Fréttablaðið - 18.03.2016, Side 66

Fréttablaðið - 18.03.2016, Side 66
Ég hef alltaf haft áhuga á leiklist alveg frá því ég var smástelpa í Hlíðaskóla. Anna Flosadóttir kenndi mér leiklist þar og það er óhætt að segja að þar hafi áhuginn kviknað. Í kjölfarið leiddist ég hálf blint út í ferlið,“ segir Gríma Krist- jánsdóttir leikkona, sem er um þessar mundir að undirbúa loka- verkefnið sitt í leiklistarskólanum CISPA í Kaupmannahöfn. Afar erfitt virðist vera fyrir ungt fólk að  komast í leikaranám hér á Íslandi. Flestallir sem hyggjast leggja í slíkt nám reyna að þreyta inntökupróf í Listaháskóla Íslands sem fram fer annað hvert ár en aðeins tíu nemendur komast inn hverju sinni. „Ég fór þrisvar sinnum í inntöku- prófið í Listaháskólanum og auð- vitað var það mikið svekkelsi að komast ekki inn. Ég var staðráðin í því að láta það ekki stoppa mig og fór í leikaranám til Danmerkur. Í dag er ég bara mjög þakklát fyrir þá reynslu sem ég hef fengið hérna úti. Ég hef kynnst fólki í bransanum hvaðanæva úr heiminum sem er mikilvægt í þessum bransa,“ segir Gríma þakklát og bætir við að hún sé spennt að koma heim til Íslands og halda áfram að leika. Margir hafa eflaust tekið eftir því að Gríma fer með eitt af aðalhlut- verkum kvikmyndarinnar Reykja- vík eftir Ásgrím Sverrisson sem frumsýnd var í síðastliðinni viku. Hún hlaut frábæra dóma og var meðal annars kölluð senuþjófur myndarinnar. „Ég var hæstánægð með hlut- verkið, frábært tækifæri og mikill heiður að fá að leika á móti Atla Rafni. Þegar ég þáði hlutverkið í myndinni var hann meðal annars ástæðan fyrir því að ég stökk út í djúpu laugina, því það er mikill heiður að fá að leika á móti svona reynslumiklum og flottum leik- ara,“ segir Gríma og bætir við að sér hafi þótt afar leiðinlegt að geta hafa ekki getað verið viðstödd frumsýninguna. Gríma hefur talsverða reynslu í leiklistarbransanum og hefur meðal annars unnið mikið með leikkonunni Margréti Vilhjálms- dóttur. Þá var hún ein af þeim sem stofnuðu leikhúsið Norðurpólinn á Seltjarnar nesi aðeins tvítug að aldri. Í dag er Gríma með verk í vinnslu og er væntan leg til lands- ins í byrjun apríl þar sem hún mun taka þátt í Vinnslunni sem fram fer í Tjarnarbíói. „Vinnslan er byggð á hugmynd frá Bretlandi, þar sem listamenn úr öllum áttum opna verkin sín og kynna þau fyrir fólki. Verkið sem ég kem til með að kynna heitir Ódauðlegt og fjallar um ljótleik- ann. Ég ákvað að kanna sambandið milli ljótra hugsana sem berjast um í höfðinu á okkur og þeirrar niður- bælingar sem kemur í kjölfarið, hvað ef við bjóðum bara ljótleik- ann velkominn?“ segir Gríma létt í bragði. gudrunjona@frettabladid.is Hvað ef við bjóðum ljótleikann velkominn Leikkonan Gríma Kristjánsdóttir hefur undanfarnar vikur vakið at- hygli fyrir leik sinni í kvikmyndinni Reykjavík eftir Ásgrím Sverris- son. Um þessar mundir er Gríma í leiklistarnámi í Kaupmannahöfn. Gríma þykir eiga stórleik í kvikmyndinni Reykjavík sem nýlega var frumsýnd.mynd/ Halla maRín Uppspretta ánægjulegra viðskipta VIÐ KYNNUM Nýjar og vandaðar íbúðir á fallegum útsýnisstað við Holtsveg 37 og 39 í Urriðaholti, Garðabæ. Hönnun húsanna er sérstak lega glæsileg með rúmgóðum svölum og stórum gluggum. Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Vandaðar inn­ réttingar og tæki og steinn á borðum í eldhúsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en votrými flísalögð. Bæði húsin eru að sjálfsögðu með lyftu. Verð frá 30,9 m. kr. Afhending haust 2016. Innréttuð sýningaríbúð til sýnis Sölusýning föstudaginn 18 mars milli 13-14 & þriðjudaginn 22 mars milli 17-18 Hannes Steindórsson Löggiltur fasteignasali 699 5008 hannes@fastlind.is Stefán Jarl Martin Löggiltur leigumiðlari Aðstoðarmaður fasteignasala 892 9966 stefan@fastlind.is Kristján Þórir Hauksson Aðstoðarmaður fasteignasala 696 1122 kristjan@fastlind.is Vertu velkomin Ég fór þrisvar sinnum í inntöku- prófið í ListaHáskóLanum og auðvitað var það mikið svekkeLsi að komast ekki inn. Ég var staðráðin í því að Láta það ekki stoppa mig. 1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r38 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 D 0 -B D 6 8 1 8 D 0 -B C 2 C 1 8 D 0 -B A F 0 1 8 D 0 -B 9 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.