Málfregnir - 01.12.1999, Page 8

Málfregnir - 01.12.1999, Page 8
Ef það er rétt greint hjá mér að mennta- stefnan, sem nú er uppi, sé nytsemdar- stefna, þá er það í rauninni alveg rökrétt, sem virðist æ algengara, að litið sé á mennt- un sem söluvaming en það er einmitt menntun af því tagi sem Þórarinn Bjömsson sagði að væri ekki sönn menntun. Þetta voru tvær tilvitnanir um það hvernig menntun hefur verið skilgreind, annars veg- ar í námskrá fyrir grunnskóla og hins vegar af skólameistara sem starfaði á framhalds- skólastigi. Eðli málsins samkvæmt hefur ekki verið samin námskrá fyrir háskólastigið þar sem hugtakið „æðri menntun" er skilgreint en eftir þeim mælikvarða, sem nú er notaður, er æðri menntun enn verðmætari viðskipta- vamingur en önnur menntun og æ oftar heyr- ist talað um að menntun sé fjárfesting. Menn virðast í auknum mæli kaupa sér menntunina í þeirri von að geta síðar selt hana með hagnaði. Menntunin er þá ekki markmið í sjálfu sér, heldur tæki til að ná einhverjum öðrum markmiðum sem eru henni æðri að því er virðist. En snúum okkur þá að vísindunum. Vísindi: að hugsa á íslensku I ágætri bók hefur Þorsteinn Gylfason fjall- að um vanda þess að hugsa á íslensku. Hann vitnar raunar til manna sem efast um að hægt sé að hugsa á tungumálum nema heimstungum eins og latínu og ensku. Og einn fræðimaður heldur því fram, að „of fáir tali flest afrísk mál til að hægt sé að réttlæta alvarlegar tilraunir til að breyta þeim í vísindamál og tæknimál“. Og ef þetta yrði reynt telur sami maður að þetta væri tilraun til „menningarlegs sjálfsþurftarbúskapar eins og hann gengur lengst" (bls. 59). Varla þarf að taka það fram að Þorsteinn gerir lítið úr þessum sjónarmiðum og ég er honum alger- lega sammála í því mati. Það er þjóðsaga að tungumál séu mis- hentug til að hugsa á þeim og menningarleg afstæðishyggja á litlu fylgi að fagna meðal málfræðinga. Astæðan til þess að inúítar (sem einu sinni voru kallaðir eskimóar) eiga mörg orð um snjó og Islendingar hafa ríku- legan orðaforða um vöðva og bein í þorsk- hausum, svo að ég noti dæmi Þorsteins, er auðvitað sú að snjór og þorskhausar eru eða voru hluti daglegs lífs hjá þessum þjóðum. Tungumálin laga sig að aðstæðunum og búin eru til orð eftir þörfum. Gott dæmi um þetta er íðorðasmíð og aðlögun erlendra fræða að íslensku samfélagi. Tungumálin þróast við notkun og það er raunar öfugmæli þegar því er haldið fram að íslensk mál- stefna sé íhaldssöm. Það er í rauninni nær að segja að hún sé róttæk og í henni felast stórtækar breytingar á tungunni (til bóta auðvitað). Við komumst ekki hjá því að horfast í augu við það að íslenska er alls ekki ein um hituna hér á landi og verður það vafalaust enn síður í framtíðinni. Ahrif skólakerfisins og menntastofnana munu hér ráða úrslitum, ekki síst skiptir miklu starfið á háskólastigi. Hinir erlendu straumar í tækni, vísindum og hugsun mæða mest á því skólastigi og það er auðvitað hlutverk íslenskra háskóla að vinna úr þessu og veita inn í íslenskt sam- félag. En kennaramenntunin er ekki síður mikil- væg en vísindaþjálfun og rannsóknir. Hér gegnir Kennaraháskóli Islands mikilvægu hlutverki. I almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla segir að „allir kennarar [séuj ís- lenskukennarar, hvaða grein sem þeir kenna. Leggja ber áherslu á að þjálfun í notkun íslensku er lykill að árangri í öllu námi“ (bls. 18). Þess vegna ber Kennara- háskólanum að leggja sérstaka rækt við íslensku. I pallborðsumræðunum hér á eftir verður rætt um kennaramenntun og íslensku og verður þá vafalaust fjallað nánar um hlut- verk Kennaraháskólans. Þar sem ég þekki best til í Háskóla íslands og þar sem við erum stödd innan veggja hans mun það sem ég á eftir að segja að mestu snúast unt starfið á þeim vettvangi. Eg vil nota tækifærið til að lýsa skoðunum 8

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.