Málfregnir - 01.12.2002, Síða 32

Málfregnir - 01.12.2002, Síða 32
Einfaldast er þá að nota kvíslarnafnið óbreytt sem seinni lið og það er sú regla sem Stefán beitir oftast. Dæmi: Kvíslin Ranunculus fær nafnið Sóley og síðan eru tegundanöfnin brennisóley, dvergsóley, jöklasóley o.s.frv. mynduð af því. Þetta er auðvelt þar sem kvíslarnöfn eru stutt eða ósamsett og jafnvel tveggja og þriggja atkvæða nöfn eins og Sveifgras (Poa) og Steinbrjótur (Saxifraga) geta gengið, sbr. tegundanöfnin blásveifgras, kjarrsveifgras, gullsteinbrjótur, snæsteinbrjótur o.fl. Þegar kvíslarnöfn hafa fleiri atkvæði en þrjú fer málið að vandast. Kvíslarnafnið Arfanóra er ónothæft í samsetningum. Þá tekur Stefán það til bragðs að nota seinni hluta orðsins og býr þannig til tegunda- nöfnin melanóra og móanóra enda getur orðið nóra staðið sjálfstætt og allt eins verið kvíslarnafn eitt sér. Nokkur dæmi eru um að Stefán myndar ný tegundanöfn með hljóðvarpi af kvísl- arnöfnum eða öðrum tegundaheitum: Dæmi: Krókarfi eða Krækill (Sagina) og tegundanöfnin broddkrœkill, skammkrœk- ill o.s.frv. Einnig tegundanöfnin vatnsnœli (af vatnsnál), maríuvendlingur (af mariu- vöndur). Stefán lýsir þessu viðfangsefni í formála Flóru íslands með svofelldum orðum, eftir að hafa rætt um „latínsku nöfnin“: „Ekki voru íslenzku nöfnin betri viðureignar. Bæði meðal alþýðu og eins í íslenzkum grasaritum er hinn mesti ruglingur á plöntunöfnunum, sama plantan nefnd mörgum nöfnum, og sama nafnið haft á mörgum, opt fjarskyldum tegundum, nöfnin allavega afbökuð o.s.frv. leg hef reynt að greiða úr öllu þessu eptir beztu föngum. Opt hefur mjer tekizt það, en stundum hef jeg orðið að smella á plöntuna einhverju vissu nafni, nokkurnveginn af handahófi. Hef jeg þá einkum farið eptir því, hvert nafnið var algengast eða víðast haft í riti, og mjer þótti fegurst og bezt við eiga. Annað var þó verra viðfangs. Allur fjöldinn af íslenzkum plöntum er nafnlaus á voru máli. Var þá annaðhvort að láta sjer nægja latinska nafnið eitt á öllum slíkum plöntum eða nefna þær allar einhverju íslenzku nafni, og þann kost tók jeg, þó sú væri þrautin þyngri. Tegunda- nöfn hef jeg víða gjört að kynsnöfnum. Þar sem kynsnöfn eru samsett, hef jeg sumstaðar myndað tegundarnafnið með því að skeyta orð, er einkenni tegundina, framan við seinni hluta kynnafnsins." (Stefán Stefánsson 1901 :VI-VII) Frávik Stefáns frá reglunum Ekki verður sagt að Stefán fylgi ofangreindum nafnareglum út í æsar. Stundum velur hann óhentug alþýðunöfn sem kvíslarheiti og lendir í vandræðum með að leiða tegundanöfnin af þeim. Sem dæmi má nefna kvíslarnafnið Vetrarlilja (Pyrola). Síðari hlutinn -lilja hefur fasta merkingu í málinu sem heiti á óskyldum plöntuflokki. Því urðu tegundanöfnin, klukkublóm, bjöllulilja, vetrarlaukur eða grœnlilja, dálítið vandræðaleg og fylgja ekki reglum hans. A stöku stað í Flóru fer Stefán öfugt að, þ.e. tekur fyrri hluta kvíslarnafnsins og notar sem seinni hluta tegundarnafns. Dæmi: Kvíslin Blöðkujurt (Polygonum) og tegundirnar tjarnablaðka og túnblaðka (kornsúra). Loks eru fáein tilvik þar sem hann virðist ekki reyna að fylgja reglum. Dæmi: Fjandafæla (Gnaphalium) en þar heita tegundirnar grámulla, grámygla, grájurt og fjandafœla. Hér er það helst forliðurinn grá- sem tengir nöfnin saman og því hefði verið eðlilegast að kalla kvíslina Grájurt. Sama má segja um kvíslina Skúfgras (Scirpus), með tegundunum vatnsnál, vatnsnœli, mýra- finnungi ogfitjafinnungi. Það sést af þessu að mikið er undir því komið að velja stutt og laggóð kvíslarnöfn sem auðvelt er að nota í samsetningum eða leiða af aðrar orðmyndir. Almenningur gerir oft lítinn mun á kvísl og tegund og telur oft að þær fyrrnefndu séu tegundir. 32

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.