Málfregnir - 01.12.1999, Side 9

Málfregnir - 01.12.1999, Side 9
mínum á því hvers ber að krefjast af Háskól- anum gagnvart íslensku máli og þeim sem nota íslenska tungu, Islendingum. Það eru tvenns konar hagsmunir, ef svo má segja, sem hér eru í húfi fyrir íslensku og tengjast hlutverki háskóla: I Að hugsa á (slensku Aðlögun alþjóðlegra fræða að íslenskum aðstæðum. Innflutningur á þekkingu. Til þess að fræðin aðlagist samfélaginu þurfa þau að vera á íslensku. Þörf er íðorða og íslenska á að vera kennslumál eftir því sem hægt er. II íslensk frœði Rannsóknir á íslensku máli, bókmenntum, sögu, samfélagi og náttúru. Rnmminn um HI og stjórnun hans Fjárveitingar til kennslu við Háskóla Islands fara nú eftir þjónustusamningi milli stjóm- arráðsins og Háskólans sem var undirritaður af menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og rektor þann 5. október sl. Sá samningur er afskaplega fáorður um það hvað kenna beri. Það eina sem segir um hlutverk og markmið er almenn tilvitnun í lög um Háskóla íslands en hann skal „vera vísindaleg rannsókna- stofnun og vísindaleg fræðslustofnun er veitir nemendum sínum menntun til þess að sinna sjálfstætt vísindalegum verkefnum og til þess að gegna ýmsum störfum í þjóð- félaginu“. Raunar segir að Háskólinn muni „á samningstímanum gera tillögu um nánari útfærslu á hinu lögbundna hlutverki sem feli m.a. í sér markmið til nokkurra ára og árleg markmið, ásamt því að gera tillögu um mælikvarða á starfsemi sína í samræmi við samþykkt ríkisstjómarinnar um árang- ursstjórnun í ríkisrekstri". Enn fremur segir að á samningstímabilinu muni skólinn „vinna sérstaklega að því 1) að nýta upplýs- ingatækni við nám í skólanum og í fjamámi, 2) að stuðla eftir megni að auknum fjölda útskrifaðra kennaraefna í raungreinum, 3) að endurskoða reglur sem háskólaráð hefur sett um stjómun fjármála og starfsmanna- hald í framhaldi af breyttum lögum um skól- ann og breytingum sem samningur þessi mun hafa í för með sér“. Um rannsóknir í háskólanum verður gerður sérstakur samn- ingur síðar. Akvörðun um árlegt fjárframlag rrkisins vegna kennsluverkefnisins verður byggð á verðútreikningi í samræmi við reiknireglur sem menntamálaráðuneytið set- ur og fjölda nemendaígilda í reikniflokkum (sem flokka kostnað við kennsluna, mis- munandi eftir greinum). I reynd þýðir þetta að háskólinn fær greitt eftir fjölda nemenda sem innritast til prófs í þeim greinum sem boðið er upp á. Augljóst er að þessu fyrirkomulagi fylgja ýmsir kost- ir frá sjónarmiði fjármálastjómunar. Meðal annars að hægt er að skipuleggja kennsluna betur og beina fjármunum þangað sem þeirra er þörf og kerfið verður gagnsærra. Einhver myndi kannski segja að við þess- ar aðstæður sé ekki ástæða til að móta neina stefnu um það hvemig Háskólinn þjónar þörfum íslenskrar tungu; markaðurinn ráði þessu. Fari markaðurinn fram á rannsóknir og kennslu í íslensku máli mun HI að sjálf- sögðu reyna að bjóða þann vaming en ef ekki er eftirspurn eftir honum þýðir auð- vitað ekki að bjóða hann fram í viðskiptum. Hér ríkir með öðrum orðum markaðsfrelsi. Við þetta minnka auðvitað hin beinu póli- tísku áhrif yfir Háskólanum og ekki verður eins auðvelt að segja honum fyrir verkum í einstökum atriðum. En er þá ekki hætta á að heildarstefnan fyrir Háskólann gleymist? En rétt eins og menn vilja tryggja „dreifða eignaraðild" þegar eignir ríkisins eru seldar er stjómvöldum í lófa lagið að stjórna mark- aðnum með því að taka það fram í samning- um við Háskóla Islands og aðra háskóla hvað ríkisvaldið vill fá fyrir snúð sinn. Ég minntist á markaðinn og hugsanlegar kröfur ríkisvaldsins á hendur háskólum og skyldur við íslenska tungu en ég hef ekki minnst á einn aðila þessa máls, sjálfa mennta- gyðjuna. Háskóli Islands er rannsóknar- 9

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.