Málfregnir - 01.12.2002, Síða 37

Málfregnir - 01.12.2002, Síða 37
Næst í röðinni var bókin Innijurlir (1936) sem Óskar B. Vilhjálmsson tók saman. Þar er fjallað um ca 150 kvíslir erlendra plantna og allmargar tegundir nefndar sem hægt er að rækta í stofum eða gróðurskálum. Um nafngiftir segir höfundur: „Nöfn öll eru á latínu (grísku eða indversku) og hafa alþjóðagildi. Flestum jurtunum fylgir auk þess íslenzkt nafn. Venjulega er það fræðinafnið, danska eða þýzka nafnið, sem eru íslenzkuð. Nöfnin eru flest ný og ber aðeins að taka sem tillögur." (Óskar B. Vilhjálmsson 1936:37) Þessi íslensku kvislanöfn eru oftast tví- eða þríliðuð og því ekki hentug til að leiða af þeim tegundanöfn enda er það varla reynt. Árið 1957 gaf Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri út bókina Stofu- blóm eftir Ingólf Davíðsson. í henni er getið um 170 plöntukvísla, með latneskum og íslenskum nöfnum. í formála kemur fram að „nöfn plantnanna eru að mestu leyti þau sömu og í Rósum og Innijurtum“ en „mörgum tegundum (einkum hinum nýrri) hafa verið gefin íslenzk nöfn, ef þau voru ekki til áður“. Ekki verður séð að nein regla sé í þessum nafngiftum og tví- eða fleirkvæð nöfn eru allmörg, svo sem börn Leu (Spironema fragrans), gyóingur- inn gangandi (Tradescentia) og disa í dalakofanum (Disandra). Árið 1964 kom út bókarkverið Stofublóm í litum sem Ingimar Óskarsson þýddi og staðfærði eftir dönsku kveri. Síðan hefur fjöldi slíkra bóka verið gefinn út hérlendis, flestar eða allar þýddar, og eru fræðinöfnin oftast notuð sem aðalnöfn enda þótt íslenskra nafna sé líka getið. Svo virðist sem íslensk heiti hafi lítið náð að festast við þessar plöntur vegna þess hve fræðinöfn eða erlend heiti voru snemma orðin rótgróin. Aðrar erlendar plöntur Lítið kvað að íslenskum nafngiftum á plöntum, sem hvorki vaxa villtar né finnast í ræktun hér á landi, fyrr en farið var að þýða fjölþjóðleg rit um þau efni á sjöunda áratug síðustu aldar. Mun Ingimar Óskarsson hafa riðið á vaðið í því efni, með þýðingu alþýðlegra myndabóka í norrænni ritaröð sem hófst með útgáfu bókarinnar Flora i farver, hjá Politikens Forlag 1953. Hann gaf öllum tegundum í bókinni íslensk nöfn. Sama gerði Ingólfur Davíðsson, í bókinni Tré og runnar í litum (1962). Þar er allmikið um tvínefni. Ingólfur Davíðsson þýddi og staðfærði Blómabók eftir F.A. Novak (1972) og bjó þá til mikinn fjölda nafna á tegundum og flokkum, þar á meðal allmörg nöfn á lágplöntum. Óskar Ingimarsson og Jón O. Edwald þýddu bókina Myndskreytt flóra Islands og Norður-Evrópu, eftir M. Blamey og C. Grey-Wilson. Þar er 2400 tegundum háplantna lýst í máli og myndum. 1 formála kemur fram að þeir taka upp öll íslensk nöfn sem áður höfðu birst á prenti og gjalda varhuga við breytingum á þeim þó þau passi lítt við nafnareglur. Auk þess gefa þeir íjölda tegunda íslensk heiti og verður oft ekki séð að þeir fylgi þar neinum reglum. I fjölmiðlaheimi nútímans hefur það færst mjög í vöxt að gefa tegundum dýra og plantna nöfn á þeim tungum sem um þau er fjallað í myndum eða máli. Þessi nöfn hafa oft þá sérstöðu að vera búin til af þýðendum sem hafa lítið eða ekkert inngrip í viðkomandi fræðigrein og mynda nýnefni sín oftar en ekki án alls samhengis við skyldleikakerfi lífveranna. Þannig hefur líka orðið til mikill fjöldi samnefna sem þarf að útrýma. Hér má geta bókar sem ber titilinn Ensk- latnesk-íslensk og latnesk-íslensk-ensk dýra- og plöntuoróabók sem Óskar Ingimarsson skráði og gefin var út 1989. Þar munu vera skráð flest nöfn á íslenskum dýrum og fjöldi annarra dýranafna en 37

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.