Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 47

Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 47
beggja. Finna þarf færar leiðir í þessu máli en augljóst er að sýna verður aukið umburð- arlyndi gagnvart nýbúunt hvað málnotkun þeirra varðar, enda stafar lítil hætta af því að fyrsta kynslóð nýbúa læri ekki málið til hlítar. Auk þess er umburðarlyndi gagnvart máli annarra hluti af þeirri mannvirðingu sem er hluti af menntun og homsteinn í virku lýðræði. 21 En þótt íslenska standi nú sterkar en nokkru sinni eru ýmsar blikur á lofti, eins og ég hef reynt að rekja hér. Fámenn þjóð verður að huga að tungu sinni og menningu í þessu umróti og þótt mikið hafi áunnist í málrækt- arstarfi á íslandi undanfamar tvær aldir og íslensk tunga standi traustar en nokkru sinni er þörf á umræðu um málnotkun, málvernd og málrækt í heild sinni. Fyrir mitt leyti tel ég að setja beri lög um málstefnu íslenskra stjómvalda. A sínum tíma var stofnun Islenskrar mál- nefndar mikilsvert skref í átt að opinberri málstefnu. Stofnun málnefndarinnar átti sér langan aðdraganda. Arið 1950 lagði þáver- andi menntamálaráðherra, Bjöm Olafsson, fram frumvarp til laga um Akademíu Is- lands. Átti akademían að hafa forustu um allt er varðaði rœkt við íslenska tungu og stuðlaði að því að varðveita stofn hennar lifandi og óspilltan og auðga hana í sam- rcemi við erfðir hennar og eðli (Halldór Halldórsson og Baldur Jónsson, Islensk málnefnd 1964-1989. Afmœlisrit, 1993, bls. 15). Akademía íslands átti að vera mál- vemdar- og málræktarstofnun og voru hug- myndir sóttar til Academie frangaise, sem stofnuð var 1635, og til Svenska Akademien, sem stofnuð var 1786. Frumvarpið var tekið til fyrstu umræðu í neðri deild Alþingis 26. janúar 1951 og vísað til annarrar umræðu og menntamálanefndar - en sofnaði í nefnd. Með bréfi 30. júlí 1964 var íslensk mál- nefnd síðan stofnuð, er dr. Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra setti nefndinni starfs- reglur, en nefndin átti að annast nýyrða- staifsemi sem tii þess tíma hafði farið fram á vegum menntamálaráðuneytisins með atbeina orðabókanefndar Háskóla Islands. Auk þess átti nefndin „að gegna svipuðu leiðbeiningar- og málvemdarhlutverki og málnefndir annars staðar á Norðurlöndum og hafa samstarf við þær“ (Fréttabréf íslenskrar málnefndar, 11. maí 1982, bls. 4). Árið eftir voru Islenskri málnefnd settar formlegar reglur þar sem tekið er fram að nefndin væri ráðgjafarstofnun sem bæri „að veita opinberum stofnunum og almenningi leiðbeiningar um málleg efni á fræðilegum grunni" (bls. 6). Minni metnaður kom fram í starfsregium fyrir Islenska málnefnd frá 1965 en í frumvarpi um Akademíu Islands árið 1950. Starf Islenskrar málnefndar hefur engu að síður verið farsælt enda þótt það yrði minna en ætlast var til í upphafi (sjá frekar Islensk málnefnd 1964-1989. Afmœlis- rit, 1993). Með lögum nr. 80/1984 var stofnuð Islensk málstöð og tók hún formlega til starfa í upphafi árs 1985. Með stofnun Mál- rœktarsjóðs kom enn fram aukinn metnaður í íslensku málræktarstarfi (sjá frekar Mál- fregnir 5,1, 1991). Hafa margir lagt málinu lið og er ekki á nokkum hallað þótt sérstak- lega sé nefnt nafn Baldurs Jónssonar prófessors. 22 Islensk tunga mun áfram vega þyngst í varð- veislu sjálfstæðrar menningar og stjórnar- farslegs fullveldis þjóðarinnar. Landfræði- leg og menningarleg einangrun landsins, sem áður varð til þess að tungan hélt velli, dugar ekki lengur. íslenskt þjóðfélag hefur ekki sömu sérstöðu og áður og alþjóða- hyggja mótar viðhorf Islendinga - ekki síst viðhorf ungs fólks sem er meiri heimsborg- arar og óbundnara heimahögum en fyrri kynslóðir, enda stundum talað um „hinn nýja Islending" sem láti sér í léttu rúmi liggja hvar hann er búsettur og hvaða mál hann talar, aðeins ef hann hefur starf og laun við hæfi og getur lifað því lífi sem hann kýs. 47

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.