Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Síða 84
84 FÖSTUDAGUR 23. MA( 2008
Fólkið DV
EUROVISION 2008
FJÓRIR Á BLAÐA-
MANNAFUNDI
Gunnar V. Andrésson,
einn þekktasti blaðaljós-
myndari íslands er stadd-
ur í Belgrad að mynda
íslenska Eurovision-hóp-
inn. En Gunnar fór til
Bergen í Noregi í þegar
íslendingar tóku þátt í
keppninni í fyrsta sinn.
Hann segir keppnina hafa
breyst mikið á síðustu 12
árum.
„Þetta er búið að breytast mjög mikið. Ég
minnist þess á blaðamannafundi í Bergen árið
1986 að þá mættu fjórir, fimm menn og ís-
lensku tónlistarmennirnir gáfu kasettur með
laginu sínu. Það var mjög lummó miðað við
diskana sem er verið að gefa í dag sem
eru allir með allskyns skrauti
og upplýsingar um flytj-
endur og hátt í hundrað
manns á blaðamanna-
fundunum," segir
Gunnar. En hann fór
út til Bergen í Noregi
þegar ICY-hópurinn
tók þátt fyrir fslands-
hönd í fyrsta sinn með
laginu Gleðibankanum.
Mikið álag er á Reg-
ínu Ósk og Frið-
riki Ómari og
Stæll á fólkinu Regína Ósk og Friðrik Ómar á góðri stundu í Serbíu.
tekur Gunnar vel eftir þeim breytingum. „Ég
er áhorfandi að því að þessir flytjendur okk-
ar standa með frosið bros í 10 mínútur fyrir
framan myndavélarnar. Þetta er allt, allt önnur
stemning. Manni finnst eins og þau séu nán-
ast á skör heimsfrægðar," útskýrir Gunnar en
hann segir það eiga eftir að koma í ljós hver
örlög þeirra verða.
degi. Ferðafólk sem var með okkur í Bergen
fann að því hvað Eiríkur fór létt með hlutina og
skammaði hann. Þá sagði hann: „Mörg hesta-
mannmót er ég búinn að fara en ekkert jafn
vitlaust og þetta," rifjar Gunnar upp og skelli-
hlær.
„Við skallapopparnir, Dr. Gunni skemmtum
okkur vel. Fylgjumst af gaumgæfni með fram-
vindu keppninnar. Okkur líður mjög vel, en við
hlökkum til að koma heim." hanna@dv.is
Gunnar segir að mikið fjör
hafi verið út í Bergen á sín-
um tíma, en hann var stadd-
ur þar ásamt Eiríki Jónssyni,
núverandi ritstjóra Séð og
Heyrt. „Þá þurftum við að
búa til forsíðu og heila síðu
inni í blaðinu á hverjum einasta
Skallapopparar Gunnar V.
Andrésson, einn virtasti blaðaljós-
myndari landsins hefurtvisvarfarið
út í Eurovision, en hann segir
keppnina og stemningu allt
öðruvísi í dag.
GEFUR
GÓÐRÁÐ
Ásdís Rán er ávallt dugleg að tjá
sig á bloggi sínu um allt milli
himins og jarðar. Eftir að um-
ræðan hafl að mestu snúist um
Playboy-partý og Million Dollar
Woman keppnina að undan-
förnu hefur hún nú tekið sig til
í nýjustu færslu sinni og gefið
íslenskum dömum ráðleggingar
um það hvernig megi losna við
appelsínuhúð. En það eru fáir
jafn ffóðir og fyrirsætan um það
hvernig halda skuli líkamanum
í góðu standi. í blogginu mælir
hún með súrefniskremi ffá Kar-
in Herzog og segir kremið gera
sannkallað kraftaverk, sérstak-
lega eftir barnsburð. „Kremið
gerir kraftaverk ef það er borið á
brjóst, maga, rass eða læri einu
sinni til tvisvar á dag. Húðin
strekkist og þéttist, slitin slétt-
ast út og hverfa nánast bara á
nokkrum dögum!" segir Ásdís í
færslunni og minnir einnig á að
passa verði að nudda kreminu
ekki á líkamann heldur „dúmpa"
því létt yfir svæðið.
KOMINÚT
TILKÆRASTANS
Hljómsveitin Sign heldur áfram að
rokka um Bretlandseyjar en hljóm-
sveitin hélt tónleika í Óxford síðast-
liðinn miðvikudag. Förðunarmeist-
arinn Sóley Ástudóttir, kærasta
söngvarans Ragnars Zolberg skellti
sér út til strákanna til að fylgjast
með tónleikunum einsog sannri
rokkarakærustu sæmir. Ragnar hef-
ur eflaust verið feginn að fá kærust-
una út þar sem hann hafði nýver-
ið slasað sig á hálsi á tónleikum í
Glasgow. Nú er hljómsveitin hins-
vegar aftur mætt til Skotlands til að
veraviðstödd brúðkaup samkvæmt
ferðabloggi sveitarinnar.
Siggi í Hjálmum hefur slegið í gegn í nýrri auglýsingu frá Húsasmiðjunni.
ER ALLTAF GAMAN AÐ FÍFLAST
Lúðalegur
karakter Rlsa
stórt nef og
eftirminnilegasta
hár í sögu
íslensks
sjónvarps. Siggi í
Hjálmumferá
kostum í
auglýsingu fyrir
Húsasmiðjuna.
„Já, þetta er ég," segir Sigurður Halldór
Guðmundsson betur þekktur sem Siggi í
Hjálmum, en hann leikur í nýrri auglýs-
ingu fyrir Húsasmiðjuna og kemur fyr-
ir sjónir sem heldur lúðalegur karl með
afar stórt nef og þriggja metra hátt, rautt
hár. En þessi fyndni karakter hefur vakið
óskipta athygli bæði í sjónvarpi og dag-
blöðum.
„Það var hringt í mig og ég var beðinn um
að taka þetta að mér. Mér fannst Húsa-
smiðjan ekki það fráleitt fyrirtæki að ég
gæti ekki fíflast fyrir það," segir Siggi.
Þetta er ekld fyrsta auglýsingin sem Siggi
leikur í. Fyrir 10 árum lék hann í forvarn-
arauglýsingu fyrir tóbaksvarnarráð. Hann
segist þó ekJd ætla að leggja auglýsinga-
bransann fyrir sig.
Leið þér vel sem þessi karakter?
„Mér leið ágætlega þegar ég fékk að taka
þetta af mér," segir Siggi. „En það er alltaf
gaman að fiflast."
Um þessar mundir bíður Siggi þess að nýj -
asta plata hans komi til landsins. Platan
hefur hlotið nafnið Oft spurði ég mömmu
og segir Siggi hana vera á gamla dægur-
lagamátann. Þar syngur hann klassísk
lög í bland við nýtt efni. Lagið Ég er kom-
in heim hljómar á öllum helstu útvarps-
stöðvum landsins þannig að íslendingar
fá bæði að hlusta og horfa á Sigga í sum-
ar. Platan er væntanleg í verslanir 26. maí
næstkomandi. hanna@dv.is