Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2001, Page 18
Arnfríður Guðmundsdóttir
í grein sinni rekur Sigurður helstu þjóðsögurnar um Guðríði og sýnir fram á
rökleysu nokkurra þeirra, eins og t.d. sögunnar um skurðgoðið sem hún á að
hafa haft með sér úr Barbaríinu og tilbeðið á laun.19 Er það mat Sigurðar Nor-
dals að Guðríður hafi þurft að gjalda fyrir frægð eiginmanns síns og hylli á
meðal þjóðarinnar, en „alþýðu manna“ hafi ekki þótt „Hallgrímur nógu hvít-
ur, nema Gudda væri svört eins og bik.“20 Grein Sigurðar Nordals markar
þáttaskil vegna þeirrar skoðunar sem hann setur fram að Guðríður hafi lagt
„bæði beinlínis og óbeinlínis drýgsta skerfinn“ til þeirrar reynslu sem Hall-
grímur byggði á í kveðskap sínum.21 Fleiri taka undir þessa skoðun síðar, þar
á meðal Sigurbjörn Einarsson biskup í erindi sem hann flutti við afhjúpun
minnisvarða um Guðríði í Vestmannaeyjum 17. júní 1985.22
Um tilgang fyrrnefndrar greinar sinnar segir Sigurður Nordal meðal ann-
ars:
Hér hefur einungis verið reynt að ryðja burt röngum hugmyndum, til þess að
ímyndunin væri frjálsari um það, sem mestu máli skiftir í sambúð þeirra Hall-
gríms og Guðríðar. Fyrr eða síðar verða þau einhverju skálda vorra að yrkisefni,
og ætti þó enginn að leggja gálauslega hendur að slíkri sögu, svo að síðari vill-
an verði ekki verri en hin fyrri.23
Sigurður reyndist hafa rétt fyrir sér þegar hann spáði fyrir um það að síðar
meir yrðu Guðríður og Hallgrímur viðfangsefni íslenskra höfunda, þó að vam-
aðarorð hans um óvönduð vinnubrögð hafi reynst óþörf enn sem komið er.
Sr. Jakob Jónsson reið á vaðið með leikriti sínu, Tyrkja-Gudda, sem fært var
upp á sviði Þjóðleikhússins, fyrst á 6. áratugnum og síðan aftur árið 1983.
Rúmum áratug síðar hófust sýningar á leikriti Steinunnar Jóhannesdóttur,
Heimur GuðríÖar. Síðasta heimsókn Guðríðar Símonardóttur í kirkju Hall-
gríms. Leikrit Steinunnar var fyrst sýnt í Hallgrímskirkju í Reykjavík í júní
1995 og hefur verið sýnt í um fjörutíu kirkjum víða um land, á rúmlega
fimmtíu sýningum. Hér er um að ræða tvö ólík verk sem bæði leitast við að
túlka hina áhrifamiklu sögu Guðríðar Símonardóttur. Leikrit Jakobs verður hér
notað til samanburðar við leikrit Steinunnar í þeim tilgangi að varpa ljósi á
helstu einkenni í túlkun Steinunnar á hlutverki þjáningar og trúar í lífi Guð-
ríðar.
19 Sigurður Nordal 1927, s. 123; Sigurbjörn Einarsson 1989, s. xxx, xxxv; íslenskar þjóð-
sögur og œfintýri /, s. 466-68, 474-45; Gestur Vestfirðingur V, s. 46-7, 69-79.
20 Sigurður Nordal 1927, s. 123.
21 Sigurður Nordal 1927, s. 131.
22 Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari gerði minnisvarðann sem reistur var í túninu á
Stakkagerði, þar sem Guðríður bjó ásamt eiginmanni sínum Eyjólfi Sölmundssyni, áður
en hún var nauðug flutt úr landi (Ari Gíslason 1989, s. XXVI).
23 Sigurður Nordal 1927, s. 129.
16