Málfregnir - 01.12.2002, Side 17

Málfregnir - 01.12.2002, Side 17
vakið úr gleymsku, enn í dag vakið áhuga fjölda manns á menningararfinum. Slíkt væri ómögulegt ef ekki væri íslenskan. Gjaldið, sem ég reiknaði um kostnað við íslenskuna, samsvarar um 12 þúsund króna gjaldi á meðalfjölskyldu á mánuði. Mér finnst það ekki hátt gjald fyrir að geta lesið eddukvæði og Arnljót Olafsson mér til skemmtunar og upplyftingar. Það vill svo til að þetta er svipuð íjárhæð og það kostar að vera áskrifandi að öllum dagblöðum og sjónvarpsstöðvum hér á landi. En það verður aldrei svo að þjóðin ákveði einn góðan veðurdag að hætta að tala íslensku og taka upp ensku hennar í stað. Ég hef heldur enga trú á því að íslensk fyrirtæki fari almennt að taka upp ensku í samskiptum sín á milli. Islendingar geta eflt virðingu fyrir viðskiptum með því að efla kennslu í íslensku í háskóladeildum. Þeim peningum væri vel varið því að færni í móðurmálinu fer saman við skýra hugsun. Ég ætla að enda þetta spjall á tilvitnun í Arnljót Olafsson úr Auðfnedi hans: „En löngunin er einmitt sporinn, keyrið, svipan á vilja mannsins og vit. Vér lærum fyrr eðr síðar, að oss ríðr á hug og dug, áræði, framtaksemi og framkvæmd, á viti, þekkíng og kunnáttu. Vér lærum og seint eðr snemma, að kapp er bezt með forsjá, lærum að sníða oss stakk eftir vexti, lærum þessar auð- fræðislegu dygðir: varhygð, varfærni og gætni, forsjá og fyrirhyggju, hófsemi og stillíng, nægjusemi og sjálfsafneitun. Það er og unnið, að vér lærum að nota betr og betr krafta vora, til að útvega oss úr nægtabúri náttúrugæðanna æ fleiri og fleiri fullnægíngar handa þörfum vorum. Lærum í einu orði sagt, að halda stöðugt áleiðis á framfaravegi menníngarinnar." (Arnljótur Ólafsson 1880[1988]:12-13) Heimildir Arnljótur Ólafsson. 1880[1988]. Auðfrœði. Gefin út af Hinu íslenzka bókmentafélagi. [2. prentun. Fjölsýn Forlag með aðild Félags viðskipta- og hagfræðinga og Félags viðskiptafræðinema, Reykjavík.] Benedikt Jóhannesson. 1998. Hvað kostar að tala íslensku? Greinar af sama meiði helgaðar Indriða Gíslasyni sjötugum. Bls. 303-316. Rannsóknarstofnun Kenn- araháskóla íslands, Reykjavík. Björn Bjarnason. 1999. Menntun/menning - almenn skynsemi - kosningaferðir. Pistill á bjorn.is 18. apríl 1999. Oddur Einarsson. 1971. Islandslýsing. Qualiscunque descriptio Islandiae. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík. 17

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.