Skírnir - 01.01.1984, Page 221
SKÍRNIR
HVAÐ ER RÉTTLÆTI?
217
koma fram; þessi krafa má heita atgervisreglan eða atgervis-
lögmálið. Svo að siðferðileg niðurstaða þessa máls er ekki frum-
leg — sem betur fer. Hún er sú sem Mill hefur eftir Wilhelm
von Humboldt og gerir að einkunnarorðum fyrir Frelsinu: „að
um mannlegan þroska í ýtrasta margbreytileika sé meira vert
en alla hluti aðra.“90 Svo veit ég ekki nema að á þessari atgervis-
reglu megi reisa hugmynd um mannréttindi í þeirra stað sem ég
þykist vera knúinn til að hafna með skynsamlegum rökum: hug-
mynd um algild mannréttindi í nafni mannlegra verðleika.
Álegsteini Þorsteins Erlingssonar stendur þetta erindi úr Þyrn-
um:
Ég trúi því, sannleiki, að sigurinn þinn
að síðustu vegina jafni;
og þér vinn ég, konúngur, það sem ég vinn,
og því stíg ég hiklaus og vonglaður inn
í frelsandi framtíðar nafni.
ATHUGASEMDIR OG TILVÍSANIR
Þessi ritsmíð á sér langa sögu. Frá 1981 til 1984 hef ég víða haldið fyrirlestra
um efni hennar að meira eða minna leyti, stundum undir sömu fyrirsögn:
hjá Félagi áhugamanna um heimspeki í Reykjavík, Vísindafélagi Norðlend-
inga á Akureyri, menningarráði ísafjarðarkaupstaðar og Vettvangi, félagi
um réttarheimspeki í Reykjavík, í Trinity College í Dvflinni, á norrænu
málþingi í Björgvin og loks f heimspekideildum Háskólans í Vínarborg og
McGiIlháskóla í Montreal. Á öllum þessum stöðum hefur mál mitt sætt
aðfinnslum og ábendingum sem ég hef reynt að læra af eftir megni. Mest
munarþó um tilsögn tveggja starfsbræðra minna í Háskóla íslands, þeirra dr.
Eyjólfs Kjalars Emilssonar starfsmanns Heimspekistofnunar og dr. Mikaels
Marlies Karlssonar dósents. Svo að lítið dæmi sé tekið lagði Eyjólfur fyrri
gerð lokakaflans í rúst (án þess þó að hann sé endilega sammála neinu f
núverandi gerð hans). Dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor fræddi mig um há-
kirkju og lágkirkju, og svo hef ég að vanda þegið ábendingar um smátt og
stórt frá vinum mínum Kristjáni Karlssyni skáldi og bókmenntafræðingi, dr.
Reyni Axelssyni stærðfræðingi og Sigurði Líndal prófessor og forseta Bók-
menntafélagsins. Dr. Gunnar Harðarson, starfsmaður Heimspekistofnunar
Háskóla Islands las prófarkir ásamt Eyjólfi Kjalari og sagði mér til í leið-
inni. Öllu þessu góða fólki þakka ég fyrir hjálpina.