Málfregnir - 01.12.1999, Side 18

Málfregnir - 01.12.1999, Side 18
á þjálfun í töluðu máli, lestri og lesskilningi og ritun, þ.m.t. réttritun. Námsgreinin ís- lenska í grunnskóla á því að vera heildstæð þar sem lögð er áhersla á innbyrðis tengsl þátta og viðfangsefna, innbyrðis jafnvægi allra þátta og eðlilega stígandi í náminu. Islenska er viðamesta námsgrein grunn- skóla, með 6 kennslustundir að lágmarki í 1.-4. bekk og 5 stundir að lágmarki í 5.-10. bekk grunnskóla. Samræmd próf eru haldin í íslensku í 4., 7. og 10. bekk samkvæmt grunnskólalögum. I aðalnámskrá framhaldsskóla í íslensku eru sett fram lokamarkmið fyrir alla náms- þætti íslensku miðað við lok brautarkjarna á bóknámsbrautum. Markmiðin eiga einnig flest við um íslensku í starfsnámi. Islensku- námið er skipulagt í afmörkuðum áföngum. Hver áfangi byggist á áfangalýsingu, áfangamarkmiðum, efnisatriðum og ábend- ingum um námsmat. I brautarkjama bók- námsbrauta, þ.e. á málabraut, félagsfræða- braut og náttúrufræðibraut, er gert ráð fyrir 15 einingum í íslensku. I námskránni er gert ráð fyrir sömu markmiðum í íslensku og sambærilegu inntaki á öllum brautum. Framhaldsskólar geta hins vegar útfært markmið og efnisatriði með ólíkum hætti, bæði eftir aðstæðum, áhuga og brautum. Fyrstu 6 einingar framhaldsskólanáms í íslensku eru settar fram í þremur tveggja eininga áföngum. Það er einkum gert til þess að hægt sé að nota þær áfangalýsingar í íslenskukjama bóknáms og starfsnáms. Ekkert er því til fyrirstöðu að framhalds- skólar skipuleggi þessar 6 einingar í tveimur þriggja eininga áföngum en slíkt er útfærsluatriði og skal koma fram í skóla- námskrám einstakra skóla. Til viðbótar við 15 eininga brautarkjama er í námskránni skilgreint 6 eininga mis- munandi viðbótamám í íslensku á kjör- sviðum mála- og félagsfræðabrauta. Um er að ræða tvo þriggja eininga áfanga fyrir hvora braut. Nemendur á náttúrufræðibraut geta einnig valið kjörsviðsáfanga í íslensku. Nemendur á málabrautum geta einnig valið kjörsviðsáfanga félagsfræðabrautar í ís- lensku og öfugt. Mælt er með að nemendur taki a.m.k. einn bókmenntatengdan áfanga og einn málfræðiáfanga. Loks er í aðalnámskrá framhaldsskóla skilgreindur sérstakur tjáningar- og sam- skiptaáfangi sem nemendur geta valið á öllum námsbrautum enda er sérstök þjálfun í tjáningu talin mikilvæg. I námskránni er sérstaklega bent á að þessi áfangi sé bæði hagnýtur og mikilvægur fyrir nemendur á öllum brautum framhaldsskóla og því ætti að hvetja þá til að velja hann sérstaklega sem hluta af frjálsu vali. I umfjöllun um talað mál og framsögn er tekið fram að mikilvægt sé að tengja þjálfun í töluðu máli og framsögn við bókmenntalestur, lestur ýmissa annarra texta og mál og málnotkun. Æskilegt er talið að tengja þjálfun í töluðu máli og tjáningu sem mest við einstaka íslenskuáfanga í framhaldsskólum þannig að stígandi í tjáningamáminu verði eðlileg og að framhaldsskólanemendur fái ríkuleg tækifæri til tjáningar. Af þeim sökum er ekki skilgreindur sérstakur skylduáfangi í tjáningu í framhaldsskólum. íslenska í grunn- og framhaldsskólum I upphafi aðalnámskrár er fjallað um náms- greinina íslensku í grunn- og framhaldsskól- um og því næst um nám og kennslu. Þeir kaflar eru í meginatriðum eins fyrir bæði skólastigin en þó er vikið að fleiri þáttum í framhaldsskólahlutanum, t.d. hvað varðar bókmenntir, málfræði og tungutækni. Síðan er í báðum námskránum sérstakur kafli um námsmat sem er í meginatriðum eins, bæði almenn umfjöllun og dæmi um matsað- ferðir. I námskránum eru sett lokamarkmið fyrir alla námsþætti íslensku í grunnskóla. Sérstök lokamarkmið eru einnig sett fyrir íslenskunám nýbúa, þ.e. um íslensku sem annað tungumál fyrir nemendur sem tala annað móðurmál. Einnig eru sett lokamark- mið fyrir íslenskunám heyrnarlausra og táknmálsnám heyrnarlausra. I aðalnámskrá grunnskóla eru allir þættir íslensku einnig 18

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.