Málfregnir - 01.12.1999, Page 16

Málfregnir - 01.12.1999, Page 16
stærðfræði. Þar segir m.a.: „Kunnátta í ís- lensku og stærðfræði er undirstaða hald- góðrar menntunar. Islenskukennsla er áfram hornsteinn grunnskólanáms. Það verður tryggt með því að fella þjálfun í íslensku máli inn í allar námsgreinar og sjálf ís- lenskukennslan gerð heildstæðari. Islenska verður önnur af kjamagreinum grunnskól- ans ásamt stærðfræði." I ritinu Enn betri skóli segir einnig: „Sjálfstæðir nemendur er áhersluatriði í nýrri skólastefnu. I ljósi þess þarf skólinn að leggja áherslu á þverfaglegt nám og ýmsa fæmiþætti. Hér er vísað til frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða, greiningarhæfni, samstarfshæfni og hæfi- leika til tjáskipta bæði í mæltu og rituðu máli. Ber að huga að þessum þáttum í öllum námsgreinum. Frá upphafi skólagöngu ber að hvetja nemendur til að tjá sig og veita þeim tækifæri til að vinna að úrlausn raun- hæfra verkefna í námi sínu, einir eða í sam- vinnu við aðra. Áhrifaríkasta leiðin til að læra hlutina er að framkvæma þá. Samfella í námi er grundvöllur nýrrar skólastefnu. Skólagangan á að vera samfelld úr leikskóla til háskóla. Eftir því sem unnt er skal starf á hverju stigi miða í senn að því að stuðla að sem bestum þroska og árangri innan þess og að því að búa nemandann undir næsta stig.“ Sérstaklega var gætt að þessum þætti skóla- stefnunnar við vinnu að aðalnámskránum þar sem námskrárnar voru allar unnar á sama tíma. Sami umsjónarmaður hafði yfir- umsjón með námskrárgerð á einstökum námssviðum frá upphafi grunnskóla til loka framhaldsskóla. Verklag við ritun aðalnámskrár Þegar formlegir vinnuhópar voru stofnaðir sumarið 1998 til að skrifa aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla í íslensku tók undirritaður að sér umsjón með því verki fyrir hönd ráðuneytisins. Allir vinnuhópar fengu leiðbeiningar frá ráðuneytinu um ákveðinn ramma sem unnið skyldi eftir. T.d. var Ijóst að samkvæmt ritinu Enn betri skóli ætti að miða íslenskunámskrána við sama kennslustundafjölda að lágmarki og fyrri námskrá. Einnig var gengið eftir því að þjálfun í íslensku og tjáning skyldi vera órjúfanlegur hluti af öllum námsgreinum grunnskóla, þ.e. að allir kennarar ættu að vera íslenskukennarar. Einnig hafa skólar svigrúm til að nýta nokkrar stundir til ráð- stöfunar til að fjölga tímum í íslensku og nýta svigrúm í 9.-10. bekk vegna valgreina. Hvað varðar framhaldsskóla skyldi miða við 15 eininga brautarkjarna í íslensku á öll- um bóknámsbrautum. Leitað var til Samtaka móðurmálskennara eftir tilnefningum í vinnuhóp í íslensku. Edda Kjartansdóttir kennari í Vesturbæjar- skóla, Svanhildur Sverrisdóttir kennari í Garðaskóla og Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir kennari við Fjölbrautaskólann í Ármúla voru tilnefndar af Samtökum móðurmáls- kennara. Þær stöllur báru hita og þunga af sjálfri námskrárgerðinni og leystu það verk mjög vel af hendi. Ráðuneytið leitaði til Sigurðar Konráðssonar prófessors í íslensku við Kennaraháskóla Islands og óskaði eftir faglegri ráðgjöf og stuðningi við námskrár- gerðina og vann hann gott starf með hópn- um. Stjóm Samtaka móðurmáiskennara fékk reglulega drög að námskrá til umsagn- ar og haldnir voru nokkrir gagnlegir fundir með vinnuhópnum og stjóm samtakanna þar sem farið var yfir stöðu verksins og ýmis álitamál. Höskuldur Þráinsson, pró- fessor í íslensku við Háskóla Islands, for- maður forvinnuhópsins og stjórnarmaður í Samtökum móðurmálskennara, veitti einnig ómetanlega hjálp við námskrárgerðina. Drög að námskránni voru reglulega sett á heimasíðu ráðuneytisins og ýmsir komu með ábendingar um einstök atriði, einkum framhaldsskólakennarar í íslensku og þeir sem áttu að tryggja að tölvu- og upplýsinga- tækni væru gerð nægjanlega rækileg skil í íslenskunámskránum. Á ýmsum stigum vinnunnar var einnig farið yfir drög að nám- skránni með hliðsjón af svokölluðum þver- faglegum þáttum sem áttu að birtast í öllum námsgreinum. Framan af þótti t.d. ekki 16

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.