Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008
Neytendur DV
ALGJÖRT GRÍN AÐ
FYLLAÁ BÍLINN:
„Það er orðið algjört grín að fara á bensínstöð-
ina að fylla á bílinn, og maður finnur kannski
mest fyrir því og maður reynir í staðinn að labba
meira og hjóla," segir Elma Lisa Gunnarsdóttir
leikkona.„En annars hefur allt hækkað nema
launin. Eins og vinkona mín sagði kostar núna
5.000 kall að kaupa brauð og banana."
J
Vinniiigshafar
dagsins
Eftlrfarandi eru vinningshafar 6.
júni 2008 í leiknum DV gefur
milljón. Þær hlutu 1 verðlaun tiu
þúsund króna inneign (Bónus. DV
óskar þeim innilega til hamingju.
Hrafnhildur Ólafsdóttir
KittýM. Waage
Stella S. Kiernan
Hrefna Guðmundsdóttir
María Guðmundsdóttir
SUvamt
162,50 178,30
IIENSlN U18EE
Culhnbti 164,40
IIENSlN
162,70
IIENSlN
179,80
IHNBE
178,20
uInei.
162,90 1 78,20
IIENNlN 111SII
13 LEIÐIRTILAC
Leggja bílnum og byrja að hjóla. Heildarkostnaður á rekstri bíls á ári er
yfir 770 þúsund krónur. Ef þú vilt spara er ekkert annað að gera en að
fækka ferðunum á bílnum og fjölga hjólaferðunum. Þannig sparast
ótrúlega miklir peningar, þú færð ókeypis líkamsrækt og ferð vel með
umhverfið í leiðinni.
BÍLLINN SAMNÝTTUR
Þeir sem neyðasttil að nota bílinn geta reynt að samnýta hann.
Vinnufélagar sem eiga heima nálægt hvor öðrum geta farið saman í
vinnuna og sparað þannig umtalsverða bensínpeninga. Það er hægt að
umgangast bifreiðarnar á annan hátt en við erum vön en það þarf
mikla skipulagningu.
Við bflakaup er mikilvægt að velja sér sparneytinn bíl. Nýlega keyptu
allir sér eyðslufreka jeppa eins og Range Rover en nú er málið að kaupa
einhvern sérstaklega sparneytinn bíl eins og Yaris og aðra smábíla.
Nota strætó. Eitt far fýrir fullorðna kostar 280 krónur og níu mánaða kort
kostar 30.500 krónur. Strætónotkun hræðir marga vegna þess hve
tímafrek hún er og hversu mikils skipulags hún þarfnast. Með tímanum
venst strætóinn þó furðu vel og tímann geturðu notað til að lesa, læra
eða hlusta á tónlist.
Bónusfrekaren klukkuverslanir (10-11,11-11). Það er staðreynd að
ódýrast er að versla í Bónus. Það er líka staðreynd að það er meira vesen
að versla í Bónus en í öðrum dýrari búðum. En troðningur og langar
raðir eru hlutir sem maður þarf að sætta sig við ef maður vill ekki fara á
hausinn.
NÆGILEGINNKAUP
Kaupa hæfilega mikið af mat. Nauðsynlegt að gera innkaupalista til að
kaupa ekki of mikið. Samkvæmt nýrri könnun á neysluvenjum íslend-
inga hendum við mat að verðmæti 3,4 milljarða á hverju ári og það sem
fólk nýtir verst er brauð og grænmeti. Hægt er að spara gríðarlega mikla
peninga með því að kaupa nægilega mikið magn.
^ m Lofið fær IKEA
fyrir að breyta
ekki verðinu.
JMjjB1 Innfluttar vörur
hafa hækkað i verði
á fslandi vegna
veikingar krónunnar. Allar vörur
I.OF&LAST
spila 18 holur.
IKEA, tæplega
3.000, munu
ekki hækka I
verði fyrr en
15. ágúst næstkomandi.
SPARAKSTUR SPARAR
Hægt er að temja sér sparakstur með því að keyra
ekki alltaf of hratt og stoppa inni á milli á Ijósum. Ef
maður keyrir á temmilegum hraða er hægt að fylgja
Ijósunum og maður neyðist ekki til að stoppa
jafnoft. Þannig sparast bensínið.
HVADERIMATINN.IS
Á vefnum hvaderimatinn.is er hægt að sjá hvað á
að kaupa mikið eftir því hvað eru margir í heimili
og hægt er að fá uppskriftir. Þú getur sett upp
matseðil fyrir hvern mánuð og sent innkaupalista
með sms í farsímann þinn.