Málfregnir - 01.12.2002, Qupperneq 23
Tónatákn
taílenska umritun skýring
1 \ Lágtónn
í/ /\ Fallandi tónn
(TV r Hár tónn
+ V Rísandi tónn
Tónatáknin eru skrifuð ofan við bókstafina.
Almennur tónn eða grunntónn er ekki
merktur sérstaklega. Auk þess gilda reglur
um tóna, bæði þegar ekkert tónamerki er
til staðar og um rithátt.
Nokkur sértákn
kennd sem annað tungumál í Taílandi en
áhersla er lögð á málfræði fremur en
talmál. Vonast er til að umritunarreglurnar
auk orðalistanna verði góður lykill að
íslenskunámi Taílendinga, t.d. í tengslum
við kennsluefni sem er í vinnslu.
Flestir Taílendingar á Islandi starfa í fisk-
iðnaði eða í ræstingum á spítölum. Þeim
líkar að sögn vel að búa á Islandi og eru
ánægðir með umhverfið, stjórnarhætti og
fleira. Hópurinn kemur hvaðanæva úr Taí-
landi, helst er að fólk sé af sömu slóðum
þar sem stórar fjölskyldur hafa komið saman.
Taílenskt talmál er breytilegt eftir
landsvæðum, mállýskur eru ólíkar eftir því
hvort fólk er að norðan, sunnan, austan eða
vestan og jafnvel svo að talmálið skiljist
ekki milli svæða. En ritmálið er hið sama
alls staðar og miðast við fimmta svæðið,
taílenska umritun skýring
cí V/ Stytting á löngu atkvæði (þegar styttra atkvæði er ekki til í sértákni).
<r \ Gerir tákn hljóðlaus, t.d. í enda orðs.
*1 « Táknar endurtekningu orðs, orða eða jafhvel setningar.
e fSJ „Jamakan“ er skrifað ofan við fyrsta tákn samhljóðaklasa í gömlum textum til að tákna að tvo samhljóða skuli bera fram sem samhljóðaklasa.
o § „Takæ“ eða „fongman" er notað í upphafi erinda í kveðskap og líka í upphafi málsgreinar í gömlum textum.
“11 II „Angankú" er notað til að ljúka eða loka málsgreinum í gömlum textum. Það má einnig sameina tákninu „komut“ og mynda 1lc~ til að ljúka sögu.
» „Komut“ er notað í lok sögu til að gefa endinn til kynna í gömlum textum.
Taílendingar og taílenska
Taílendingar hér á landi eru um 500 og
búsettir um allt land. Þó eru flestir í
Reykjavík, á Akureyri og á Vestfjörðum.
Mest tala þeir taílensku þar sem erfitt eða
seinlegt þykir að læra íslenskuna. Enska er
höfuðborgina Bangkok, þar sem um er að
ræða nokkurs konar ríkismál.
Taílenska er frábrugðin öllum öðrum
tungumálum. Hún er af fylkingu taímála
en er eingöngu töluð í Taílandi. I raun eru
til þrjár útgáfur af tungumálinu sem
23