Málfregnir - 01.12.2002, Blaðsíða 29

Málfregnir - 01.12.2002, Blaðsíða 29
HELGI HALLGRÍMSSON Um íslenskar nafngiftir plantna Inngangur Allmargar blómplöntur og byrkningar hafa borið íslensk nöfn frá fornu fari. Sumar höfðu mörg nöfn, mismunandi eftir landshlutum, en meginhluti íslenskra plantna hefur þó ekki átt alþýðleg nöfn og því hefur ávallt verið nauðsyn að búa til ný nöfn á tegundir hinna ýmsu plöntuflokka þegar um þá er fjallað. Það voru grasafróðir menn sem riðu á vaðið í nýnefningum lífvera hérlendis og mótuðu reglur um þær. Hér verður rakin saga þessa ntáls í stórum dráttum, leiddar í ljós helstu reglur sem íslenskar nafngiftir plantna hafa lotið og athugað hvernig þeim hefur verið fylgt. (Þá verður lauslega getið um nýnefningar dýra þar sem það er nauðsynlegt í þessu samhengi. Sveppir eru hér taldir með plöntum eins og lengi hefur tíðkast.) Nafngiftir á 17. og 18. öld Elsta (prentuð) heimild um íslensk plöntunöfn er rit Gísla Oddssonar biskups: De mirabilibus Islandiae (Um undur Islands) sem skrifað var á latínu 1638 en ekki gefið út fyrr en 1917 og á íslensku 1942. Þar er að finna um 120 íslensk plöntunöfn sem öll munu vera gömul og rótgróin. Fyrstu verulegu ritin um náttúru Islands komu út á síðari hluta 18. aldar. Hin mikla Ferðabók Eggerts Olafssonar (1772), sem rituð var á dönsku, varð aldrei al- menningseign. Þar er getið um ca 150 tegundir plantna og eru alþýðunöfn tilfærð við ntargar þeirra. Árið 1781 birtist skrá yfir íslensk dýra- og plöntunöfn í fyrsta bindi af Ritum hins íslenska Lærdómslistafélags eftir O.O. sem mun vera Ólafur Ólafsson er síðar nefndi sig Olavius. Þar eru skráð 240 íslensk plöntunöfn með latneskum samheitum, reyndar allmörg á erlendum tegundum. Er þessi skrá hin merkasta en lítið er þar af nýnefnum. Tveim árum síðar (1783) kom út bókin Grasnytjar eftir Björn Halldórsson í Sauðlauksdal, lítil og handhæg bók, sem hlaut mikla útbreiðslu og varð vinsæl af alþýðu manna. Þar er getið um hátt í 200 tegundir, með íslenskum nöfnum. Langflest þeirra eru gömul og gróin en nokkur eru sýnilega nýnefni, mynduð út frá gömlum nöfnum, svo sem mýrafinnungur (Tricho- phorum caespitosum?) og töðufinnungur (Nardus stricta), kaldaveslismosi (Vauch- eria sp.?), steinbrytill eða steinbrjótur (Saxifraga). Nýnefni Björns eru mynduð eftir íslenskum málreglum og því oft torgreinanleg frá alþýðunöfnum. Þó bregður erlendum áhrifum aðeins fyrir, t.d. nefnir hann gleymmérei gleymdu mér ekki og arfi með bláu blómstri. I Forsog til en Islandsk Naturhistorie eftir Nikolai Mohr (1786) er getið fjölda íslenskra alþýðunafna en varla eru þar nokkur nýnefni. I aldarlok ritaði Sveinn Pálsson læknir sína ágætu Ferðabók á dönsku. Hann var vel að sér í grasafræði og getur um mjög margar plöntutegundir en oftast bara með latnesku heiti. Bókin var ekki gefin út fyrr en árið 1945 og þá í íslenskri þýðingu. Oddur Hjaltalín og tvínefnareglan Með lslenzkri grasafrœði eftir Odd Hjaltalín héraðslækni, sem Hið ísl. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.