Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNl 2008 SUÐURLAND DV Sjö milljarða króna framkvæmd við Landeyjahöfn í Bakkafjöru hefst í sumar. Áætlað er að Landeyjahöfn ásamt nýrri Vestmannaeyjaferju verði tekin í notkun síðsumars árið 2010. Ferðatími frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur styttist um eina og hálfa klukkustund. Siglingatíminn styttist mun meira. Landeyjahöfn Siglingatíminn milli lands og Eyja verður aðeins um hálftími. Aksturinn til Reykjavíkur lengistefferðinni erheitið þangað. Kort Hér má sjá staðsetningu Landeyjahafnar, sem stundum er nefnd Bakkafjöruhöfn. Framkvæmdir við Landeyjahöfn í Bakkaíjöru heíjast í sumar. Með nýrri höfn og nýrri ferju styttist ferðatím- inn frá Vetsmannaeyjum til Reykja- víkur um eina og hálfa klukkustund, úr fjórum tímum í tvo og hálfan. Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 7,6 milljarðar með kostnaði við uppgræðslu á Land- eyjasandi. Þar af er reiknað með að sjálf höfnin með varnargörðum kosti 3,5 milljarða, ný Vestmannaeyja- ferja um þrjá milljarða og vegagerð í Landeyjum 650 milljónir. Endanleg- ar kostnaðartölur liggja þó ekki fyr- ir. Útboð vegna hafnargerðar verða opnuð á morgun, fimmtudag, og út- boð í smíði nýrrar ferju í lok júlí. Sig- urður Áss Grétarsson, fostöðumaður hafnasviðs hjá Siglingastofnun, seg- ir að gengið sé út frá því að sigling- ar hefjist með nýrri ferju í Landeyja- höfn síðsumars árið 2010. öldurnar háar „Það kemur fýrir að fólki bregð- ur þegar það kemur þarna niður eftir vegna þess að þar sem höfnin verð- ur geta öldur orðið býsna háar," seg- ir Sigurður. Það sé hins vegar ástæða „ÞAÐ KEMUR FYRIR AÐ FÓLKI BREGÐUR ÞEG- AR ÞAÐ KEMUR ÞARNA NIÐUR EFTIR VEGNA ÞESSAÐÞARSEM HÖFNIN VERÐUR GETA ÖLDUR ORÐIÐ BÝSNA HÁAR." fýrir þessu. „Rétt fyrir utan höfnina er rif sem veldur þessum öldum, en þar sem höfnin verður er einmitt dýpst að rifinu," segir hann. Hann segir að talsverðar efasemd- ir hafi verið um verkefnið í fyrstu. Hins vegar hafi rannsóknir smám saman leitt í ljós að Bakkafjaran væri ákjósanlegur kostur fyrir ferjuhöfn. „Það hafa ekki allir verið á eitt sáttir um þessa leið en okkur líst þannig á.að fólk sé sáttara við þessa lausn núna en þegar fyrst var lagt af stað íverkefnið," segir Sigurður. Ný ríkisferja Smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju hefur þegar verið boðin út á Evrópska efnahagssvæðinu. Upphaflega var gengið út frá því að rekstraraðilinn legði til ferju. „Þegar upp var stað- ið fengu fjórir að skila inn tilboðum í rekstur ferjunnar. Okkur barst aðeins eitt gilt tilboð, frá Vestmannaeyjabæ og Vinnslustöðinni. Það var ákveðið að ganga ekki að því tilboði, því við töldum að hægt væri að gera þetta með minni kostnaði," segir Sigurður. Hann segir ástæðurnar fyrir þessu meðal annars þær að þau lánakjör sem fyrirtækjum standi til boða í andránni séu óhagstæð. „Þetta veld- ur almennri svartsýni í tilboðsgerð þessa dagana." Ríkið fær hins vegar betri fjármögnunarkjör og mun því eiga og reka ferjuna. Risavaxin framkvæmd Smíði hafnarinnar, varnargarða, ferju og vega verður umfangsmikil. Hlaðnir verða brim- og sjóvarnar- garðar við sjálfa höfnina, auk þess sem varnargarðar verða hlaðnir meðfram Markarfljóti. „Það er gert til þess að koma í veg fyrir að Mark- arfljótsósinn leiti vestar og spilli þar með höfninni," segir Sigurður. í sjálfa hafnargerðina fara alls um 650 þúsund rúmmetrar af efni. Sex hundruð þúsund rúmmetrar verða sóttir í námu á Seljalandsheiði. Gerð Landeyjahafnar felur í sér gerð tveggja 700 metra langra hafn- argarða, 3,9 kílómetra sjóvarnar- og varnargarða í Bakkafjöru og við Markarfljót ásamt dýpkun og bygg- ingu ferjubryggju og allrar aðstöðu á hafnarbakka. sigtryggur@dv.is Þórður & Einar byggingaverktaki ehf s. 866 5672 / 861 6342 Bærinn aö Keldum skemmdist í jarðskjálfta árið 2000: LOKAÐUR í ÁTTA ÁR Ferðamenn sem leggja leið sína að Gamla bænum að Keldum í Rang- árþingi koma að lokuðum dyrum. Stórt skilti sem blasir við þeim seg- ir: „Gamli bærinn á Keldum lokaður í sumar vegna jarðskjálftaskemmda." En mikill jarðskjálfti reið yfir svæðið fyrir tveimur vikum. „Það skemmdist ekkert í þessum jarðskjálfta," segir Drífa Hjartardóttir, bóndi á Keldum, er blaðamaður for- vimaðist um tjón á torfbænum fyrir hálfum mánuði. „Það eru skemmd- ir síðan í jarðskjálftanum árið 2000. Það er ekki búið að gera almenni- lega við bæinn og koma honum í al- mennilegt horf þannig að hægt sé að hafa hann opinn." Drífa segir Gamla bæinn á Keldum hafa verið lokaðan meira og minna síðan í skjálftanum fyrir átta árum en umsjón með bæn- um er í höndum Þjóðminjasafnsins. Drífa segir það miður að bærinn skuli enn vera lokaður því áhugi fyrir hon- um sé mikill. „Það eru mjög margir sem koma hingað og er alltafverið að banka upp á hjá okkur, fólk vill koma og skoða bæinn," útskýrir Drífa sem hefur sett J*röski4lftaskemmd* The Kaldur M*dieval Fafmhoute is cíosed this s dua to e * Gamalt skilti Þetta er skiltið sem Iblasir við ferðamönnum sem eiga leið hjá Gamla bænum á Keldum. sig í leiðsögumannsstellingar af og til. „Það er ekki alltaf sem ég hef tíma til þess," segir Drífa og hlær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.