Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Page 10
10 FÖSTUD/v'GUR 23. MA( 2008
Fréttir DV
Edward Kennedy
Yfirgefur sjúkrahúsiö eftir að
hafa greinst meö heilaæxli.
c m
mmM Wl JXfnÉ pB Kennedy komst afslysstað en
Kb PHI MaryJoKopechneáttiekkiþví
HR WjmJgM gEBHk ^MfH H lániaðfagnaogdrukknaðií
ERFÐAPRINSIMN
Öldungadeildarþingmaðurinn og demó-
kratinn Edward Kennedy hefur greinst
með illkynja heilaæxli. Edward Kennedy
er sjötíu og sex ára að aldri og sá eini
bræðranna sem lifir. Kennedy-bræðurnir
voru sveipaðir goðsagnakenndum ljóma
og skipa stóran sess í stjórnmálasögu
Bandaríkjanna.
inu, sem oftar en ekki undirstrik-
aði urigan aldur þeirra, ungæðis-
hátt, glamúr, menntun og bjarta
framtíð þeirra í stjórnmálum.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
bladamadur skrifar: kolbeinndndv.is
Edward Moore Kennedy, bet-
ur þekktur sem Ted Kennedy, var
yngstur Kennedy-bræðra og sá
eini sem enn er á lífi. Hann greind-
ist nýlega með illkynja heilaæxli
og mun undirgangast frekari rann-
sóknir og meðferð vegna þess. Ted
Kennedy er næstæðsti meðlimur
öldungadeildarinnar og stækur
málsvari frjálslyndis og fyrir margt
löngu orðinn táknmynd frjálslynd-
ari vængs demókrataflokksins.
John F. Kennedy var elstur Kenn-
edy-bræðranna, síðan kom Robert
og Ted rak lestina.
Kennedy-ættin er af írsku bergi
brotin, auðug og hefur ávallt kom-
ið nálægt stjórnmálum í Banda-
ríkjunum. Þegar John R Kennedy,
elsti bróðir Teds, var kjörinn for-
seti Bandaríkjanna 1960 var Ted
tuttugu og átta ára. John skildi
eftir sig autt sæti í öldungadeild-
inni, en Ted þurfti að ná þrítugs-
aldri til að geta fyllt skarð bróður
síns. John gat með vísan í stjórnar-
skrána haldið sæti sínu opnu í tvö
ár og árið 1962 varð Ted öldunga-
deildarþingmaður og hefur verið
það síðan.
f forsetatíð Johns F. Kennedy
breyttist ímynd embættisins. Ted
og Robert voru báðir í góðum
stöðum innan stjórnkerflsins og
bræðurnir böðuðu sig í sviðsljós-
Bölvun Kennedy-
fjölskyldunnar
Ted Kennedy hafði ekki set-
ið í öldungadeildinni nema í um
ár þegar lohn F. bróðir hans var
myrtur árið 1963. Engu líkara var
en bölvun hvfldi á fjölskyldunni og
árið 1964 lenti Ted Kennedy í flug-
slysi, sem hann lifði afvið illan leik.
Hann lá vikum saman á sjúkrahúsi
og hafði hlotið bakáverka, fengið
gat á lungun, rifbeinsbrotnað og
hlotið innvortis blæðingar.
Það var líkt og ógæfan elti Kenn-
edy-fjölskylduna. Robert Kennedy
var ráðinn af dögum árið 1968 þeg-
ar hann barðist fyrir útnefningu
Demókrataflokksins til forseta-
kjörs. Ted var niðurbrotinn enda
höfðu þeir bræður verið sérstak-
lega nánir. Þegar frá leið var horft
til Teds sem mögulegs forseta og
Demókrataflokkurinn beindi aug-
um almennings að honum sem
framtíðarkyndilbera bæði Kenn-
edy-fjölskyldunnar og flokksins.
En forseti varð hann aldrei.
Chappaquiddick
í júlí 1969 átti sér stað atvik
sem hefur fylgt Ted Kennedy all-
ar götur síðan. Atvikið er kennt
við Chappaquiddick, sem er lítil
eyja við Víngarð Mörtu í Massa-
chusetts. Ted hafði verið í hófi á
Kennedy-bræðurnir
(f.v.) Robert rikissaksóknari,
Edward öldungadeildarþing- tV
maður og John F., forseti Al
Bandarikjanna, árið 1962.
Chappaquiddick, en farið það-
an í fylgd Mary Jo Kopechne, sem
hafði meðal annars starfað í kosn-
ingabaráttu Roberts. Ekki tókst
betur til en svo að Ted ók fram af
brú og endaði bifreið hans ofan í
sundi á milli Chappaquiddick og
Víngarðs Mörtu.
Kennedy komst af slysstað, en
Mary lo Kopechne átti ekki því
láni að fagna og drukknaði í sokk-
inni bifreiðinni. En Ted Kennedy
tilkynnti ekki um óhappið fyrr en
næsta dag. Síðar játaði hann sig
sekan um að hafa yfirgefið slysstað
og hlaut tveggja mánaða skilorðs-
bundinn dóm. Ted Kennedy sagði
á þeim tíma að hann hefði kallað
til stúlkunnar og gert ítrekaðar til-
raunir til að bjarga henni úr flak-
inu. En enn er fjölda spurninga
ósvarað og skuggi þessa atviks hef-
ur hvílt á Ted Kennedy.
Sóttist eftir
forsetaembættinu
Stuðningsmenn Teds Kenn-
edy hvöttu hann til að sækjast eft-
ir embætti forseta Bandaríkjanna
árin 1972 og 1976, en fóru bón-
leiðir til búðar. Ted byggði ákvörð-
Un sína á örlögum beggja bræðra
sinna og öðrum fjölskyldumálum.
Árið 1980 ákvað Ted að kasta sér
á foraðið og bauð sig fram gegn
sitjandi forseta og flokksbróður,
hnetubóndanum Jimmy Carter.
Ákvörðun Teds vakti furðu meðal
demókrata og þrátt fyrir stuðning í
upphafi varð fljótt ljóst að ákvörð-
un Teds myndi ekki bera ávöxt.
Carter naut á þeim tíma lít-
illa vinsælda og því gat Ted vænst
þess að uppskera árangur, en á
ögurstundu komu íranar Carter
til bjargar með því að taka fimm-
tíu og tvo sendiráðsstarfsmenn
Bandaríkjanna í gíslingu. Deilan
við Iran jók mjög vinsældir Cart-
ers og allur vindur fór úr framboði
Teds. Aukinheldur hafði ekki enn
fennt yfir Chappaquiddick-atvikið
og andstæðingar Teds skírskotuðu
í tíma og ótíma til lagsins Bridge
Over Troubled Water með Simon
og Garfunkel til að tryggja að kjós-
endur gleymdu ekki harmleiknum
og hneykslinu.
Styður Barack Obama
Þrátt fyrir að Ted Kennedy hafi
ekki síðan reynt við forsetaemb-
ættið er gjarna horft til þeirra sem
hann styrkir og styður. Álit hans
nýtur virðingar og hann hefur ver-
ið þungavigtarmaður í stjórnmál-
um landsins enda eini eftirlifandi
erfðaprins Kennedy-fjölskyldunn-
ar. Ted er einn áhrifamesti með-
limur Demókrataflokksins og er
stundum kallaður „Táknmynd
demókrata". Árið 2006 var hann
valinn einn af tíu bestu öldunga-
deildarþingmönnum Bandaríkj-
anna af tímaritinu Time og eru sér-
staklega nefnd þau áhrif sem hann
hefur haft á „líf nánast allra karl-
manna, kvenna og barna landsins".
Edward Moore Kennedy hefur Iýst
yfir stuðningi við Barack Obama í
kosningaslagnum sem staðið hef-
ur í Bandaríkjunum undanfarna
mánuði.