Málfregnir - 01.12.1999, Page 24

Málfregnir - 01.12.1999, Page 24
staklega bent á leikinn í því sambandi en í kaflanum um markmið og leiðir segir að leikurinn sé náms- og þroskaleið bamsins. I leikskólanum gefast mörg tækifæri til að þroska og örva mál barna. Hið fjölbreytta starf sem þar fer fram, daglegar athafnir og ekki síst leikurinn skapar ákjósanleg skil- yrði til málörvunar. Starf leikskólakennar- ans felst í meira mæli en annarra kennara í umönnun barna. I umönnuninni felast möguleikar á nánari samskiptum sem koma málinu ti! góða. Það á sérstaklega við um yngstu börnin en þó ekki eingöngu. I þessu sambandi er mikilvægt að setja orð á athafn- ir og reynslu. Þá eru færri böm í umsjá hvers leikskólakennara en t.d. grunnskólakennara, sem einnig eykur möguleika á meiri málleg- um samskiptum. Samskipti við foreldra leikskólabarna em einnig að öllu jöfnu meiri en í grunnskólanum þar eð foreldrar koma með og sækja böm sín daglega í leikskól- ann. Það gefur leikskólakennurunum betri möguleika á að kynnast hverju bami betur, aðstæðum þess og þörfum og miða störf sín við þroska hvers og eins. Samtöl bama og fullorðinna skipta miklu máli fyrir málþroskann og er ein mikilvæg- asta aðferðin sem leikskólakennarar geta nýtt til málræktar. Samtöl geta verið um eitt- hvert tiltekið viðfangsefni sem verið er að fást við en þau geta líka sprottið upp við óformlegri aðstæður. Leikskólakennarar þurfa að nýta hvert tækifæri sem gefst og svara áhuga barna með því að gefa sér tíma til að tala við þau þegar þau vilja og eru til- búin til þess. Dagskipulagið má ekki vera of stíft því að samtöl þurfa tíma. I samtölum þjálfast líka hlustun. Leikskólakennarar þurfa líka að kunna að hlusta og sýna þolin- mæði og búa yfir aðferðum til að leiða sam- töl áfram þannig að bömin fái tækifæri til tjá sig í sem ítarlegustu máli. Orðaforðinn eykst í leik og starfi og gæta verður þess að bömin fái fjölbreytta reynslu á ýmsum sviðum. Þemastarf og vettvangs- ferðir auka orðaforða og leikskólakennarar verða að hafa skýra áætlun um til hvers þeir ætlast af því starfi, með tilliti til málræktar. Daglegar venjur, s.s. máltíðir og að klæða sig í og úr í fataklefanum, gefa mikla mögu- leika á að auka orðaforða. Síðast en ekki síst fá börn mikinn orðaforða úr bamabókum því að ritmálið er yfirleitt miklu ítarlegra en talmálið og orðaforðinn jafnframt fjöl- breyttari. Lestur fyrir böm er reyndar sá liður í starfsemi leikskólanna sem er einna mikil- vægastur með tilliti til málræktar í víðum skilningi. Lestur þjálfar líka hlustun og einbeitingu. I aðalnámskránni stendur m.a. um bamabækur (bls. 20): „Bamabækur eru ómissandi í leikskóla- starfi, bæði til málörvunar og til að miðla fróðleik og reynslu. Bækur þurfa að vera hluti af daglegu umhverfi bama til að þau læri að njóta þeirra." Barnabókmenntir hafa margþætta þýð- ingu í uppeldi og menntun bama. Líkt og sjálft móðurmálið snertir alla starfsemi leik- skólans, nýtast bamabækur á fjölbreyttan hátt í leikskólastarfinu. Þær hafa ríkulegt skemmtigildi, fræðslu- og uppeldisgildi, sögulegt gildi og ekki síst menningarlegt og listrænt gildi. Myndlist og bókmenntir tengjast sterkum böndum í barnabókum því að bækur við hæfi leikskólabama eru mjög gjarnan ríkulega myndskreyttar og samspil mynda og texta mikilvægt. Það er nánast sama hvar gripið er niður í starfið í leik- skólunum, alltaf er hægt að grípa til bama- bókarinnar. Gildir þá einu hvort um er að ræða hreina afþreyingu eða hin fjölbreyti- legu viðfangsefni sem til umfjöllunar eru hverju sinni. Sögur og vísur em til um hvað- eina til að auðga og skemmta, víkka sjón- deildarhring og læra. Og þá má heldur ekki gleyma þjóðsögum og ævintýrum. Bamabókmenntir eru því ríkur og fyrir- ferðarmikill þáttur í leikskólastarfinu sem hefur farið vaxandi á undanfömum árum. Það má e.t.v. að einhverju leyti þakka kennslunni í leikskólaskor, ásamt umræðu um læsi og bóklestur á opinbemm vettvangi og auknum metnaði í ritun og útgáfu barna- 24

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.