Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Síða 41
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 41
Þetta er alltaf jafnyndislegur árstími þegar samfélagið fer á
haus út af söngvakeppni sem fáir þora að viðurkenna að hafa
gaman af. DV tók saman nokkur ódauðleg lög úr keppninni
sem fólk elskar að hata.
%*&**&<
STJÓRNIN -
EITT LAG ENN
Næstbesti árangur íslands í Eurovision frá
upphafi, 4. sætið, getur vart talist annað en eft-
irminnilegt. Búningarnir sem Sigga
Beinteins og Grétar Örvars klæddust
í keppninni hérna heima eru hins
vegar ekkert síður eftirminnilegir
en lagið og árangurinn. Gulskræp-
óttu jakkarnir flokkast óneitanlega
undir tískuslys af grófari gerðinni.
Þegar á sviðið í Zagreb var komið
var klæðnaðurinn þó orðinn mun
dannaðri. Mörgum sjálfskipuð-
um tónlistarmógúlnum finnst tón-
list Stjómarinnar ekki upp á marga
fiska, en það verður ekki af hljóm-
sveitinni tekið að hún gladdi íslensku
þjóðina óumræðilega mikið á því herrans ári
1990 með því að sýna loks að við áttum eitt-
hvað erindi í þessa miklu skemmti-
hátíð Evrópu.
SANDRA KIM
- J AMIE LA VIE
Þessi unga dama keppti fyrir
hönd Belgíu árið 1986. Sama
ár og við íslendingar héld-
um að við mundum rústa
þessari keppni með Gleði-
banka Icy-flokksins, en
enduðum í sextánda sæti.
Sandra var aðeins þrettán
ára þegar hún tók þátt en
sagðist vera fimmtán ára. ■^7' /
Þetta olli miklum usla hjá
Eurovision-spekingum og
kröfðust margir að úrslitin yrðu
ógilt. Sandra hélt þó titlinum.
SILVÍA NÓTT -
TIL HAMINGJU ÍSLAND
Enginn keppandi í sögu Eurovision hefúr vald-
ið jafnmiklum usla og alið af sér jaftimikið hatur
og Silvía Nótt. Söngkonan sjálfselska gekk fram
af gjörsamlega öllum sem nálægt henni komu
og flestir voru langt frá því að fatta grínið. Islend-
ingar sendu út litla hvæsandi kisu sem breyttist í
skrímsli. Verst af öllu var þó að Silvía virtist stress-
ast mikið upp og klúðraði tækifæri sínu til þess að
heilla heiminn. Allt var þetta þó ofskaplega mikið í
anda hinnar sérstöku Silvíu.
slen
Out OfLuckí
var í fyrsta skipti
Sérstaklega eftir
með Selmu á svið í síðui
áensku.
1
I
i
| BIRGITTA HAUKDAL
- OPEN YOUR HEART
Það braust út mikið Birgittu-æði þegar hún keppti fyr-
ir íslands hönd árið 2003 með lagið Open Your Heart.
Allar smástelpur vildu vera eins og hún - með fallegt
blóm í hári. Birgitta stóð sig vel én hafnaði í áttunda
sæti. Myndbandið sem gert var við lagið var í mikilli
spilun og vakti ljósaskiltið, sem kostaði fúlgu, mikla
athygli. Dúkkan fræga var gerð áf stjörnunni í kjölfarið
en sú hugmynd floppaði feitt eins og frægt er. Dúkk-
an líktist Birgittu akkúrat ekki neitt og héldu margir
að dúkkugerðarmeistarinn hlyti að hafa óvart fengið
mynd af Rut Reginalds til dúkkugerðarinnar.
ICY - GLEÐIBANKINN
Icy-llokkurinn fór fyrstur íslenskra atriða ui i Euro-
vision árið 1986. Þau I’álmi (lunnaisson, I lelga Moll
er og l-.iríknr ilauksson voru ems og þeitn helði vei
ið snýtt út um niisina á átlunda araiugnum. Islenska
þjóðin var svo sigurviss að það hálfa væri nóg. Vililu
sumir meina að það væri ekki spurning hvori held
ur hvenær lcy-flokkurinn yrði krýndur sigurveg
ari. Gleðibankanum var þó ekki lekið ems vi-l og ís
lendingar og reyndar margir veðbankar heldu. I.agið
halnaði í 16. sieli með 19 stig. En mikið djölull eldisi
lagið skeminúlega.
BOBBYSOCKS - LA DET SWINGE
Norska poppdúóið Bobbysocks sigraði í Eurovision-keppninni árið
1985 með laginu La Det Swinge. í dúóinu góða voru vinkonumar
Hanne Krogh frá Noregi og hin sænsk-norska Elisabeth Andreass-
en. Það var Hanne Krogh sem átti hugmyndina að samstarfinu því
hún vildi búa til dúó með annarri söngkonu sem væri nú þegar orð-
in vel þekkt og saman skyldu þær syngja lög sem Hanne hafði alist
upp við. Textinn var einstaklega grípandi og má enn heyra fólk á öll-
um aldri raula: La det swinge la det rock og roll.
PÁLL ÓSKAR-
MINN HINSTI DANS
Páll Óskar skráði sig í sögubækumar þegar hann
söng lagið Minn hinsti dans í keppninni árið 1997.
Þó svo að lagið hafi aðeins náð 20. sæti vakti Palli
athygli um alla Evrópu og sérstaklega meðal sam-
kynhneigðra. Hann er af mörgum talinn brautryðj-
andi fyrir vikið en atriði Palla þótti ögrandi. Palh sat
á sófa í pallíettujakafötum með fjórar þokkagyðjur
í latexgöllum í kringum sig og söng um sinn hinsta
dans.