Málfregnir - 01.12.2002, Page 47

Málfregnir - 01.12.2002, Page 47
staðar, sérstaklega í engilsaxneskum löndum. Víða hafa verið sett lög eða til- skipanir um að skjöl, sem varða réttarstöðu almennings, skuli skrifuð á einföldu og skýru máli. Svíar og Danir hafa unnið markvisst að því að einfalda hið opinbera málfar og gera það skýrara. Að slíku mætti huga hér því þó ég segi að staðan hjá okkur sé betri en víða er ekki þar með sagt að hún sé algóð. Við lögfræðingar erum að mörgu leyti föst í gömlum hefðum og hættir ósjálfrátt til að fyrna mál okkar og skrifa langar og stundum óskýrar setningar. Kansellístíllinn er mörgum lög- fræðingi enn hjartfólginn og einnig svonefndur júridískur þankagangur. Hef ég grun um að misskilningur á merkingu þessa hugtaks hafi á stundum átt sök á því að ekki var gætt að skýrri og markvissri framsetningu á rökstuðningi í lögfræði- legum skrifum. Einnig eru ýmsir lagatextar óþarflega snúnir og mætti gera þá aðgengilegri með skýrara orðafari og setningaskipan. En hvernig eiga lögfræðingar annars að meta stöðuna? Get ég ráðið af því hversu oft ég fæ svarið „Ha, hvað?“ í dómsalnum hvort ég tjái mig þannig að viðstaddir skilji? Undanfarin ár hef ég einkum unnið við sakamál. Sakamál er gott orð, er það ekki? Eða þarf ég að segja glœpamál til að unglingurinn í Austurstræti skilji mig? I „fyrirkallinu" sem unglingurinn fær stendur að mál nr. 10 verði „þingfest“ mánudaginn 1. október nk. kl. 14.00. Það er nánast öruggt að Austurstrætisungling- urinn skilur ekki orðið „þingfest“ - þannig að þegar hann hringir og spyr hvaða „steypa“ sé í gangi, hann hafi fengið bréf, segi ég að hann hafi verið „ákærður" og málið byrji á þeim tíma sem bréfið segir. Ekki er víst að hann skilji orðið ákœráur. Þegar hann mætir tilgreindan dag þingfesti ég málið með því að leggja fram skjölin og þingmerkja þau. Síðan segi ég: „Þá vil ég biója sækjandann að gera grein fyrir ákærunni." „Ha, hvað?“ segir strákurinn svo ég útskýri að lögmaður lögreglunnar, ákæruvaldið, segi að hann hafi slegið Jón og brotið í honum tönn. Þegar sækjandinn er búinn að lesa ákæruna segi ég við ákærða að hann sé kominn fyrir dóminn til þess að svara til saka en áður en hann geri það þá bendi ég á að honum sé ekki skylt að tjá sig um meinta refsiverða háttsemi sína en ef hann tjái sig brýni ég fyrir honum að skýra rétt frá. Spurningarsvipur kemur á strákinn. „Þú ÞARFT ekki að svara en átt ekki að segja ÓSATT,“ segi ég þá. Þetta var nú bara dálítil innsýn í daglega lífið á dómstólunum. Nú er mér ekki ljóst hvort nokkrum hér þykir framandi þetta tungutak sem strákurinn hváir við og sjálfri er mér það jafn-tamt og að tala um hafragraut og slátur8. Hitt er ljóst að flestir, sem koma fyrir dómstóla, aðilar eða vitni, gera það bara einu sinni á ævinni og við vitum að það er talsverð áreynsla að koma inn í dómsal og þurfa að svara spurningum og það eykur á þessa áreynslu ef orðafarið, sem er notað, er framandi. Þar sem markmiðið er að fá fram réttar upplýsingar er það sjálfsagt sálfræðilega vænlegra til árangurs að nota orðalag sem er strax auðskiljanlegt. Á hinn bóginn vilja ýmsir að dómsvaldið birtist í dálítið hátíðlegu andrúmslofti í réttar- salnum og finnst því að dómarinn eigi ekki að nota tungutak götunnar. í þessu sambandi er hins vegar líka rétt að hafa í huga að dómsvaldið er raunverulegt vald og oft örlagavaldur og orðafarið getur í dag eins og fyrrum skipt máli um hvernig þetta vald birtist og jafnvel um það hvernig hægt er að verjast því. Ýmsar erlendar rannsóknir hafa sýnt að það léttir og flýtir vinnu við dómstóla ef lögmenn tjá sig með almennu og skýru orðfæri í stað hefðbundins lagamáls. Þeim mun heldur ætti það að auðvelda al- Áheyrandi benti á að „hafragrautur og slátur“ vteri stráknum sjálfsagt álíka framandi og tungutakið. 47

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.