Málfregnir - 01.12.2002, Page 11

Málfregnir - 01.12.2002, Page 11
BENEDIKT JÓHANNESSON r Vefst Islendingum tunga um tönn í viðskiptum? Erindi á málrœktarþingi Islenskrar málnefndar á degi íslenskrar tnngu 2002. Auk Benedikts fluttu þar erindi Andri Snœr Magnason rithöfundur, Guðrún Helgadóttir rithöfundur og Þorvaldur Gylfason prófessor (prentað í þessu hefti Málfregna). -Ritstj. Það er einn galli á umræðu um íslensku að þegar menn hætta sér út fyrir hinn þrönga ramma sem þjóðin hefur sjálf sett sér um ástkæra, ylhýra málið þá eiga þeir á hættu að kalla yfir sig reiði sjálfskipaðra málverndarmanna. Og það sem meira er, þessir ágætu aðilar vilja ekki bara vernda málið sjálft heldur líka vernda þjóðina fyrir umræðum um íslenskuna. Tungumál almennt og þar með talin íslenska eru fyrst og fremst tæki til þess að menn geti átt samskipti hver við annan. Ritmálið og nú á síðustu áratugum hljóð- og myndaupptökur verða líka til þess að löngu liðnir menn geta miðlað okkur af visku og fróðleik þó að eðli málsins samkvæmt getum við (flest a.m.k.) ekki haft aftur samband við þá. Einmitt vegna þess að tungumálið er notað til samskipta er mikilvægt að það fylgi ákveðnum reglum. Með því móti að báðir tali sama mál er okkur alveg ljóst hvað viðmælandi okkar meinar og hann skilur okkur með sama hætti. Auðvitað er það alls ekki nauðsynlegt að menn tali nákvæmlega eftir reglunum. Við skiljum börn sem tala rangt og hafa lítinn orðaforða og eins getum við gert okkur skiljanleg á erlendri grund þó að við séum aðeins með undirstöðukunnáttu í máli innfæddra. Til þess að menn skilji hver annan er vilji oft allt sem þarf. Aður en vikið er að meginefni þessa erindis er rétt að árétta að viðskipti eru ekki ný af nálinni hér á landi heldur jafngömul byggð. Þá riðu hetjur um héruð og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim sagði Jónas þegar hann vildi lýsa gullöld Islendinga á þjóðveldistíma. Ekki hefur varningurinn verið gefins enda eru mörg dæmi um frásagnir af ýmiss konar viðskiptum í Islendingasögum þó svo að þau hverfi yfirleitt í skuggann af vopnaskaki og vígaferlum. A okkar öld er þessu öfugt farið. Viðskiptaátök eru blásin út með stríðsletri í blöðum meðan handalögmál og ódæðisverk hér á landi hverfa oftast í smáfréttum á innsíðum. En það var útúrdúr. Gaman er að lesa Islandslýsingu þá er kennd hefur verið við Odd biskup Einarsson og rituð er í upphafi 17. aldar: „[Þjjóðtungu Islendinga, [hef] ég drepið á að framan [en hún hefur] haldist óskert og óspillt öldum saman allt fram á þennan dag. Og enda þótt útlendingum finnist ofboð naumlega taka því að hafa hana í neinum hámælum, því sérhver óþekkt tunga, sem borin er saman við einhverja þekkta, er vanalega talin ósiðuð, þá hef ég samt sýnt fram á það hér að framan, að sennilegt sé, að 11

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.