Skírnir - 01.01.1984, Page 323
SKÍRNIR
RITDÓMAR
315
arfljóti, en f hinni síðari Líkfylgdir. Segir þar frá því, að fólkið á Orm-
arsstöðum á Fellum, Þorvarður Kjerúlf læknir og heimafólk hans, hafi
séð þústu á Lagarfljóti í stefnu frá Egilsstöðum í Ás, tvö æki og lausríðandi
menn, sem síðan steyptist í vök í Fljótinu. Menn sáust fara út á Fljótið
frá Ási og Vallanesi, en maður frá Ormarsstöðum, Guðmundur Halldórsson,
sem komst út að vökinni sá þar aðeins ísjakahröngl berast fyrir hægum
straumi. Þetta var á síðasta vetrardag 1893. I lokin segir á þessa leið i gerð-
unum tveimur:
A: ÞÚSTAN í LAGARFLJÓTI
Þorvarður Kjerúlf var einn af þeim
lærðu mönnum er eigi vildi trúa
fyrirbrigðum, vildi gera þau að skyn-
villum og ofsjónum og eigi trúa
fyrri en hann neyddist til þess. En
svo hefir frú Guðríður sagt að þarna
brygði honum og færði hann engar
rengingar fram en gekk inn alvar-
legur og hugsandi. Sumir aðrir sem
við voru staddir voru heldur engir
fyrirburðavinir og þó skynsamir
menn. Enn nokkrir sem á horfðu eru
svo valinkunnir, svo sem frú Guð-
rfður, að engir sem þekkja vel til
dirfast að rengja fyrirburðinn. Fleiri
mætti nefna af áhorfendunum sem
flestir eru enn á lífi og í Héraðinu.
Engan þeirra er ég hefi talað við af
áhorfendunum hefi ég heyrt draga
neinn efa á það að þetta hafi verið
yfimáttúrleg sýn sem menn kalla —
nema ef það væri helst Guðmundur
er kom næst vökinni. Ferðin var hæg
á þústunni sem getið var er hún
sýndist koma utan ísana og gæti
það helst verið athugavert en al-
menn hræðsla í mörgum er þeir sjá
menn á fljótinu á vorís. Hitt er þó
víst að þeir sem á horfðu úr landi
gátu eigi skilið það öðruvísi en sem
fyrirburð eða ef til vill loftspeglun.
En kunnugt er það hér umhverfis
að sumir jafnvel flestir viðstaddir
menn settu þetta f sambandi við og
B: LÍKFYLGDIR
Kjerúlf læknir var einn þeirra
manna, er hafði haldið þvf fram, að
fyrirbrigði væru að eins hugsana-
myndir þeirra, er sæju. En þarna
kom þó eitt, sem hann réð eigi við.
Brá honum sýnt og gekk hann hugsi
og þegjandi inn. Þarna voru nú
margir líkrar skoðunar og Kjerúlf,
og verða eigi gerðir marklitlir menn.
Munu þeir þó hafa dæmt þetta fvr-
irboða þess, að um sláttinn lagðist
Kjerúlf á Seyðisfirði f blóðspýju, er
hann dó úr. Og fór Ifkfylgd hans
sömu leið undir Ás. Komu á móti
bátnum tveir menn frá Vallarnesi og
einn frá Ási á sama stað. (Islenskar
þjóðsögur og -sagnir II. Seyðisfirði
1923, 82.)