Málfregnir - 01.12.1999, Blaðsíða 28
Niðurstaðan úr þessari stuttu samantekt er
sú að miklar kröfur eru gerðar til leikskóla-
kennara í nýrri Aðalnámskrá leikskóla, með
tilliti til málræktar í fjölbreyttu starfi og leik
með börnum, svo og í ýmsum öðrum atrið-
um er varða starf þeirra. Þetta kallar á að
leikskólakennarar fái góða undirstöðu-
menntun í öllum þeim þáttum sem málrækt
byggist á. Og efla þarf rannsóknir og þró-
unarstarf þar að lútandi. Það er von mín að
sú umræða, sem hér er hafin í dag um kenn-
aramenntun, haldi áfram og sem flestir láti
sig hana varða.
Ég ætla svo að ljúka máli mínu með öðru
Ijóði úr Ljóðum eftir leikskólabörn. Það er
eftir 5 ára dreng, Johan Sindra, sem var í
leikskólanum Sæborgu í Reykjavík (bls.
26):
Gamla hurðin
heima hjá mér
verður blá á nóttunni
drauntar fara í gegnum hana.
Lyftir grænum blómum
upp til guðs.
Heimildir
Aðalnámskrá grunnskóla. Menntamála-
ráðuneytið, 1999.
Aðalnámskrá leikskóla. Menntamálaráðu-
neytið, 1999.
Jóhanna Einarsdóttir, Leikur og ritmál,
1995.
Ljóð eftir leikskólabörn (Anna Þorbjörg
Ingólfsdóttir og Margrét Gunnarsdóttir
Schram völdu Ijóðin), 1996.
Rannveig A. Jóhannsdóttir, „Af því læra
bömin málið." Málþjálfun á mótum leik-
skóla og grunnskóla, Uppeldi og menntun
6, 1997.
Uppeldisáœtlun fyrir leikskóla. Mennta-
málaráðuneytið, 1993.
28