Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 23. MA( 2008
Helgarblaö PV
MADDENPSP
Sony hefur bætt í safhið enn einni sérút-
gáfunni af PSP. Það er svokölluð Madden-
útgáfa vélarinnar en hún er blá á litinn og
verðurfáanleg ítakmörkuðu upplagi.tölv-
an verður seld í sérstökum pakka en í hon-
um verður tölvan, eintak af Madden NFL 09,
1GB minniskort og diskur með myndefni
tengdu leiknum. Þetta verðurfáanlegt í ág-
úst en pakkinn mun kosta 199 dali ytra.
FIREF0X3
KEMURÍJÚNÍ
Firefox-vafrann vinsæla verður
hægt að sækja í útgáfu númer
þrjú strax í júní samkvæmt
yfirlýsingu Mozilla-fyrirtækisins
sem þróar vafrann. Síðustu
prófanir standa nú yfir, mest-
megnis vegna þeirra fjöldamörgu
viðbóta sem hægt er að keyra
með vafranum. Forsvarsmenn
Mozilla segja að útgáfa 3 verði
tvisvartil þrisvar sinnum
hraðvirkari en núverandi útgáfa
og nærri tíu sinnum hraðvirkari
en Internet Explorer 7.
P0LAR0IDVÉLAR
AÐHVERFA
Polaroid-fyrirtækið er endanlega
að draga sig út úr filmu- og
myndavélaframleiðslu en
fyrirtækið er hvað þekktast fyrir
framleiðslu sína á ýmsum
útgáfum Polaroid-myndavéla
sem hafa þann eiginíeika að
framkalla sjáffar myndina sem
tekin er og spýta henni úr vélinni
í hendur notandans. Fyrirtækið
hefur lagt fram nokkurs konar
dagatal þar sem koma fram
dagsetningar um hvenær
filmugerðir í vélarnar hverfa af
markaði. Enn er hægt að kaupa
Polaroid vélar gegnum vefsíður
eins og eBay og ekki ólíklegt að
annað fyrirtæki komi á markað
filmum fyrir vélarnar ef nægur
markaður er fyrir hendi.
DRYKKJUKEPPNI
ÁWIIWARE
Leikurinn Beer Bong verður
fáanlegur innan skamms á
WiiWare fyrir Nintendo Wii. Þá
geta Wii-notendur sótt þennan
leik sem er drykkjuleikur
byggður á bandaríska drykkju-
leiknum Beer Bong. Leikurinn
mun eflaust ekki falla vel í kramið
hjá foreldrum um allan heim en
markmið leiksins er einfalt, að
drekka næsta mann undir borðið.
Google-vefrisinn
stendur í ströngu
þessa dagana og
situr undir ásökun-
um um aö styðja
hryðjuverkamenn
úr röðum öfgasinn-
aðra íslamstrúar-
manna og vera
leiksoppur kín-
verskra stjórnvalda
með því að hefta
tjáningarfrelsi
landsmanna.
Google-vefrisinn svaraði í vik-
unni bréfi demókratans og öld-
ungadeildarþingmannsins Joe
Lieberman en í því krefst Lieber-
man að öll myndskeið tengd
öfgasinnuðum samtökum ís-
lamstrúarmanna verði fjarlægð
af vefsvæði YouTube sem er í eigu
Google, annars yrði það túlkað á
þann veg að Google styddi þjálf-
un og liðssöfnun hryðjuverka-
manna. Google hefur nú þegar
fjarlægt myndskeið þar sem fram
koma ofbeldis- eða hatursfullar
hugmyndir í garð Bandaríkjanna
en neitar að fjarlægja önnur þar
sem það stangist á við hugmynd-
ina um tjáningarfrelsi.
Vefrisinn lýsti því yfir að nærri
ómögulegt sé að skoða hvert og
eitt þeirra hundruð þúsunda
myndskeiða sem berast inn á
vefsvæði YouTube hvem dag og
því verði að treysta notendum
fyrir því að tilkynna óviðeigandi
efni sem samræmist ekki reglum
vefsvæðisins.
Auk þess styðji fyrirtækið með
öllum mætti almennt tjáningar-
frelsi og vilji ekki hefta réttinn
til að að tjá óvinsælar eða ógeð-
felldar hugmyndir sama hvaðan
þær koma.
Lét undan Kínverjum
Google var einnig tekið á
beinið í vikunni af öldungadeild-
arnefnd þingsins, vegna ákvarð-
ana fyrirtækisins í Kína en Goog-
le hefur látið undan mörgum
kröfúm kínverskra stjómvalda
og skert tjáningarfrelsi lands-
manna með ýmsum hætti. í stað
gamla járntjaldsins má segja að
í Kína sé risið upp annað tjald,
tjald sýndarveruleika þar sem
aðeins ákveðnar upplýsingar
koma firam á vefsíðum og stjórn-
völd stýra upplýsingaflæðinu
með hjálp vestrænna fýrirtækja
eins og Google. Vefrisinn hefur
ásamt öðrum fyrirtækjum eins
og Yahoo og Microsoft staðið síð-
astliðið eitt og hálft ár í viðræð-
um við mannréttindasamtök um
einskonar vegvísi stórfyrirtækja
í samskiptum við erlendar ríkis-
stjórnir varðandi tjáningarfrelsi
en þeim hefur þokað lítt áleiðis.
paUi@dv.is
Staðfest hefur verið af framleiðendum kvikmyndar-
innar Prince of Persia: Sands ofTime að Jake
Gyllenhaal muni leika aðalhlutverkið myndinni.
Hlutverkið var 1 hættu um t(ma vegna fótbrots sem
Gyllenhaal hlaut (körfubolta leik á dögunum en
hann hefur náð að jafna sig í tæka tíð. Nýjustu
fregnir herma einnig að Gemma Arterton sem er
nýjasta Bond stúlkan muni leika á móti Gyllenhaal I
myndinni.
Þaö er Disney sem framleiöir myndina, sem byggist
á samnefndum tölvuleikjum, sem fyrst komu fram á
sjónarsviðið árið 1989. Á sínum t(ma fór sú saga á
kreik að leikarinn Orlando Bloom hefði hreppt
aðalhlutverkið, en svo er vlst ekki. Kvikmyndin
fjallar um fffldjarfan prins, sem tekur höndum
saman við óvinaprinsessu, til þess að stööva illan
einræöisherra í því að sleppa ógurlegum sand-
stormi á heiminn.
Leikstjóri myndarinnar er Mike Newell sem hefur
áður leikstýrt kvikmyndum á borð
við Love in theTimes of Cholera,
Harry Potter & the Goblet of Fire,
Donnie Brasco og Mona Lisa
Smile.Tökur hefjast (júlí en
myndin er væntanleg sumarið
2009. Kvikmyndir byggðar á tölvu-
leikjum verða sífellt fleiri og er
Prince of Persia stórgóður
efniviður.
Jake Gyllenhaal Missti næstum
því af myndinni vegna fótbrots.
JAKE GYLLENHAAL MEÐ
ÍPRINCEOF PERSIA