styttri tíma þá eru svo mörg smáatriði sem leynast inn á milli. Þú verður bara að koma í kvöld og sjá herleg- heitin.“ Já, það er sem sagt í kvöld sem sýningin Umgerð verður opnuð í Hafnarborg, klukkan 20 að hafn- firskum tíma. gun@frettabladid.is Litagleði, teikningar, vídeó og ljósaskúlptúrar Myndlistartvíeykið Hugsteypan opnar sýninguna Umgerð í kvöld í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar leggur þrívíð innsetning undir sig sýningarrýmið og teygir anga sína um veggi og gólf aðalsalar safnsins. Um listakonurnar Þær Ingunn Fjóla og Þórdís út- skrifuðust báðar úr myndlistar- deild Listaháskóla Íslands árið 2007. Sem Hugsteypan hafa þær sýnt í Kling & Bang, Listasafni Ár- nesinga, Listasafni Akureyrar og Galleríi Ágúst, auk samsýninga. Þórdís og Ingunn Fjóla að vinna að innsetningunni í Hafnarborg. FréttABLAðIð/VILHeLm ÚTGÁFUVEISLA Í dag kl. 17 í Eymundsson Skólavörðustíg. Allir velkomnir. Atburður sem hendir tvo drengi í friðsælu sjávar þorpi á Vesturlandi hefur óhugnanlegar afleiðingar áratugum síðar. Mögnuð og spennandi saga eftir Ingva Þór Kormáksson. „Þetta er mjög flott sýning og þrátt fyrir að við séum með þemað fólk þá er viðfangsefnið ótrúlega fjöl- breytt,“ segir Hlynur Hallsson, sýn- ingarstjóri ljósmyndasýningarinnar Fólk / People, sem verður opnuð á morgun kl. 15 í Listasafninu á Akur- eyri. Á sýningunni getur að líta verk eftir sjö listamenn sem eiga það sameiginlegt að vinna með ljós- myndir. „Fólk hefur áhuga á fólki. Fólki í sinni fjölbreyttu mynd. Það er ein- faldlega grunnurinn að þessu og svo nálgast ólíkir listamenn sama verk- efnið á jafn ólíkan máta. Við veljum inn á sýninguna bæði listamenn og verk sem eru mjög ólík, bæði varðandi fram- setningu og inntak. Þarna er til að mynda eins konar plakataveggur sem er sería eftir Hallgerði Hall- grímsdóttur af ungu fólki að koma heim af djamminu í dagrenningu. Síðan er kvikmyndatenging hjá Ine Lamers en hún sýnir reyndar líka 45 mínútna mynd þar sem er fylgst með konu í ólíkum hlutverkum. Svo er Hrafnkell Sigurðsson með dáldið abstrakt myndir þar sem fólkið sést ekki en maður finnur fyrir nær- veru þess í hinni frægu sjóstakka- seríu. Wolfgang Tillman er með myndir úr neðanjarðarlestunum í London þar sem fólk er á ferðinni á háannatíma. Hrefna Harðar- dóttir er með ellefu athafnakonur á sínum uppáhaldsstað, þetta eru eins konar uppstillingar og það eru líka myndirnar hans Harðar sem notar votplötutækni frá lokum 19. aldar til að taka myndir af fólki á miðaldardögum og skapar þannig stemningu liðins tíma. Svo má ég til með að nefna ákaflega fallega þrett- án mynda seríu sem er öll tekin á sömu sekúndunni en það eru afar mörg sjónarhorn og smáatriði í hennar verkum sem gaman er að skoða. magnus@frettabladid.is Fólk hefur áhuga á fólki í sinni fjölbreyttu mynd mynd/BArBArA ProBSt, með LeyFI KucKeI + KucKeI, BerLIn 1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r30 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 D 0 -A E 9 8 1 8 D 0 -A D 5 C 1 8 D 0 -A C 2 0 1 8 D 0 -A A E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.