Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 13

Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 13
meistaranáms í íslenskum bókmenntum, er að engu getið. Flytjendur tillögunnar munu svara því til að ætlunin sé ekki að afnema þessar prófgráður, heldur geti menn eftir sem áður lokið meistaraprófi í þessum greinum og vel má svo vera. Þótt óvíst sé um framgang þessara til- lagna bera þær greinilegan keim af alþjóða- hyggjunni sem mér sýnist að ríkt hafi í heimspekideild á undanfömum árum. Lagt er til að kröftunum verði beint meira í átt til hins almenna, frá hinu íslenska. Enn er það til marks um alþjóðahyggju að þegar þróað var vinnumatskerfi, svokallað, sem umbuna átti mönnum fyrir vel unnin rannsóknarstörf, var fyrst ekkert talið mark- tækt nema það birtist í erlendum fræðiritum. Síðar meir var þessu að vísu breytt þannig að talað er um alþjóðleg fræðirit. Og þar telst íslenskur vettvangur með, náðarsamlegast. Þegar þetta kemur allt saman, og helst ekkert er talið marktækt nema það birtist erlendis, má spyrja hvort þetta lýsir minni- máttarkennd og vantrú á öllu sem íslenskt er. Auðvitað getur Háskólinn ekki þvingað menn til að læra íslensku eða bannað þeim að leggja stund á erlend fræði. En hann getur ekki verið þekktur fyrir að haga mál- um sínum þannig að íslensk fræði þynnist út með því að kennsla í íslenskum bókmennt- um verði keppni um það hver er bestur að tjá sig á ensku um það kúríósum sem íslenskar bókmenntir og íslensk menning er, þrátt fyrir allt. Þá fer að vakna spuming um það hvernig Island stendur gagnvart heim- inum. Staða Reykjavíkur gagnvart heimin- um verður þá kannski svipuð og lands- byggðarinnar gagnvart Reykjavík. Vel má spyrja úr því að ég er sjálfur prófessor við heimspekideild — og hef meira að segja verið forseti heimspekideildar þótt nokkur ár séu liðin - hvort mér sé ekki best að líta í eigin bann. En það er spuming hvort við Háskólann einan er að sakast ef hann skortir stefnu í málefnum íslenskrar tungu. Dæmisaga er mikil umræða sem átti sér stað um þörfina á því að efla hag íslenskrar tungu í menntakerfinu á haustdögum 1991. I þessari umræðu tóku þátt margir máls- metandi menn, þar með taldir áhrifamiklir menn á þeirri tíð í Háskólanum. Menn voru sammála um að eitthvað þyrfti að gera til að efla viðgang móðurmálsins í skólakerfinu. En hvað gerðist? A skall efnahagskreppa sem byrjaði með því að hætt var við áform um stóriðju. Stjómvöld brugðust við með fyrirskipunum um niðurskurð og yfirvöld Háskólans gátu ekki komist til að sinna öðru en því hvemig bregðast skyldi við flötum niðurskurði. Allar hinar frómu heitstreng- ingar um nauðsyn úrbóta í móðurmáls- kennslu fuku út í veður og vind. Kannski emm við að einhverju leyti að súpa seyðið af þeim örvæntingarviðbrögðum sem hinn flati niðurskurður í menntakerfinu var á sín- um tíma. Lokaorð Háskólarektor, Páll Skúlason, gerði vanda- mál landsbyggðarinnar að umtalsefni í ræðu við brautskráningu stúdenta í haust. Hann benti réttilega á að menningarmiðjur eru hér úrslitaatriði. Það sem heldur uppi byggð á afskekktum stöðum eru ekki fyrst og fremst há laun eða mikill fiskafli, heldur er það menningin sem staðimir hafa upp á að bjóða sem ræður úrslitum. Stofnun Háskólans á Akureyri var byggðamál. Stofnun Háskóla Islands var byggðamál, raunar var þá talað um sjálfstæðismál. Menningarlíf snýst um miðjur og þeir sem standa lengst frá eru á jaðri. I þessu ljósi er spumingin um viðgang íslenskrar menningar spuming um miðju. Ef íslensk tunga hverfur af markaðnum verður Island ekki lengur miðja, heldur jaðar - og tungumálið, sem hér verður talað, verður e.t.v. einhvers konar enska með íslensku „súbstrati" sem svo er kallað, einhvers konar „pidgin". Hér langar mig að vitna aftur í minn gamla skólameistara en hann sagði: „ ... ef 13

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.