Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008
HelgarblaS PV
flokkinn.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamaÖur skrifar: trau.
Óhætt er að tala um Sjálfstæðis-
flokkinn sem flokk fjölskylduvelda.
Valdamiklar fjölskyldur hafa ætíð
verið mjög áberandi í sögu flokks-
ins og hafa meðlimir þeirra gegnt
valdamiklum embættum fyrir
flokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt
frá stofnun ver-
ið stærsti
stjórn-
mála-
flokk-
landsins með höfuðáherslu á frelsi
og framþróun í þjóðfélaginu. Af
forystumönnum og áhrifavöldum
flokksins má flnna fjöldann allan
af meðlimum voldugra fjölskyldna.
Ættir Engeyinga og Briemara hafa
líklega verið þær ættir sem mest
áhrif hafa haft í gegnum tíðina og
setja sterkan svip á sögu Sjálfstæð-
isflokksins. Þessar tvær ættir höfðu
mikil ítök í stjórnmálum landsins
allt frá síðari hluta 19. aldar og fram
á lok þeirrar síðustu. Enn í dag sitja
fjölskyldumeðlimir á Alþingi.
Þá hefur ætt rutt sér til rúms í
Sjálfstæðisflokknum á síðstu árum
tengslafólk Geirs H. Haarde forsæt-
isráðherra og formanns flokksins.
Eiginkona hans, mágkona, tengda-
dóttir og besti vin-
ur stjúpsonar
hans hafa
öll gegnt
áhrifa- fi.
stöðum
fyrir Sjálf-
stæðis-
Geir H. Haarde Formaður Sjálfstæðisflokksins
tilheyrir nýjasta fjölskylduveldi flokksins,
Þórðarsonleggnum. Eiginkona hans, mágkona,
tengdadóttir og besti vinur stjúpsonar hafa öll
gegnt áhrifastoðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þekkt víða
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla ís-
lands, segir íslenska stjórnmála-
sögu einkennast af mjög öflugum
fjölskylduveldum. Hann bendir á
að veldin eigi ekki aðeins við um
Sjálfstæðisflokkinn heldur líka aðra
flokka, hérlendis sem og erlendis.
„Það eru vissulega nokkrar ættir í
Sjálfstæðisflokknum sem hafa verið
mjög öflugar. Það eru bæði til sterk-
ar ættir sem eiga sögu langt aftur í
tímann og nýlegri dæmi. Engeyj-
arættin er sennilega þekktust og
Thorsararnir voru mjög öflugir á
sínum tíma. Thor Thors kom jafn-
vel til greina sem forseti en talað
var um að það hafi verið of mikið að
bræðurnir væru báðir í æðstu
embættum. Nýjasta dæmið
um fjölskylduveldi er fólk-
ið í kringum forsætisráð-
herra," segir Ólafur.
„Hins vegar tel ég
> þetta ekkert bundið
við Sjálfstæðisflokk-
■' inn því við höfúm
mörg dæmi úr öðr-
um flokkum þar sem
tilteknar fjölsky'ldur
hafa verið öflugar í
pólitík. Líklega hef-
ur þetta verið heldur
meira hér á landi
en annars stað-
\ i
Björn Bjarnason Dóms-
málaráðherra er sonur Bjarna
Benediktssonar, fyrrverandl
forsætisráðherra, og þvi af
hinni frægu Engeyjarætt.
ÞÓRÐARSON
■ Geir H. Haarde,
alþingismaður, forstæðisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins.
■ Inga Jóna Þórðardóttir,
oddviti borgastjórnarflokks Sjálfstæðismanna og
eiginkona Geirs.
m Herdís Þórðardóttir,
alþingismaöur, systir Ingu Jónu.
m Andri Óttarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og besti vinur
Borgþórs Einarssonar, sonar tngu Jónu.
■ Kristln Hrefna Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
fiokksins og unnusta Borgþórs.
Valdamiklar fjölskyldur hafa ráöið ríkjum i Sjálfstæðisflokkn-
um. Tvær þeirra, Engeyingar og Briemarar, hafa líklega haft
einna mest áhrif í gegnum tíðina og fjöldi fjölskyldumeðlima
verið í framvarðasveit flokksins. Ólafur Þ. Harðarson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, segir íslenska stjórn-
málasögu einkennast af mjög öflugum fjölskylduveldum.
ENGEYINGAR
■ Benedikt Sveinsson,
alþingismaður og forseti þings.
m Bjarni Benediktsson,
alþingismaður og forsætisráðherra, sonur Benedikts.
■ Péturs Benediktssonar,
alþingismaður, bróðirBjarna Benediktsonar ráðherra.
m Björn Bjarnason,
aiþingismaður og ráðherra, sonurBjarna Benedikts-
sonar ráðherra.
■ HalldórBlöndal,
alþingmaðurog ráðherra, systursonur Bjarna
Benediktssonar ráðherra.
m Bjarni Benediksston,
aiþingismaður. Bjarni Benediktsson ráðherra var
afabróðir Bjarna.
m Ragnhildur Helgadóttir,
alþingismaður. Hálfsystir eiginkonu Benedikts
Sveinssonar.
BRIEMARAR
■ Pétur Hafstein,
amtmaöur og alþingismaður.
m Hannes Hafstein,
alþingismaðurog fyrsti ráðherra landsins.
m Jóhann Hafstein,
alþingismaður, ráðherra og formaður
Sjáifstæðisfiokksins.
m Pétur Hafstein,
fyrsti formaður Heimdallar
m Júlíus Hafstein,
borgarfulltrúi og sendiherra.
■ Skúli Thoroddsen,
sýslumaður, aiþingismaður og forseti þings.
■ ÞórðurThoroddsen,
alþingismaður, bróðirSkúla Thoroddsen.
■ Sigurður S. Thoroddsen,
atþingismaður, sonurSkúia Thoroddsen.
m Skúli S.Thoroddsen,
alþingismaður. SonurSkúla Thoroddsen
m GunnarThoroddsen,
alþingismaður og forsætisráðherra.
■ GunnlaugurBriem,
alþingismaður.
■ Stefán Stefánsson,
atþingismaður, bróðirDavíðs frá Fagraskógi.
Móðir Stefáns var afsama legg Briemættar og Davíð
Oddsson.
■ Davið Oddsson,
alþingismaðurog forsætisráðherra. Forfaðir Davlðs
var ÓlafurJóhann Briem, sonur Gunnlaugs Briem.
THORSARAR
■ ÓlafurThors,
alþingismaður og forsætisráðherra. Myndaði
fyrstu ríkistjórnina undir forystu Sjálfstæðisflokksins.
■ ThorThors,
alþingismaður og sendiherra, bróðir Ólafs.
MATTHIESEN
■ EinarÞorgilsson,
aiþingismaður.
m Matthías Á. Mathiesen,
alþingismaður og ráðherra, barnabarn Einars
Þorgilssonar.
■ Árni M. Mathiesen,
alþingismaður og ráðherra.
m Þorgils Óttar Mathiesen,
bæjarfulltrúi.