Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1981, Page 220

Skírnir - 01.01.1981, Page 220
218 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON SKÍRNIR kvæðisins. Fangamarkið „E.T.“ skoðar hann sem eins konar dulmálslykil að kvæðinu og eftir að hafa ráðið (að því er virðist réttilega) við hvern er átt, sýnist allt falla í réttar skorður. Hannes bendir að lokum á hversu drjúgt efni kvæðisins reynist „þegar saman kemur allt hálfsagt og ósagt sem lagt var milli lína ....“ (33). Hér örlar þegar á þeirri afstöðu Hannesar gagnvart ljóðaskilningi og -túlkun sem gengur í gegnum allt verk hans. Túlkun höf- undar virðist nær eingöngu spretta af hinum ævisögulega bakgrunni, þó svo Galdraveiðin eigi sér sannarlega ríkan tilverurétt án þess fróðleiks. Kvæðið er margbrotið, á það má líta frá mörgum hliðum og sýna fram á ýmsa túlkunarmöguleika. Slíkt yrði hér of langt mál, en án efa gæti það orðið „drjúgt efni“ og áhugavert. Líta má svo á að ævisögufróðleikurinn að baki Galdraveiðinni auki einni vídd við kvæðið, en slíkt á engan veginn við um samsvarandi upplýsingar í næsta þætti, en þar er fjallað um Nótt og morgun. Það kappsmál höf- undar að rekja tilurð kvæðisins til einhvers sérstaks landskjálfta er illskilj- anlegt frá bókmenntafræðilegu sjónarhorni. í seinni hluta þessa þáttar sýnir Hannes aftur á móti á sér aðra og gjörólíka hlið. Þar bendir hann á hvernig tveir meginþættir ljóðsins, annars vegar hinn yfirnáttúrulegi verndarandi er vitjar landsins og hins vegar hin tröllauknu jarðarumbrot, vísa í ólíkar áttir og eru í raun viðfangsefni sem Jónas á eftir að þróa áfram hvort í sínu lagi. Hið fyrra eignast sína fullnaðarsköpun í Hulduljóðum, en hið seinna er fyr- irboði náttúruhamfaranna sem Jónas lýsir svo snilldarlega í Fjallinu Skjald- breiði. I máli sxnu um þetta sýnir Hannes að hann er vel fær um frjóar bók- menntarannsóknir, en hann nemur allt of skjótt staðar og leiðir athuganir sínar ekki til hlítar. Oftar en einu sinni tæpir höfundur þannig á grundvallaratriðum í skáld- skap Jónasar, atriðum sem virðast afgerandi fyrir formgerð margra kvæða hans og formgerðarþróun í heildarverki skáldsins. Eitt þessara atriða er sam- bandið milli náttúrurannsókna Jónasar og ljóðagerðar. Hannes minnist á hvernig sjóngáfa náttúruskoðarans og fræðimannsins mótar með tímanum ljóðræna sýn skáldsins (41, 47). En hann virðist ekki hætta sér út í bók- menntalega krufningu á þessu, þ. e. rannsókn sem leiða myndi hann burt frá ævisögulegri fótfestu. Sama gildir í raun um trúarlega afstöðu Jónasar; einn- ig í því efni hefur Hannes máls á mikilsverðum einkennum um sérstæði skáldsins, en lætur þar við sitja. Skiptir þetta þó miklu máli fyrir síðasta ævi- skeið Jónasar sem augljóslega er Hannesi einkar hugleikið. I upphafi ritgerðarinnar um Gunnarshólma spinnur Hannes langan vef úr ævisögulegu efni í þeim tilgangi að sýna fram á ólíkindi þess að kvæðið sé ort á tveimur dægrum eins og munnmælin herma. Hér, sem reyndar oftar, tiltekur Hannes ákveðna frásögn heimildarmanns sem ekki fær við stað- reyndir stuðst og vill þannig leiða líkur að mögulegu misminni hans hvað æviatriði Jónasar varðar. Þetta er langsótt bókmenntafræði, og yfirleitt fæst ekki séð hvaða máli það skiptir fyrir kvæðið sem listaverk hvort það var sam- ið í andríki tveggja sólarhringa eða unnið að því vikum saman. Slíkt er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.