Málfregnir - 01.12.1999, Blaðsíða 37
grunni á nýjan leik. Eru hagsmunir Micro-
soft það miklir í íslensku skólakerfi að fyrir-
tækið leggi út í nýja þýðingu? Og er rétt að
gerast þeirra ölmusumenn með því skilyrði
að nota þeirra búnað? Frjáls samkeppni er
erfið þegar markaðurinn er lítill, eða eins og
hún amma mín sagði: „Það kostar klof að
ríða röftum." Það er dýrt að halda íslensk-
unni úti ef við ætlum að gera það á eigin
forsendum. Það mætti einnig spyrja sig
þeirrar spurningar hvort við séum að gera
nemendum okkar óleik með því að þýða allt
sem notað er í íslensku skólakerfi þegar
óþýddur veruleikinn blasir við þeim þegar
út í lífið er komið.
Þegar nemandinn stendur upp frá útlensk-
um tölvuskjánum í móðurmálstímanum og
fer úr skólanum þennan daginn eru mestar
líkur á því að hann fari ekki heim að læra.
Athuganir benda til þess að heimanám njóti
sjaldnast forgangs og klukkutíminn, sem til
þess er notaður, gæti allt eins liðið undir
bollaglamri á kaffihúsi sem ekki heitir leng-
ur Tröð eða Hressingarskálinn. Á kaffihúsinu
afgreiða skólasystkin nemandans okkar sem
rennir augum yfir námsefni á meðan hann
bíður eftir því að vaktin hans byrji. Ekki er
óalgengt að hann vinni um 20 til 30 tíma á
viku til þess að eiga fyrir nauðsynjum eins og
símareikningum. Og hver veit nema nemand-
inn okkar, eins og svo margir framhalds-
skólanemendur, sé einn af þeim sem halda
uppi blómlegri veitingahúsamenningu Reykja-
víkur, að vísu á skammarlegum launum því
að menningin má ekki vera of dýr. Hann gæti
jafnvel unnið á Subway, Kentucky Fried,
Domino’s eða MacDonalds en þar getur
maður fengið BigMac og kók fyrir 599 kr.
Þegar nemandinn okkar kemur á vaktina á
MacDonalds þarf hann oft að byrja á því að
telja veist og veista úr bininu frá vaktinni á
undan, á 30 mínútna fresti þarf hann að hand-
vassa með tæmáti til þess að halda öllu
hreinu og fyrir lokun að djésjöa. En kannski
er hann heppinn í dag og er presenter, rönner
eða orderteiker. Eftir erilsama vakt, en það er
aldrei dauður tími á svona stað, nema e.t.v. á
sunnudagsmorgnum, er gott að slappa af með
félögunum á Astró eða einhvers staðar ann-
ars staðar og hlusta á DJ-motherfucker, eða
taka bara spólu fyrir nóttina, kannski góða
splattermynd eða Lost in LA ef hann beilar á
helginni.
Hvernig ríma nú saman unglingurinn
milli tektar og tvítugs og aðalnámskrá fram-
haldsskóla í íslensku frá 1999? Svari nú
hver fyrir sig. Hins vegar er reyndur kennari
eins og kokkur sem fer ekki eftir nákvæm-
um uppskriftum, heldur miðar hann mat-
reiðsluna við hráefnið. Og langflest þessara
ungmenna komast til manns þrátt fyrir nám-
skrár og ráðuneyti. En hvaða tungumál
barnabörn þeirra tala þori ég ekki að segja
til um.
37