Málfregnir - 01.12.2002, Page 33
Það leiddi því af sjálfu sér að mörg gömul
jurtanöfn voru tekin upp sent kvíslarnöfn,
t.d. Sóley, Fífill, Bládepla og Arfi, eins og
Stefán minnist á í formálanum.
Þegar aðeins er um eina íslenska tegund
að ræða í kvísl er tegundin yfirleitt sam-
nefnd henni. Dæmi: Fjallabrúða (Dia-
pensia) sem bæði kvíslar- og tegundarnafn.
Stundum er þó vikið frá þessu, t.d. ber
kvíslin Dryas nafnið Rjúpnalauf en
tegundarnafnið er holtasóley. Rubus
nefnist Klungur en tegundin hrúta-
berjalyng. (Þessi aðgreining hefur ekki fest
í málinu.)
Þessi dæmi sýna að Stefán fór frjálslega
með nafngiftareglur sínar og leyfði sér
mörg frávik. Vitnar það kannski um fjöl-
hæfni hans og smekkvísi því að einnig í
þessu efni fylgir hann hinni almennu hefð
tungumála sem oft eru sjálfum sér ósam-
kvæm og hafa ótal undantekningar frá öll-
um reglum. Þessi frávik auka fjölbreytni
íslensku plöntunafnanna.
Gömlu nöfnin
Stefán tekur gömlu íslensku nöfnin
vanalega upp óbreytt en þau eru oftar en
ekki til trafala og setja allar reglur úr
skorðum eins og fram hefur komið.
Steindór Steindórsson (1978) telur að
Stefán hafi gert sér far um að kynna sér
gömul plöntunöfn af vörum almennings og
jafnvel ætlað að semja bók um íslensk
plöntunöfn. Engin drög að slíkri bók eru
þó til frá hans hendi og ekki veit ég til þess
að hann hafi safnað nöfnum úr gömlum
ritum. Það gerði hins vegar Olafur
Davíðsson sem var Stefáni mjög innan
handar við samningu Flórunnar. Hafa
sumir lagt Stefáni það til lasts hversu lítinn
áhuga hann sýndi á þessari hlið málsins og
eins varðandi nytjar plantnanna eða
þjóðtrú þeim tengda. Hending er ef á það
er minnst í Flóru hans enda tíðkaðist það
ekki í samsvarandi erlendum bókum.
Steindór vakti athygli á því í greinininni
Islenzk plöntuheiti í Náttúrufrœðingnum
1939 að gömlu alþýðunöfnin væru að
tapast og nefnir Flóru Islands sem eina af
ástæðum þess:
„Ymsir alþýðumenn hika við að halda þessum
gömlu heitum á lofti, þegar til eru hin
lögfestu heitin, sem svo mætti nefna, þeir líta
á gömlu heitin sem eins konar vanþekkingar-
tákn, sem þeir vitanlega vilja ekki láta í ljós
að óreyndu; hefi ég þráfaldlega rekið mig á
þetta viðhorf, meðai manna út um land.“
(Steindór Steindórsson 1939:85)
Það kom reyndar í hlut Steindórs að
safna þeim gömlu plöntunöfnum sem til
voru í prentuðu máli og handritum og setja
saman í bók (Islensk plöntunöfn, 1978).
Byggði hann þar á söfnunarstarfi Ólafs
Davíðssonar. Skipuleg söfnun plöntunafna
úr mæltu máli hefur hins vegar aldrei farið
fram, svo mér sé kunnugt, og má ætla að
mikill fjöldi þeirra hafi glatast.
Seinni útgáfur flórunnar
Furðulítilla breytinga verður vart frá 1.
útgáfu Flóru íslands til 2. útgáfu (1924)
sem Stefán sá um að mestu leyti. Hann gat
þó ekki lagt síðustu hönd á hana því hann
lést í janúar 1921. Bendir það til að hann
hafi í heild verið nokkuð ánægður með
nafngiftir sínar. Valtýr Stefánsson segir í
formála 2. útgáfu: „Fáeinar breytingar eru
og á íslensku nöfnunum og fræðiorðunum,
en þær eru allar smávægilegar." Til dæmis
hefur kvíslin Alchemilla, sem í 1. útg. var
ónefnd, hlotið nafnið Döggblaðka, fallegt
nafn en í engu samræmi við tegundanöfnin
sem flest enda á -maríustakkur. Nafnið
Hnoðri er tekið upp fyrir Steinajurt og
tegundanöfnin löguð að því. I 3. útgáfu
Flórunnar (1948), sem Steindór Steindórs-
son sá um, virðist nafngiftum 2. útgáfu
vera haldið óbreyttum.
Það verður heldur ekki annað sagt en að
Stefáni hafi tekist vel með nafngiftir sínar
og fyrir þær hlaut hann verðugt hrós. Um
það farast Steindóri Steindórssyni svo orð:
33