Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008
Helgarblað PV
Konan
UMSJÓN: KOLBRÚN PÁLÍNA HELGADÓTTIR kolbrun@dv.is
—
Dagur barnsins
verður nú haldinn
hátíðlegur á íslandi
í fyrsta skipti 25.
maí næstkomandi
en dagurinn er
kominn til að vera,
segir Maríanna
Friðjónsdóttir.
KVENNALJOMI
Glæsilegt konukvöld verður haldið á Hótel Geysi í
Haukadal laugardaginn 31. maí næstkomandi. Þetta er
í konukvöld með glæsilegum tiskusýningum, skemmti-
atriðum og kynningum á nýjungum í hönnun og tísku.
; Sýningarstúlkurnarerudrottningarsýningarpallanna
frá þvi i gamla daga og fegurðardrottningar dagsins í
dag. Það er enginn annar en fagurkerinn Heiðar Jóns-
son sem mun stýra kvöldinu og kynna. Nánari upplýs-
ingar um konukvöldið má finna á brudurin.is
STRÁKUR
EÐASTELPA?
Hundruð kenninga eru til um
hvort óléttar konur beri dreng
eða stúlku undir belti. Hvort
sem mark er á þeim takandi
eða ekki getur verið gaman að
spá í spilin.
ÞÚ GENGUR MEÐ DRENGi
■ Þú hefur ekki fundið fyrir
morgunógleði.
■ Hjartsláttur barnsins er undir
140 slögum á mínútum.
■ Þú ert með nokkur aukakíló
framan á þér.
■ Kúlan liggur neðarlega.
■ Maginn á þér lítur út eins og
körfubolti.
■ Þú hefur meiri þörf fyrir saltan
og súran mat.
■ Þú sækir f próteinríka fæðu eins
og kjöt og ost.
■ Fætur þfnir eru kaldari en áður
en þú varðst ólétt.
■ Hárið á fótleggjum þínum vex
hraðaren venjulega.
■ Hendur þínar eru þurrar.
■ Verðandi faðir bætir á sig kílóum
þértil stuðnings.
■ Þú hefur sjaldan litið betur út.
■ Þú læturgiftingarhringlnn þinn
hanga yfir kúlunni og hann
snýst í hringi.
■ Þú færð höfuðverk.
■ Þú leggur saman aldur þinn,
númer hvað óléttan er og
númerið á þeim mánuði sem
getnaðurinn átti sér stað (og
útkoman er slétt tala.
ÞÚ GENGUR MEÐ STÚLKU!
■ Þú hefur fundið fyrir
morgunógleði.
■ Hjatsláttur barnsins er allavega
140 slög á mínútu.
■ Þú ert meö aukakíló á lærum og
mjöðmum.
„Dorrit Moussaieff forsetafrú hefur
samþykkt að gerast verndari Dags
barnsins sem haldinn verður í íyrsta
skipti á Islandi 25. maí næstkom-
andi," segir Maríanna Friðjónsdótt-
ir, framkvæmdastjóri verkefnisins.
Áformað er að slíkur dagur verði
haldinn árjega í framtíðinni. Dagur-
inn er haldinn samkvæmt ákvörð-
un ríkisstjórnar íslands að tillögu
Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og
tryggingamálaráðherra
Að þessu sinni verður yfirskxift
dagsins Gleði og samvera.
Mikilvægustu
þegnar landsins
Efnt hefur verið til samkeppni
sem opin er öllum börnum og ung-
mennum um merld og stef dags-
ins. Á heimasíðunni dagurbarnsins.
is má finna nánari upplýsingar um
samkeppnina, hugmyndabanka
sem sveitarfélög landsins skipu-
leggja og annað efni sem tengist yf-
irskrift dagsins, Gleði og samvera.
Markmiðið með því að helga
börnum sérstakan dag er að hvetja
til samveru barna og fjölskyldna
þeirra, skapa tækifæri til að minna
á þessa mikilvægustu þegna lands-
ins, koma málefnum barna á fram-
færi og leyfa rödd þeirra að
hljóma. „Það sem þetta
gengur einfaldlega út
á er að foreldrar og
börn verji tíma sam-
an án þess að það
kosti peninga, fari
saman í fjöruferð,
út að leika sér eða
í gönguferð með
nesti," segir Marí-
anna.
Fjársjóðsleit
Sveitarfélög landsins hafa tek-
ið einstaklega vel í þennan dag að
sögn Maríönnu og ætía flest hver
að leggja sitt af mörlcum með því að
kasta fram hugmyndum að afþrey-
ingu sem hentar börnum og foreldr-
um þeirra. „Okkur barst til að mynda
ein frábær hugmynd þess efnis að
DORRIT
■ VERNDJ
*
'
Verndari dagsins Dorrit
lætur sér annt um börnin
og gefur sér ævinlega
tíma til að spjalla við þau.
hægt væri að fara í fjarsjóðs-
leit á Degi barnsins þar sem öll
börn myndu fela sig og foreldrarn-
ir ættu að leita þeirra. Því hvað er jú
dýrmætara en að finna börnin sín?"
segir Maríanna.
Gott samstarf
Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið annast undirbúning dags-
ins og hefur efnt til samstarfs við
fjölmarga aðila um margþætt við-
fangsefni. Meðal samstarfsaðila
eru Biskupsstofa, umboðsmaður
barna og ýmis félög og samtök sem
koma að viðburðum í tengslum við
daginn.
Það er von ráðuneytisins að Dag-
ur barnsins verði efnisríkur hátíðis-
dagur íslenskra barna, íjölskyldna
þeirra og alira sem bera hag æsk-
unnar fyrir bijósti.
„Þeir sem hafa áhuga á að lcynna
sér verkefnið nánar geta sent mér
mail á netfangið mail@dagurbams-
ins.is," segir Maríanna að lokum full
tílfilökkunar yfir verkefninu.
■ Vinstra brjóstið á þér er stærra
en það hægra.
■ Ef grannt er skoöað má sjá glitta
f rauðan blæ í hárinu á þér.
■ Kúlan liggur ofarlega.
■ Maginn á þér lítur út eins og
vatnsmelóna.
■ Þú sækir í sætindi.
■ Þú borðar mikið af ávöxtum.
■ Þú drekkur mikinn appelsfnu-
safa.
■ Þú Iftur ekki alveg eins vel út og
þú ert vön.
■ Þú ert verri f skapinu en
venjulega.
■ Brjóstin á þér hafa blómstrað.
■ Þú lætur giftingarhringinn þinn
hanga yfir kúlunni og hann fer
fram og til baka.
■ Þú leggur saman aldur þinn,
númer hvað óléttan er og
númerið á þeim mánuði sem
getnaöurinn átti sér stað 1 og
útkoman er oddatala.
sasss*
KOSTIR ÞESS AÐHREYFA
SIG Á MEÐGÖNGU
■ Hreyfing gerir það að verkum að við framleiðum
færri streituhormón. Mikil streita eykur hættu á
fósturláti.
■ Bara það að vera ólétt eykur úthaldið, þvf hver
hreyfing krefst þess að við lyftum meiri þunga en
ella og styrkjum þar af leiðandi vöðvana. Ef
stunduð er likamsrækt má nýta sér þessa staðreynd
svo um munar. Að fæðingu lokinni mun þolið vera f
góðu ástandi.
■ Æfingar sem styrkja bak og grindarbotnsvöðva
koma í veg fyrir grindargliðnun og bakmeiðsli.
■ Þar sem líkamsrækt veldur aukinni virkni insúlfns í
vöðvum minnka líkur á sykursýki.
■ Konum í góðri þjálfun er síður hætt við mjög
löngum fæðingum.
■ Konur sem stunda líkamsrækt alla meðgönguna
þyngjast að meðaltali 3,6 kflóum minna en konur
sem ekkert hreyfa sig.
■ Minna er um fæðingarþunglyndi hjá konum sem
hreyfa sig því hreyfing beinlínis bætir andlega
liðan.
■ Börn mæðra sem stunda líkamsrækt eru að
meðaltali með 300 til 400 grömmum minni fitu á
líkamanum við fæðingu,. Fimm ára gömul eru þau
með minna fituhlutfall, meiri greind og eru betur
máli farin en ella.